Innlent

Fréttamynd

Berg­dís nýr sendi­herra Ís­lands í Kína

Bergdís Ellertsdóttir tekur við stöðu sendiherra í Kína síðar á árinu. Hún hefur starfað við utanríkisþjónustu í hálfan fjórða áratug og var sendiherra í Bandaríkjunum áður en Svanhildur Hólm Valsdóttir tók við embættinu fyrir hálfu öðru ári.

Innlent

Fréttir í tímaröð

Fréttamynd

Ár­sæll hættur sem skóla­meistari

Ársæll Guðmundsson hefur lokið störfum sem skólameistari Borgarholtsskóla en skipunartími hans rennur út í júní. Hann hefur ekki ákveðið hvað hann hyggst gera í framhaldinu en segist stoltur af ferlinum.

Innlent
Fréttamynd

Breytingar á deiliskipulagi Suður­lands­brautar aug­lýstar

Umhverfis- og skipulagsráð hefur samþykkt að senda deiliskipulag Suðurlandsbrautar vegna Borgarlínunnar til auglýsingar í samráðsgátt. Minnihluti borgarstjórnar gagnrýnir fyrirhugaðar breytingar og sér í lagi að ekki sé búið að útfæra breytingar á bílastæðum við götuna.

Innlent
Fréttamynd

Sjö af hverjum tíu fýlum með plast í maganum

Nær sjö af hverjum tíu íslenskum fýlum eru með plast í meltingarveginum. Þetta kemur fram í niðurstöðum vöktunar Umhverfis- og orkustofnunar á magni plasts í meltingarvegi fýla árið 2025. Sjómenn söfnuðu fuglunum fyrir vöktunina. Allir höfðu þeir drukknað.

Innlent
Fréttamynd

Bílar sitja fastir vegna þungrar færðar

Lokað hefur verið fyrir umferð um vegi í kringum höfuðborgarsvæðið vegna óveðurs sem ríður yfir landið. Þung færð er um helstu stofnbrautir höfuðborgarsvæðisins og víða sitja bílar fastir. 

Innlent
Fréttamynd

Blóð úr hinum grunaða á hnífi á vett­vangi

Lögregla telur framburð mannsins, sem grunaður er um að hafa stungið annan mann til bana í íbúð við Skjólbraut í Kópavogi í nóvember, ótrúverðugan en rökstuddur grunur er um að hann hafi veitt hinum látna áverka sem leiddu til dauða hans. Blóðug skóför og DNA hins grunaða á hnífum sem fundust á vettvangi auk lokaniðurstöðu krufningar eru meðal gagna sem benda til sektar hins grunaða.

Innlent
Fréttamynd

Vonast til að náttúran verði þeim hlið­holl

Leikskóli tekur aftur til starfa í Grindavík í ágúst ef áform bæjarstjórnar ganga eftir og þá er einnig í skoðun að innrita aftur í grunnskólann í haust. Forseti bæjarstjórnar segir að foreldrar áttatíu barna hafi hug á því að nýta sér þjónustuna.

Innlent
Fréttamynd

Allir fundnir óslasaðir eftir snjó­flóð

Björgunarsveitir á Eyjafjarðarsvæðinu voru kallaðar út á hæsta forgangi vegna tilkynningar um snjóflóð við Ólafsfjörð. Grunur var um að einn úr hópi sem var á svæðinu hafi lent í flóðinu en nú eru allir fundnir óslasaðir

Innlent
Fréttamynd

Gular veðurviðvaranir og vegir á óvissustigi

Veðurstofa Íslands hefur gefið út gular veðurviðvaranir víða um land síðdegis í dag. Fjöldi vega er á óvissustigi og geta því lokað með skömmum fyrirvara, þar á meðal Reykjanesbrautin og Holtavörðuheiðin.

Innlent
Fréttamynd

Leiðin­legt þegar ráðist er á „litla manninn á horninu“

Brotist var inn á pítsastaðinn Pizza 107 snemma í morgun og vínflöskum stolið. Eigandi staðarins, sem hefur séð upptöku af innbrotinu, telur innbrotið hafa verið planað í þaula. Það sé leiðinlegt þegar ráðist er á „litla manninn á horninu“ og hefði hann frekar lánað viðkomandi nokkrar vínflöskur.

Innlent
Fréttamynd

Ekið á mann í Þrengslunum

Ekið var á bílstjóra flutningabíls í Þrengslunum í dag. Hann hafði að sögn lögreglu lent í vandræðum í brekku vegna mikillar hálku og stóð fyrir utan bílinn þegar öðrum bíl var ekið utan í hann.

Innlent
Fréttamynd

Eins og síðast en „einu númeri minna“

Gul viðvörun vegna hríðar og storms tekur gildi á höfuðborgarsvæðinu klukkan sex í kvöld. Veðurfræðingur segir veðrið svipa til þess sem gekk yfir landið fyrr í vikunni en þó vera „einu númeri minna“.

Innlent
Fréttamynd

Úr­vals­deild og neðri deild en restin í vand­ræðum

Samfylking og Sjálfstæðisflokkur eiga í einvígi í Reykjavík að mati prófessors í stjórnmálafræði en flokkarnir eru nær hnífjafnir samkvæmt nýrri könnun. Línur séu teknar að skýrast og skipta megi flokkunum upp í þrjár deildir. Líklega verði hægt að mynda meirihluta til vinstri eða hægri.

Innlent
Fréttamynd

Kennarar botna aftur ekkert í Ingu Sæ­land

Formaður Kennarasambands Íslands furðar sig á fullyrðingum menntamálaráðuneytisins um lengd skólaársins í íslenskum grunnskólum. Lögbundnir kennsludagar á Íslandi séu 180 talsins, það viti allir foreldrar grunnskólabarna, og það sé sambærilegt hinum Norðurlöndunum.

Innlent
Fréttamynd

Vinstrið á blússandi siglingu

Fylgi Vinstrisins, nýs framboðs í Reykjavík undir forystu Sönnu Magdalenu Mörtudóttur, eykst um rúm þrjú prósentustig milli kannanna. Samfylkingin og Sjálfstæðisflokkurinn keppast enn um efsta sætið.

Innlent