Verðhækkanirnar vonbrigði Fjármálaráðherra telur tæpt að forsenduákvæði kjarasamninga haldi í haust en verðbólga hefur aukist þvert á spár. Hann segir það vonbrigði hversu mikið flugfargjöld hafa hækkað og segir grannt sé fylgst með því að lækkun olíuverðs á heimsmarkaði skili sér til neytenda. Innlent 26.6.2026 18:50
Fjármálaráðherra telur tæpt að forsenduákvæði kjarasamninga haldi Daði Már Kristófersson fjármálaráðherra telur tæpt að forsenduákvæði kjarasamninga haldi í haust en verðbólga hefur aukist þvert á spár. Við ræðum við hann í kvöldfréttum en hann segir það vonbrigði hversu mikið flugfargjöld hafa hækkað og segir að grannt sé fylgst með því að lækkun olíuverðs á heimsmarkaði skili sér til neytenda. Þá mætir Halla Gunnarsdóttir formaður VR til okkar til að fara yfir þetta mál. Innlent 26.6.2026 18:10
Skipuð skólameistari eftir storminn á Bifröst Margrét Jónsdóttir Njarðvík hefur verið skipuð í embætti skólameistara Fjölbrautaskólans í Breiðholti af Ingu Sæland mennta- og barnamálaráðherra. Margrét var rektor Háskólans á Bifröst í tæp sex ár en hætti eftir að hún kærði þrjá kennara við skólann til siðanefndar. Innlent 26.6.2026 18:01
Fiskverð í hæstu hæðum og strandveiðimenn brosa allan hringinn Verð á óslægðum þorski er nú tæplega fjörutíu prósentum hærra en í fyrra. Skortur er á hvítfiski í Evrópu sem má rekja til þess að veiðar á þorski í Barentshafi hafa dregist mikið saman og minna framboð af fiski frá Rússlandi. Innlent 26.6.2026 11:54
Verðbólgan eykst þvert á spár og fiskverð í hæstu hæðum Í hádegisfréttum verður fjallað um nýjustu verðbólgutölurnar sem bárust í morgun og eru töluvert hærri en búist hafði verið við. Innlent 26.6.2026 11:41
„Í guðanna bænum ekki apa eftir þessu“ Fjallaleiðsögumanni brá verulega í brún þegar hann sá að tveir ungir menn höfðu haldið upp í Fálkaklett án nauðsynlegs búnaðar um miðja nótt í fyrrinótt. Þó að hann þekki það sjálfur að hafa verið ungur og vitlaus segir hann athæfi ungu mannanna stórhættulegt og geta hafa endað í stórslysi. Innlent 26.6.2026 11:39
Nöfn úr rannsókn sáust í kynningarmyndbandi Nöfn einstaklinga sem tengjast virkri rannsókn embættis héraðssaksóknara sáust á tölvuskjá starfsmanns embættisins í kynningarmyndbandi ísraelska tæknifyrirtækisins Cellebrite. Innlent 26.6.2026 10:15
Ivanka Trump og Jared Kushner á Íslandi Ivanka Trump, dóttir Bandaríkjaforseta, og Jared Kushner, tengdasonur hans og ráðgjafi, eru á ferð um Ísland. Þau eru sögð hér í einkaerindum. Innlent 26.6.2026 10:07
Þessi sóttu um starf upplýsingafulltrúa Dómsmálaráðuneytinu bárust 22 umsóknir um starf upplýsingafulltrúa. Innlent 26.6.2026 09:51
Fær ekki bætur fyrir sóttkví vegna Covid-19 Landsréttur staðfesti sýknu ríkisins af kröfu manns sem var ósáttur við að þurfa að sæta sóttkví í kórónuveirufaraldrinum. Sá krafðist rúmlega tveggja milljóna króna miskabóta fyrir frelsissviptingu. Innlent 26.6.2026 08:06
Telur gagnrýni sveitarfélaganna ekki eiga við rök að styðjast Mennta- og barnamálaráðuneytið telur að gagnrýni Sambands íslenskra sveitarfélaganna á breytingu sem gerð var á reglugerð um um vistun barna með fjölþættar stuðningsþarfir, eigi ekki við rök að styðjast. Innlent 26.6.2026 07:34
Neitaði að yfirgefa strætisvagninn Lögregla á höfuðborgarsvæðinu var kölluð út eftir að strætisvagnabílstjóri óskaði eftir aðstoð vegna farþega sem neitaði að yfirgefa vagninn. Innlent 26.6.2026 07:21
