Tveir + sex - Spennandi þáttur um kynlíf
Nýr þáttur sem hefur göngu sína á Popptíví næstkomandi fimmtudag. Þau Sunneva Sverrisdóttir og Veigar Ölnir Gunnarsson stjórna nýjum, spennandi og fróðlegum þætti um kynlíf ungs fólks á Íslandi. Þættirnir eru upplýsandi og fróðlegir og koma til með að vekja umtal, án þess þó að fara yfir velsæmismörk. Kynfræðingurinn Sigga Dögg er krökkunum til halds og trausts, stjórnar umræðum og hvetur þau til að íhuga og prufa ýmislegt. Þáttastjórnendum er ekkert óviðkomandi þegar kemur að kynlífi, þau ræða málin og spyrja sérfræðinga álits um hin ýmsu málefni auk þess að reyna margt á eigin skinni.
 
                                                         
                                                         
                                                         
                                                         
                                                         
                                                         
                                                         
                                                         
                                                         
                                                         
                                                         
                                                         
                                                 
                                                 
                                                 
                                                 
                                                 
                                                 
                                                 
                                                 
                                                 
                                                 
                                                 
                                                 
                                                 
                                                 
                                                 
                                                 
                                                 
                                                 
                                                 
                                                 
                                                 
                                                 
                                                 
                                                 
                                                 
                                                 
                                                 
                                                 
                                                 
                                                 
                                                 
                                                 
                                                 
                                                 
                                                 
                                                 
                                                 
                                                 
                                                 
                                                 
                                                 
                                                 
                                                 
                                                 
                                                 
                                                 
                                                 
                                                 
                                                 
                                                 
                                                 
                                                 
                                                 
                                                 
                                                 
                                                 
                                                 
                                                 
                                                 
                                                 
                                                 
                                                 
                                                 
                                                 
                                                 
                                                 
                                                 
                                                 
                                                 
                                                 
                                                 
                                                 
                                                 
                                                 
                                                 
                                                 
                                                 
                                                 
                                                 
                                                 
                                                 
                                                 
                                                 
                                                 
                                                 
                                                 
                                                 
                                                 
                                                 
                                                 
                                                 
                                                 
                                                 
                                                 
                                                 
                                                     
                                                     
                                                     
                                                     
                                                     
                                                     
                                                     
                                                     
                                                     
                                                     
                                                     
                                                     
                                                     
                                                     
                                                     
                                                     
                                                     
                                                     
                                                     
                                                     
                                                    