Sannleiksnefnd um Lagarfljótsorm vill framlengingu starfstíma Hanna Rún Sverrisdóttir skrifar 13. maí 2014 13:47 Hinn meinti Lagarfljórtsormur syndir um í ánni. VÍSIR/SKJÁSKOT
Sannleiksnefnd sem hefur það hlutverk að fara yfir myndband sem barst til sveitarfélagsins Fljótsdalshéraðs og haldið er fram að sýni hinn svonefnda Lagarfljótsorm hefur óskað eftir framlengingu starfstíma síns. Sannleiksnefndin var skipuð þrettán manns í ágúst 2012 í kjölfar þess að Hjörtur Kjerulf tók myndband fyrir neðan bæinn Hrafnkelsstaði af torkennilegri veru á sundi í Jökulsá í Fljótsdal. Myndbandið vakti gríðarlega athygli og trúa margir að þar hafi sjálfur Lagarfljótsormurinn verið á ferð, en áin rennur í Lagarfljót. Hátt í fimm milljónir hafa skoðað myndbandið. Árið 1997 var hverjum þeim sem næði mynd af orminum heitið hálfrar milljón íslenskra króna. „Það var samkeppni á sínum tíma og fjölmargar myndir, bæði ljósmyndir og málverk, var skilað til keppninnar,“ segir Stefán Bogi Sveinsson, formaður Sannleiksnefndarinnar.Stefán Bogi Sveinsson, formaður Sannleiksnefndarinnar.Engin myndanna var þó talin fullnægjandi sönnun á því að ormurinn væri til og því var ákveðið að framlengja keppnina ótímabundið.Nefndin skal taka afstöðu til afhendingu verðlaunaHjörtur fór svo fram á það síðasta sumar að fá verðlaunin greidd. Stuttu síðar vísaði bæjarráð í Fljótsdalshéraði myndum frá öðrum aðila til Sannleiksnefndarinnar. Nefndinni er ætlað að taka afstöðu til þess hvort sveitarfélaginu væri rétt að greiða út þau verðlaun sem heitið var. „Það hefur ekki verið gert ráð fyrir að neinar verðbætur verði. En kannski, ef við komumst að þeirri niðurstöðu að þarna sé um Lagarfljótsorminn að ræða, er komið tilefni til þess að ákveða það,“ segir Stefán.Mikilvægt að halda ekki of marga fundiStefán hefur, eins og flestir aðrir, séð myndbandið en hann segist þó enn ekki hafa mótað sér endanlega skoðun á því. Hann er þó fullviss um að Lagarfljótsormurinn sé til, það sé bara spurning hvort þetta sé hann eða ekki. Hann segir að ekki hafi verið talið rétt að halda of marga fundi í nefndinni því mikilvægt sé að hver og einn nefndarmaður sé bundinn af sannfæringu snni við yfirferð og mat á myndefninu.Kostnaður nefndarinnar ekki farinn úr böndunumRökin fyrir framlengingu starfstímanefndarinnar eru meðal annars að hér á landi hafi skapast rík hefð fyrir skipun rannsóknarnefnda og undantekningarlaust hafi orðið að lengja starfstíma þeirra verulega. Ætla megi að það myndi draga úr trúverðugleika nefndarstarfsins ef það sama yrði ekki gert fyrir þessa nefnd.Lagarfljótsbrú og Egilstaðir. VÍSIR/GVANefndin tekur þó fram að kostnaður við starf hennar hafi á engan hátt farið úr böndunum. Aðspurður svarar Stefán Bogi því reyndar til að enginn nefndarmaður fái nokkuð greitt fyrir setuna. Önnur rök séu þau að gera megi ráð fyrir því að nefndarmenn muni vilja ljúka vinnu sinni með vettvangsathugunum. Rétt sé að gefa þeim kost á að nýta sumarið til þess.Ekki gott að blanda flokkapólitík í málið Einnig megi gera ráð fyrir því að ef nefndin kynnir niðurstöður sínar í aðdraganda kosninga geti málið orðið pólitískt, enda séu heitar skoðanir á því í samfélaginu. Tilgangurinn með skipan sérstakrar sannleiksnefndar verði að telja að hafi verið, eins og annars staðar þar sem slíkt hefur verið gert, að stuðla að sátt og eindrægni um niðurstöðurnar. Í því skyni sé mikilvægt að blanda ekki flokkapólitík við vinnu nefndarinnar. Þá telur nefndin að viðeigandi sé að nýta það tækifæri sem gefst á héraðshátíðinni Ormsteiti. Eins og nafn hátíðarinnar gefi til kynna sé hún að nokkru leyti haldin orminum í Lagarfljóti til heiðurs. Á henni mætti því kynna formlega niðurstöður nefndarinnar með viðeigandi viðhöfn.
