Sé ekki að hætt verði við Hlíðarendabyggð Kristján Már Unnarsson skrifar 8. apríl 2015 20:30
Skrifað var í dag undir fyrstu verksamninga vegna umdeilds íbúðahverfis á Hlíðarenda, sem rísa á við flugbrautarenda Reykjavíkurflugvallar, og eiga framkvæmdir að hefjast á mánudag. Þetta kom fram í viðtali við Brynjar Harðarson, framkvæmdastjóra Valsmanna hf., í fréttum Stöðvar 2. Fulltrúar Reykjavíkurborgar, Knattspyrnufélagsins Vals og Valsmanna hf. rituðu undir verksamninga við GT-verktaka um lagningu framkvæmdavegar að Hlíðarenda og sköpun vinnuaðstöðu. Byrjað verður á því á mánudag að girða vinnusvæðið af í öryggisskyni. En þýðir þetta að ekki verður aftur snúið með Hlíðarendabyggð? „Ég get ekki séð að það verði aftur snúið,“ svarar Brynjar og bendir á að fyrir liggi samþykkt deiliskipulag fyrir flugvöllinn og fyrir Hlíðarendasvæðið, sem Skipulagsstofnun hafi staðfest og birt hafi verið í Stjórnartíðindum. „Þannig að ég sé ekki hvernig á að hætta við þetta í miðri á.“Valsmenn hf. keyptu Hlíðarendalandið til uppbyggingar fyrir um áratug. Miklar skuldir hafa síðan safnast upp.Áformað er að hverfi 600 íbúða rísi á Hlíðarenda. Brynjar segir stefnt að því að sjálfar byggingarframkvæmdirnar hefjist í haust. Byggingarnefndarteikningar séu nú til umfjöllunar hjá byggingarfulltrúa og býst Brynjar við að þær verði samþykktar í næstu viku. Forsenda deiliskipulagsins er að minnsta flugbrautin víki, braut 06/24, norðaustur-suðvesturbraut vallarins. Undirskrift verksamninganna í dag bendir til þess að borgaryfirvöld séu staðráðin í að láta þau áform ná fram að ganga. Brynjar vill taka skýrt fram að þessar framkvæmdir á Hlíðarenda þýði ekki endalok flugvallarins. Það sé grátlegur misskilningur. Þær þýða hins vegar að minnsta flugbrautin mun ekki nýtast til lendinga í hvössum suðvestanáttum frá og með haustinu, eftir að byggingarframkvæmdir verða hafnar.Fokker-vél Flugfélags Íslands í vetur að lenda á flugbrautinni sem þarf að víkja.Stöð 2/Baldur Hrafnkell Jónsson.Kröfur hafa komið fram opinberlega um að ríkisvaldið grípi í taumana en Brynjar bendir á að miklar fjárhagsskuldbindingar hvíli á Valsmönnum. „Þær nema milljörðum. Og einhver verður þá að taka þá ábyrgð, - að bera ábyrgð á þeim skuldbindingum.“
Tengdar fréttir Segir pólítíska andstöðu gegn flugvelli birtast innan Isavia Einn fulltrúa í áhættumatsnefnd um Reykjavíkurflugvöll, sem Isavia leysti upp fyrir jól, segir pólitíska andstöðu gegn flugvellinum birtast sterkt innan Isavia og forstjóri þess sé einbeittur flugvallarandstæðingur. 27. janúar 2015 18:45 Höfða mál gegn borginni ef flugbraut tefur framkvæmdir Valsmenn hf. keyptu Hlíðarendalandið til uppbyggingar fyrir um áratug til uppbyggingar. Vilja hefja uppbyggingu nýs hverfis strax næsta vor. 23. október 2014 19:30 Reyndur sjúkraflugmaður segir glapræði að loka flugbraut Hörður Guðmundsson segir skipta máli að þriðja flugbrautin á Reykjavíkurflugvelli sé til staðar sem varaflugbraut. Ekki skipti máli hvort hún sé mikið notuð. 5. desember 2014 18:45 Flugbraut 24 tók við níu flugvélum í dag Reykjavíkurflugvöllur gegndi óvenju fjölskrúðugu hlutverki í dag, þegar hvöss suðvestanátt með dimmum éljum gerði ólendandi í Keflavík um tíma. 8. mars 2015 21:49 Litla neyðarbrautin hjálpaði sjúkra- og innanlandsfluginu Hin umdeilda neyðarbraut Reykjavíkurflugvallar gerði gæfumuninn í annasömu sjúkraflugi í dag, og tryggði jafnframt að innanlandsflug raskaðist lítið í snarpri suðvestanátt. 