Innlent

Samningur við besta spítala Bandaríkjanna

Nadine Yaghi skrifar
Leikurinn Sidekick er einföld leikjavædd lausn sem gerir heilsueflingu aðgengilega til að ná fram varanlegum lífsstílsbreytingum.
Leikurinn Sidekick er einföld leikjavædd lausn sem gerir heilsueflingu aðgengilega til að ná fram varanlegum lífsstílsbreytingum. Visir/Anton Brink
„Mér fannst vanta nýjar leiðir til þess að fyrirbyggja lífsstíls­tengda sjúkdóma áður en skaðinn er skeður,“ segir Tryggvi Þorgeirsson læknir, lýðheilsufræðingur og einn stofnandi íslensk-sænska fyrirtækisins Sidekick Health.

Á dögunum gerði Massachussetts General-spítalinn í Boston samning við fyrirtækið um að nota heilsueflandi leik fyrirtækisins, Sidekick, til rannsóknar á lífsstílsinngripi fyrir sjúklinga sína. Þá er fyrirtækið einnig í samstafi við sérfræðinga í háskólunum MIT og Harvard í Boston.

„Spítalinn hefur margoft verið valinn besti spítali Bandaríkjanna og því er það mikill heiður fyrir starfsfólk Sidekick að hafa verið valið til þessa verks,“ segir Tryggvi og útskýrir að um ræði leikjavædda heilsueflingu sem fólk geti hlaðið niður á síma og spjaldtölvur.

Tryggvi útskýrir að Sidekick sé einföld leikjavædd lausn sem gerir heilsueflingu skemmtilega og aðgengilega til að ná fram varanleagum lífsstílsbreytingum. „Langvinnir lífsstílstengdir sjúkdómar, svo sem áunnin sykursýki og hjarta-og æðasjúkdómar, valda 86 prósentum af dauðsföllum í Evrópu. Langstærsti útgjaldaliðurinn hjá heilbrigðiskerfinu í dag fer í að bregðast við vandanum eftir að skaðinn er skeður og er þessi lausn sett fram til þess að fyrirbyggja sjúkdómana áður.“

Þá segir Tryggvi að aðferðafræði Sidekick-lausnarinnar byggist á sterkum vísindagrunni. „Til dæmis eru þrjár doktorsrannsóknir í gangi núna í tengslum við lausnina. Rannsóknirnar eru í samstarfi við aðila frá Háskóla Íslands, Landspítalanum, Karolinska Institutet í Stokkhólmi, Harvard og MIT.“ Hann segir lausnina einnig nýtast fyrirtækjum sem vilji bæta heilsu starfsmanna sinna. Starfsmenn fá þá aðgang að snjallsímalausn Sidekick sem meðal annars inniheldur heilsutengda leiki og keppni milli starfsmanna.

Sæmundur Oddsson læknir er annar stofnandi Sidekick ásamt Tryggva, en fyrirtækið var stofnað árið 2013. „Sæmundur var þá læknir í Svíþjóð á einu stærsta sjúkrahúsi í Evrópu og fann fyrir því hve mikið vantaði lausnir til að fyrirbyggja og meðhöndla lífsstíls­tengda kvilla.“

Hjá fyrirtækinu starfa ellefu manns, meðal annars læknar, sálfræðingur, lýðheilsufræðingur, verkfræðingar og forritarar. „Þetta er ótrúlega öflugt teymi og þess vegna höfum við náð svona langt.“

Sidekick hefur þegar fengið fjármögnun upp á nokkur hundruð milljónir króna í gegnum erlenda fjárfestingu og styrki, meðal annars frá Tækniþróunarsjóði.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×