Seðlabankinn vill kaupa krónur Jón Hákon Halldórsson skrifar 6. júlí 2011 17:19
Seðlabanki Íslands kallar eftir tilboðum frá aðilum sem vilja selja íslenskar krónur gegn greiðslu í reiðufé í erlendum gjaldeyri. Fram kemur í tilkynningu frá Seðlabankanum að útboðið sé liður í losun hafta á fjármagnsviðskiptum, samanber áætlun Seðlabankans um losun gjaldeyrishafta frá 25. mars 2011. Viðskiptavökum á millibankamarkaði með gjaldeyri er boðið að hafa milligöngu um viðskiptin. Seðlabankinn býðst til að kaupa 15 milljarða króna gegn greiðslu í evrum. Tilboðum skal skilað fyrir 12. júlí 2011. Nánari lýsingu á framkvæmd útboðsins er að finna í útboðskilmálum. Samhliða útboðinu mun Seðlabankinn, fyrir hönd ríkisjóðs, bjóðast til að kaupa til baka krónuskuldabréf ríkissjóðs sem falla á gjalddaga fyrir lok maí 2013. Markmið þessarar aðgerðar, sem fellur undir fyrri áfanga áætlunarinnar um losun gjaldeyrishafta, er að stuðla að því að fjárfestar geti selt krónueignir sínar með skipulögðum hætti ef þeir svo kjósa. Lausafjárstaða bankanna er nægilega sterk til þess að standast tilfærslur á þeirri krónufjárhæð sem Seðlabankinn býðst til að kaupa og með ofangreindum endurkaupum á ríkisbréfum er dregið úr mögulegum hliðaráhrifum viðskiptanna á skuldabréfamarkað.
Mest lesið Þriggja ára fangelsi og tveggja milljarða sekt Viðskipti innlent Stofnandinn búinn að eignast Mandi á ný Viðskipti innlent Íslandshótel taka að óbreyttu yfir rekstur Nordica og Natura Viðskipti innlent Að tilkynna vinnufélaga til lögreglu Atvinnulíf Matvælastofnun gerir ekki athugsemdir við kjötvinnslu í Álfabakka Viðskipti innlent Kínverjar svara fyrir sig og hækka enn tolla á bandarískar vörur Viðskipti erlent Icelandair skrúfar fyrir fría gosið Viðskipti innlent Órói á mörkuðum heldur áfram og gullverð aldrei hærra Viðskipti erlent Danskir seðlar teknir úr umferð og verða ógildir Neytendur Reiknivél sem sýnir áhrif breytingar á samsköttun Neytendur Fleiri fréttir Þriggja ára fangelsi og tveggja milljarða sekt Stofnandinn búinn að eignast Mandi á ný Matvælastofnun gerir ekki athugsemdir við kjötvinnslu í Álfabakka Íslandshótel taka að óbreyttu yfir rekstur Nordica og Natura Ánægjulegt að breið sátt liggi fyrir um uppgjör vegna ÍL-sjóðs Hafa samþykkt tillögu um uppgjör ríkisins á bréfum ÍL-sjóðs Icelandair skrúfar fyrir fría gosið Bein útsending: Ársfundur Seðlabankans Sýknaður í Ímon-málinu tíu árum seinna Bein útsending: Vorfundur RARIK - Hreyfum samfélagið til framtíðar Milljarðaafgangur og besta niðurstaðan í sautján ár Enginn sjái eftir því á dánarbeðinum að hafa ekki unnið meira Mögulega leikflétta og eða viðbrögð við lækkunum Miðlunarlónin standa öll mun betur en á horfðist Bein útsending: Hlýtur Carbfix Nýsköpunarverðlaun Norðurlandanna? Penninn leggst í miklar breytingar Ríflega tveggja milljarða afgangur á Akureyri Kauphöllin réttir við sér Spá aukinni verðbólgu Andstæðingar Carbfix í Hafnarfirði reyna að hafa áhrif á Húsvíkinga Tollahækkanirnar geti þjappað Evrópu og Kína betur saman Börn fá gefins Barnabónus með helstu nauðsynjun Árni Oddur tekur við formennsku Starfsmenn ríkisins þiggja boð ríkisins Bein útsending: SFF dagurinn - Breyttur heimur ÍL-sjóður: LV gengur að tilboði ríkisins Ísland brotlegt í pitsaostamálinu Hitastigið í hagkerfinu hærra en áður var talið Enn ein eldrauð opnun Fjögur ráðin í nýtt gagna- og gervigreindarteymi Varist Sjá meira