Innlent

Fréttir í tímaröð

Fréttamynd

Ekki innritað í fjóra leik­skóla í Reykja­vík í haust

Ekki verður innritað í fjóra leikskóla í Reykjavík á þessu ári vegna framkvæmda. Leikskólarnir eru Hagaborg, Sæborg, Borg og Vinagerði. Foreldrar sem hafa valið leikskólana í umsókn eru hvattir til að breyta umsókn. Börn sem eru þegar skráð í leikskólann verða flutt annað. 

Innlent
Fréttamynd

„Eins og við séum komin aftur á 1. mars 1989“

„Þetta er frelsismál og það er forræðishyggja að banna þetta. Þetta er algjört ofríki borgar þegar þú þarft að díla við borgaryfirvöld um hvað þú selur á vellinum. Á sama tíma og hægt er að kaupa þetta á menningarviðburðum þar sem sumir borgarfulltrúar eru, en ekki hér.“

Innlent
Fréttamynd

ASÍ og SA telja stjórn­völd á villi­götum

Binding bótagreiðslna við launavísitölu er óráðleg og ótímabær að mati Alþýðusambands Íslands. Samtök atvinnulífsins telja breytinguna geta leitt til þess að bætur hækki hraðar en laun. Gera má ráð fyrir verðbólguþrýstingi og milljarða útgjaldaaukningu samkvæmt greinargerð með frumvarpi um málið.

Innlent
Fréttamynd

For­stjóri í beinni, her­þotur og bjór á vellinum

Starfsmenn bráðamóttökunnar hafa á síðustu dögum ítrekað lýst hættuástandi á deildinni og segja nóg komið í ályktun sem þeir sendu frá sér eftir hitafund í gærkvöldi. Starfsmenn líkja stöðunni við daglegar hamfarir og hafa gagnrýnt viðbrögð heilbrigðisráðherra við ástandinu. Runólfur Pálsson, forstjóri Landspítalans, mætir í myndver í kvöldfréttum og fer yfir stöðuna í beinni.

Innlent
Fréttamynd

Stúlkan er fundin

Stúlkan sem lögreglan á höfuðborgarsvæðinu lýsti eftir fyrr í kvöld er fundin heil á húfi.

Innlent
Fréttamynd

Skoða að leigja hótel til að létta undir með bráðamóttökunni

Forstjóri Landspítalans segir til skoðunar að leigja hótelrými tímabundið til að létta undir með starfsemi bráðamóttökunnar. Rýmunum yrði ráðstafað til þeirra sem dvelja á sjúkrahótelum og þannig myndi legurýmum fjölga svo hægt væri að létta á álaginu á bráðamóttökunni.

Innlent
Fréttamynd

Ingi­björg fljót að rífa upp boxhanskana

Framsóknarmenn velja sér næsta formann Framsóknarflokksins á 38. flokksþingi Framsóknar, sem verður nú um helgina. Á sunnudaginn verður leiðtoginn kjörninn en valið stendur á milli þeirra Lilju D. Alfreðsdóttur, sem er varaformaður flokksins, og Ingibjargar Isaksen þingmanns Norðausturkjördæmis en hún er formaður þingflokks Framsóknar.

Innlent
Fréttamynd

Hækkuðu gjaldið í skugga stúdentamótmæla

Háskólaráð Háskóla Íslands samþykkti í dag að hækka skrásetningargjald háskóla landsins um 25 þúsund krónur frá og með næsta skólaári. Fulltrúar stúdenta mótmæltu fyrirhugaðri hækkun í aðdraganda fundarins en höfðu ekki erindi sem erfiði.

Innlent
Fréttamynd

Bjórinn nú leyfður á vellinum

Borgarráð samþykkti á fundi sínum í morgun tillögur stýrihóps um breytingar á málsmeðferðarreglum um veitinga- og gististaði. Meðal breytinga er að áfengisveitingar eru leyfðar í tengslum við íþróttaviðburði að uppfylltum ákveðnum skilyrðum.

Innlent
Fréttamynd

Í­hugar að bjóða fram til vara­for­manns

Valdimar Víðisson, bæjarstjóri í Hafnarfirði, íhugar nú að bjóða sig fram til varaformanns Framsóknarflokksins. Stefán Vagn Stefánsson þingmaður flokksins er sá eini sem hefur gefið kost á sér til embættisins en tvær hafa boðið fram til formanns.

Innlent
Fréttamynd

Sömdu um reglu­legar sam­farir í ár eftir sam­búðar­slit

Kona hefur verið dæmd til þess að greiða fyrrverandi sambýlismanni sínum tæpar þrettán milljónir króna vegna sambúðarslita þeirra. Fyrir dómi sagði hún manninn hafa verið „tekjulausan iðjuleysingja og drykkjumann“, sem hún hefði haldið uppi allan sambúðartímann. Málið sneri að gildi fjárskiptasamnings þeirra á milli en konan hélt því fram að samningurinn væri ógildur þar sem strikað hafði verið yfir ákvæði um skyldu mannsins til þess að reyna að frjóvga egg hennar í eitt ár eftir sambúðarslitin.

Innlent
Fréttamynd

Ríkisfjármálaleg tíma­sprengja, mis­tök eða tíma­bært rétt­lætis­mál?

Varhugavert, ríkisfjármálaleg tímasprengja, möguleg hagstjórnarmistök í uppsiglingu og sjálfvirk útgjaldaaukning sem stuðlað getur að ósjálfbærni ríkissjóðs. Þessi orð hafa meðal annars verið notuð til að lýsa einu helsta þrætueplinu á Alþingi undanfarnar vikur. Hér er þó ekki verið að vísa í orð stjórnarandstöðunnar, heldur sérfræðinga, meðal annars úr röðum akademíunnar, Fjármálaráðs og fjármálaráðuneytisins. 

Innlent
Fréttamynd

Vís­bendingar um gerviverktöku í geiranum

Vísbendingar eru um gerviverktöku meðal leiðsögumanna og hópbifreiðastjóra samkvæmt vinnustaðaeftirliti ASÍ. Þeir sem starfi sem slíkir séu með skerta réttarstöðu og tapi á grundvallarréttindum. Tugir ferðaþjónustufyrirtækja voru ekki skráð á fyrirtækjaskrá Skattsins.

Innlent
Fréttamynd

Mikið svif­ryk þrátt fyrir rykbindingu

Mikil loftmengun mældist í höfuðborginni í morgun þrátt fyrir að götur hafi verið rykbundnar fyrr í vikunni. Líklegt er að mengun verði áfram viðvarandi vegna bílaumferðar og veðuraðstæðna.

Innlent