8. janúar 2015 19:00 Nothæfisstuðull flugvallarins án „neyðarbrautarinnar“ 97 prósent Nýtt mat á nothæfi Reykjavíkurflugvallar birt. 2. desember 2014 15:58 Heiftúðugar deilur fari í sáttafarveg Katrín Júlíusdóttir, þingmaður Samfylkingarinnar, segir deilurnar um Reykjavíkurflugvöll orðnar svo heiftúðugar að þær verði að setja í sáttafarveg. 2. febrúar 2015 20:34 Átelja borgina í flugvallarmáli og hvetja ráðherra til að beita sér Samtök ferðaþjónustunnar átelja borgaryfirvöld fyrir að ætla einhliða að leggja niður minnstu flugbraut Reykjavíkurflugvallar. 5. mars 2015 18:45 Lendingar á „neyðarbraut“ rúmt hálft prósent af öllum lendingum Síðustu ár jafngilda lendingar á NA/SV-braut Reykjavíkurflugvallar að jafnaði 0,62 prósentum heildarfjölda lendinga. Ekki liggur fyrir skipting lendinganna milli neyðar- og/eða áætlunarflugs og annarrar umferðar. 17. nóvember 2014 07:00 Áhættumatshópur látinn víkja fyrir verkfræðistofu Valsmanns Áhættumatshópur á vegum Isavia, sem taldi óásættanlegt að loka minnstu flugbraut Reykjavíkurflugvallar, hefur sent ríkisstjórninni alvarlegar athugasemdir við að hópurinn skyldi fyrirvaralaust hafa verið lagður niður fyrir jól. 25. janúar 2015 19:30 Sópuðu neyðarbrautina meðan Fokker hringsólaði yfir borginni Fokker-vél Flugfélags Íslands á leið frá Akureyri neyddist til að hringsóla yfir Reykjavíkurflugvelli í 10-15 mínútur í gærkvöldi þar sem báðar aðalflugbrautir vallarins urðu ófærar vegna hliðarvinds. 24. janúar 2015 20:29 Mest lesið Vaktin: Totur farnar að teygja sig til norðurs Innlent Sigmundur hafi viljað í kennslustund með nemendum Innlent Jafnast ekki út að vera með annan fótinn í hrauni og hinn í ís Innlent Kosningavaktin: Íslendingar ganga að kjörborðinu Innlent Eigandi gistiheimilis handtekinn í gengslum við metanóleitrun Erlent Segir notkun eldflaugarinnar fela í sér stigmögnun átaka Erlent Stöðug virkni í nótt og og litlar breytingar Innlent Bættu krakkpípu við styttu Nínu Sæmundsson í Los Angeles Erlent Kostnaðurinn við krýningu Karls konungs 13 milljarðar króna Erlent Hótaði heimilismönnum með skærum Innlent Fleiri fréttir Njarðvíkuræðin heldur sem stendur og vaxtakjörin útskýrð á mannamáli Útkall vegna reyks við Borgarholtsbraut Ekki þörf enn á að stækka varnargarða við Bláa lónið Bein útsending: Heilbrigðisstarfsfólk grillar frambjóðendur Meirihluti styður verkfallsaðgerðir kennara Jafnast ekki út að vera með annan fótinn í hrauni og hinn í ís Stöðug virkni í nótt og og litlar breytingar Hótaði heimilismönnum með skærum Sigmundur hafi viljað í kennslustund með nemendum Gætu kosið strategískt þegar svo margir flokkar eru á mörkunum Funda áfram hjá sáttasemjara á morgun „Fólki er frekar misboðið“ Gosið gætið varað í nokkrar vikur Endalok goshrinunnar teygist inn á mitt næsta ár Bílaplan á bólakafi, könnun og frambjóðanda misboðið Höfðu ekki áhyggjur af lóninu sjálfu Skilorðsbundinn dómur yfir strætóbílstjóra staðfestur Veit ekki hver getur tekið við gögnunum Refsing Jaguars þyngd verulega Sjálfstæðisflokkur og Miðflokkur takist á