Tengdar fréttir Fyrrum FBI maður leitar að Lagarfljótsorminum Bandarískt kvikmyndatökulið á vegum NBC sjónvarpsstöðvarinnar var við tökur í Fljótsdal í síðustu viku við leit að Lagarfljótsorminum. Stjórnandi hópsins er fyrrum sérsveitarmaður úr bandarísku alríkislögreglunni FBI. 2. maí 2012 08:30 Lagarfljótsormurinn á Animal Planet Lagarfljótsormurinn, Þingvallaurriðinn og Jóhannes Sturlaugsson fiskifræðingur eru meðal efnis í lokaþætti af River Monsters á sjónvarpsstöðinni Animal Planet. 28. maí 2013 22:58 Lagarfljótsormurinn fyrir sannleiksnefnd Fimmtán árum eftir að verðlaunum var heitið fyrir hvern þann sem næði að mynda Lagarfljótsorminn kemur tökumaður fram og gerir tilkall til verðlaunanna. Málið fer fyrir sannleiksnefnd skipaða af yfirvöldum á Héraði. 17. ágúst 2012 11:00 Milljónir hafa séð Lagarfljótsorminn á YouTube Tvær og hálf milljón notenda YouTube hefur nú séð myndbandið sem Hjörtur Kjerúlf tók við Lagarfljót á dögunum. Ríkisútvarpið sýndi myndskeiðið á dögunum en síðan þá hafa margir af stærstu miðlum heims tekið fréttina upp. 10. febrúar 2012 12:42 Vill fleiri sannleiksnefndir um dulræn fyrirbæri "Þetta er mjög gott fordæmi og þyrfti að gerast oftar eftir því sem svona mál koma upp,“ segir Magnús Skarphéðinsson, skólastjóri og sérfræðingur í dulrænum fyrirbærum en hann situr í fyrstu sannleiksnefnd sem hefur verið sett saman um dulrænt fyrirbæri hér á landi, að því best er vitað. 16. ágúst 2012 13:29 Mest lesið Skyndileg krafa upp á milljónir króna eins og lélegt grín Innlent Hér eru „þessar elskur“ Innlent Kosningavaktin: Íslendingar ganga að kjörborðinu Innlent Brenna líkin á nóttunni Innlent Svona var fundur ráðherra og ríkislögreglustjóra um landamærin Innlent Allar landamærastöðvar efldar og þeim mögulega fækkað Innlent Óvissustig á Hellisheiði, í Þrengslum og á Mosfellsheiði Innlent Húsfélag sektaði íbúa um 10 þúsund vegna of lélegra sameignarþrifa Innlent Skorar á fólk að dvelja heilan dag á kaffistofu Samhjálpar Innlent Starfsmenn Arion himinlifandi með daggæsluna Innlent Fleiri fréttir Rjúfa tólf vikna múrinn við rannsókn í Neskaupstað Skorar á fólk að dvelja heilan dag á kaffistofu Samhjálpar Húsfélag sektaði íbúa um 10 þúsund vegna of lélegra sameignarþrifa Hér eru „þessar elskur“ Hærra kolefnisgjald og minna til nýja Landspítalans vegna frestunar kílómetragjalds Fjárlögin áfram rædd í dag og styttist í þinglok Bein útsending: Frambjóðendur tala við nemendur Allar landamærastöðvar efldar og þeim mögulega fækkað Færa til fjármuni til þess að bæta aðstöðu á bráðamóttöku Brenna líkin á nóttunni Starfsmenn Arion himinlifandi með daggæsluna Svona var fundur ráðherra og ríkislögreglustjóra um landamærin Óvissustig á Hellisheiði, í Þrengslum og á Mosfellsheiði Skyndileg krafa upp á milljónir króna eins og lélegt grín Rannsaka hópárás á tvo einstaklinga Fólk velji frekar Sósíalista því VG hafi stungið kjósendur í bakið Fjárlaganefnd gefur grænt ljós á útboð á Vestfjörðum Sýkna í málinu sem setti svip sinn á forsetakosningarnar Sextán flugferðum aflýst Konan er fundin Þórður Snær afboðaði komu sína Hitamet féll Keppast við að tjá sig um skrif Þórðar: Kristrún taki stóra áhættu með að halda honum á lista Viðbrögð Sósíalista og VG við nýrri könnun og daggæsla hjá Arion Málaferlin auki gildi verksins og hann sé hvergi af baki dottinn Bein útsending: Utanríkisstefna á umbrotatímum Refsing milduð í stóra skútumálinu Sósíalistar færu ekki í stjórn sem ætlaði að selja Íslandsbanka Hugmyndir Ingu séu aðför að kjörum alls vinnandi fólks Hjúkrunarfræðingar hafa skrifað undir samning Sjá meira
Fyrrum FBI maður leitar að Lagarfljótsorminum Bandarískt kvikmyndatökulið á vegum NBC sjónvarpsstöðvarinnar var við tökur í Fljótsdal í síðustu viku við leit að Lagarfljótsorminum. Stjórnandi hópsins er fyrrum sérsveitarmaður úr bandarísku alríkislögreglunni FBI. 2. maí 2012 08:30
Lagarfljótsormurinn á Animal Planet Lagarfljótsormurinn, Þingvallaurriðinn og Jóhannes Sturlaugsson fiskifræðingur eru meðal efnis í lokaþætti af River Monsters á sjónvarpsstöðinni Animal Planet. 28. maí 2013 22:58
Lagarfljótsormurinn fyrir sannleiksnefnd Fimmtán árum eftir að verðlaunum var heitið fyrir hvern þann sem næði að mynda Lagarfljótsorminn kemur tökumaður fram og gerir tilkall til verðlaunanna. Málið fer fyrir sannleiksnefnd skipaða af yfirvöldum á Héraði. 17. ágúst 2012 11:00
Milljónir hafa séð Lagarfljótsorminn á YouTube Tvær og hálf milljón notenda YouTube hefur nú séð myndbandið sem Hjörtur Kjerúlf tók við Lagarfljót á dögunum. Ríkisútvarpið sýndi myndskeiðið á dögunum en síðan þá hafa margir af stærstu miðlum heims tekið fréttina upp. 10. febrúar 2012 12:42
Vill fleiri sannleiksnefndir um dulræn fyrirbæri "Þetta er mjög gott fordæmi og þyrfti að gerast oftar eftir því sem svona mál koma upp,“ segir Magnús Skarphéðinsson, skólastjóri og sérfræðingur í dulrænum fyrirbærum en hann situr í fyrstu sannleiksnefnd sem hefur verið sett saman um dulrænt fyrirbæri hér á landi, að því best er vitað. 16. ágúst 2012 13:29