Vilja semja aftur um bensínstöðalóðir í borginni Meirihlutinn í borgarráði samþykkti að stofna nefnd til að semja við eigendur bensínstöðvalóða um greiðslur fyrir byggingarrétt á þeim. Borgarstjóri segir að Evrópureglur um ríkisaðstoð kunni að hafa verið brotnar þegar borgin samdi upphaflega um lóðirnar. Innlent 26.6.2026 06:43
Skerðing á opnun í frístund verði afturkölluð Bjarni Fritzson, formaður skóla- og frístundaráðs, segir opnunartíma frístundamiðstöðva verða til 17 en ekki 16.30 næsta vetur. Það sé auðvelt lausn í hagræðingu að velta kostnaði yfir á foreldra en nýr meirihluti ætli ekki að gera það. Innlent 26.6.2026 06:31
Fræddust um daglegt líf blindra og hreyfihamlaðra Vísindaskóli unga fólksins á Akureyri er hápunktur sumarsins hjá mörgum en hann er fyrir börn á aldrinum ellefu til þrettán ára. Ýmis námskeið eru á boðstólum og í ár fengu krakkarnir fræðslu um jafnréttismál, málefni norðurslóða, sorpmál og margt fleira. Innlent 25.6.2026 23:45
Bjóða ferðamönnum að gista í súrheysturni Á sveitabæ einum á Vatnsnesi er búið að breyta gamla súrheysturninum í gistirými fyrir ferðamenn. Bændurnir segja gestina dolfallna. Innlent 25.6.2026 23:23
„Miðað við þessi orð þá hef ég miklar áhyggjur“ Ríflega helmingur þeirra sem sagt var upp störfum hjá Reykjavíkurborg í dag, fimmtudaginn 25. júní, eru í stéttarfélaginu Sameyki. Var félaginu tilkynnt fyrirfram um uppsagnirnar en formaður félagsins segir mjög þungt í fólki hljóðið. Þá segir hann að horfa þurfi aftur til ársins 2010 til þess að rifja upp svipaða hópuppsögn hjá borginni. Innlent 25.6.2026 21:25
Stutt stopp hjá gjaldfrjálsum Strætó Börn á grunnskólaaldri í Reykjavík fá ekki lengur öll frítt í Strætó eftir að ný borgarstjórn afturkallaði samþykkt síðasta borgarstjórnarmeirihluta þess efnis, rétt tæpum tveimur mánuðum eftir að breytingarnar tóku gildi. Ný borgarstjórnin telur breytingarnar of kostnaðarsamar. Börn 11 ára og yngri fá eftir sem áður frítt í Strætó. Innlent 25.6.2026 20:21
Stúlkan er fundin Sautján ára stúlka sem lögregla lýsti í tvígang eftir í vikunni er fundin. Innlent 25.6.2026 19:08
Boðar frekari niðurskurð Hildur Björnsdóttir borgarstjóri boðar frekari niðurskurð í borginni til viðbótar við hópuppsagnir sem greint var frá í dag. Hún segist ekki fara í uppsagnir af léttúð en sviðsstjórar borgarinnar eigi nú að fara yfir rekstur sinna sviða. Innlent 25.6.2026 18:32
Borgarstarfsmenn taka pokann sinn og kapphlaup við tímann í Venesúela Borgarstjóri segir umfangsmiklar skipulagsbreytingar spara borginni allt að þrjú hundruð milljónir á ári. Átján borgarstarfsmönnum var sagt upp störfum í dag og níu færðir til. Þá voru mannréttindaskrifstofan og mannréttindaráð lögð niður. Innlent 25.6.2026 17:59
Kastaðist af hjólinu þegar ekið var á hann Lögreglunni barst tilkynning um árekstur á áttunda tímanum í morgun, fimmtudaginn 25. júní, þar sem ekið hafði verið á reiðhjólamann með þeim afleiðingum að hann kastaðist af hjólinu. Þá hafnaði hann á gangstéttarkanti og var fluttur á slysadeild en ekki liggur fyrir hve alvarlega áverka hann hlaut. Innlent 25.6.2026 17:57
„Erfiður dagur í ráðhúsinu í dag“ Fulltrúar minnihlutans í borgarstjórn Reykjavíkur gagnrýna nýkynntan niðurskurð í borgarkerfinu. Oddviti Samfylkingarinnar segir miður að mannréttindaskrifstofa hafi verið lögð niður og oddviti Vinstrisins segir að hagræðingaraðgerðirnar hafi verið keyrðar í gegn í flýti. Innlent 25.6.2026 17:50
Handtekinn af sérsveitarmönnum undir Esjunni Sérsveit og lögregla handtóku hið minnsta einn mann við Vesturlandsveg undir Esjunni í Reykjavík um klukkan 17 í dag. Innlent 25.6.2026 17:21