í bergmálshelli Samið um sjálfstæða leikskóla í Reykjavík Vilja byggja vísindasetur fyrir almenning í Háskólabíói Útlit fyrir að varnir Bláa lónsins haldi Hart tekist á um fyrirætlanir Heidelberg í Þorlákshöfn Bein útsending: Hver er sýn flokkanna á lífskjör eldra fólks? Verkföll boðuð í fjórum grunnskólum í janúar „Þetta var bara besta stund kosningabaráttunnar til þessa“ Komust langt að gosinu því það gleymdist að loka veginum Nýsköpun eða „rándýr aðgangur“?: 300.000 króna heilskimun aftur á boðstólnum Telur Bláa lónið öruggt vegna varnargarðanna Sjá meira
Segir pólítíska andstöðu gegn flugvelli birtast innan Isavia Einn fulltrúa í áhættumatsnefnd um Reykjavíkurflugvöll, sem Isavia leysti upp fyrir jól, segir pólitíska andstöðu gegn flugvellinum birtast sterkt innan Isavia og forstjóri þess sé einbeittur flugvallarandstæðingur. 27. janúar 2015 18:45
Höfða mál gegn borginni ef flugbraut tefur framkvæmdir Valsmenn hf. keyptu Hlíðarendalandið til uppbyggingar fyrir um áratug til uppbyggingar. Vilja hefja uppbyggingu nýs hverfis strax næsta vor. 23. október 2014 19:30
Reyndur sjúkraflugmaður segir glapræði að loka flugbraut Hörður Guðmundsson segir skipta máli að þriðja flugbrautin á Reykjavíkurflugvelli sé til staðar sem varaflugbraut. Ekki skipti máli hvort hún sé mikið notuð. 5. desember 2014 18:45
Flugbraut 24 tók við níu flugvélum í dag Reykjavíkurflugvöllur gegndi óvenju fjölskrúðugu hlutverki í dag, þegar hvöss suðvestanátt með dimmum éljum gerði ólendandi í Keflavík um tíma. 8. mars 2015 21:49
Litla neyðarbrautin hjálpaði sjúkra- og innanlandsfluginu Hin umdeilda neyðarbraut Reykjavíkurflugvallar gerði gæfumuninn í annasömu sjúkraflugi í dag, og tryggði jafnframt að innanlandsflug raskaðist lítið í snarpri suðvestanátt. 8. janúar 2015 19:00
Nothæfisstuðull flugvallarins án „neyðarbrautarinnar“ 97 prósent Nýtt mat á nothæfi Reykjavíkurflugvallar birt. 2. desember 2014 15:58
Heiftúðugar deilur fari í sáttafarveg Katrín Júlíusdóttir, þingmaður Samfylkingarinnar, segir deilurnar um Reykjavíkurflugvöll orðnar svo heiftúðugar að þær verði að setja í sáttafarveg. 2. febrúar 2015 20:34
Átelja borgina í flugvallarmáli og hvetja ráðherra til að beita sér Samtök ferðaþjónustunnar átelja borgaryfirvöld fyrir að ætla einhliða að leggja niður minnstu flugbraut Reykjavíkurflugvallar. 5. mars 2015 18:45
Lendingar á „neyðarbraut“ rúmt hálft prósent af öllum lendingum Síðustu ár jafngilda lendingar á NA/SV-braut Reykjavíkurflugvallar að jafnaði 0,62 prósentum heildarfjölda lendinga. Ekki liggur fyrir skipting lendinganna milli neyðar- og/eða áætlunarflugs og annarrar umferðar. 17. nóvember 2014 07:00
Áhættumatshópur látinn víkja fyrir verkfræðistofu Valsmanns Áhættumatshópur á vegum Isavia, sem taldi óásættanlegt að loka minnstu flugbraut Reykjavíkurflugvallar, hefur sent ríkisstjórninni alvarlegar athugasemdir við að hópurinn skyldi fyrirvaralaust hafa verið lagður niður fyrir jól. 25. janúar 2015 19:30
Sópuðu neyðarbrautina meðan Fokker hringsólaði yfir borginni Fokker-vél Flugfélags Íslands á leið frá Akureyri neyddist til að hringsóla yfir Reykjavíkurflugvelli í 10-15 mínútur í gærkvöldi þar sem báðar aðalflugbrautir vallarins urðu ófærar vegna hliðarvinds. 24. janúar 2015 20:29