Segir mikilvægt að byggja nýja flugstöð í Skerjafirðinum Höskuldur Kári Schram skrifar 16. mars 2013 12:54
Ögmundur Jónasson, innanríkisráðherra, segir mikilvægt að byggja nýja flugstöð í Skerjafirðinum fyrir innanlandsflug. Hann telur að ekki séu til peningar til að flytja flugvöllinn upp á Hólmsheiði. Reykjavíkurborg gekk á fimmtudag frá samkomulagi um kaup á 112 þúsund fermetra byggingarlandi á miðjum flugvellinum í Vatnsmýri. Landið er í eigu ríkisins en einni flugbraut verður lokað og til stendur að byggja 800 íbúðir á svæðinu. Kristján Þór Júlíusson, þingmaður Sjálfstæðisflokks, gagnrýndi þetta samkomulag á Alþingi í gær, en hann vill að Ögmundur Jónasson innanríkisráðherra beiti sér í málinu. Uppbyggingin á svæðinu fer ekki af stað fyrr en innanríkisráðuneytið hefur formlega tilkynnt um lokun flugbrautarinnar. Samkomulag þessa efnis liggur ekki fyrir. Ögmundur hefur áður lýst því yfir að hann sé mótfallinn þeirri hugmynd að flugvöllurinn verði fluttur úr Vatnsmýrinni upp á Hólmsheiði. „Við höfum átt í viðræðum við Reykjavíkurborg um aðstöðu fyrir innanlandsflugið á Reykjavíkurflugvelli. Ég hef reyndar lagt áherslu á þetta allar götur síðan ég kom inn í ráðuneytið 2010. Þetta mál hefur verið í öngstræti lengi og það væri óskandi að við kæmumst út úr því öngstræti en þá þurfum við líka binda ýmsa spotta sem eru óhnýttir í þessu máli. og við höldum áfram viðræðum við Reykjavíkurborg," segir Ögmundu sem bætir við að það séu ekki til peningar til að flytja Reykjavíkurflugvöll upp á Hólmsheiði.
Mest lesið Árni Grétar Futuregrapher látinn Innlent Gefur lítið fyrir áform ríkisstjórnarinnar Innlent Eina sýklalyf sinnar tegundar tvöfaldast í verði Innlent Mikilvægt að andlát Hjalta yrði einhverjum til gagns Innlent Húsráðandi bað lögreglu um að vísa fimmtíu úr samkvæmi Innlent Einn hinna látnu í New Orleans tengdur konungsfjölskyldunni Erlent „Þetta er bara forkastanlegt“ Innlent Allir séu meðvitaðir um ábyrgðina sem fylgi setu í ríkisstjórn Innlent „Evrópusuðið“ hverfi ekki með þjóðaratkvæðagreiðslu Innlent Hafnar því alfarið að læknar séu snuðaðir á Suðurlandi Innlent Fleiri fréttir Gott sparnaðarráð fyrir ríkisstjórnina að leggja niður ÁTVR Styttist í lokun flugvallar sem tengist flugsögu Íslendinga Lentu með veikan farþega í Keflavík 12 milljarða vinnsluhús byggt fyrir lax í Þorlákshöfn „Þetta er bara forkastanlegt“ Mikilvægt að andlát Hjalta yrði einhverjum til gagns „Tifandi tímasprengja“ á Suðurlandi og stökkbreyting áfengissölu Sviptur á staðnum fyrir ofsaakstur á 30-götu Gefur lítið fyrir áform ríkisstjórnarinnar Biden hyggst senda hergögn að virði átta milljarða til Ísraels Allir séu meðvitaðir um ábyrgðina sem fylgi setu í ríkisstjórn Starf framkvæmdastjóra Mannréttindastofnunar auglýst „Bóndinn á svæðinu er nú ofboðslega rólegur yfir þessu“ Hafnar því alfarið að læknar séu snuðaðir á Suðurlandi Leigubílstjóri á Fljótsdalshéraði safnar jólatrjám Akureyringar eins og beljur að vori „Evrópusuðið“ hverfi ekki með þjóðaratkvæðagreiðslu HSU svarar áhyggjufullum læknum Árni Grétar Futuregrapher látinn Eina sýklalyf sinnar tegundar tvöfaldast í verði Kalt en bjart um helgina Húsráðandi bað lögreglu um að vísa fimmtíu úr samkvæmi „Það er eins og Snæfellsnesið sé komið í gang“ Óttast að Suðurlandið verði að „eyðimörk“ í náinni framtíð Hættuástand í heilbrigðisþjónustu og óróapúls Skilur ekki tilgang milljóna króna auglýsingar Netsamband komið aftur á í Árbæ Inflúensugreiningar tvöfölduðust milli vikna Sparnaðartillögum snjóar inn: Leggja niður RÚV, loka sendiráðum og hætta að styrkja flokkana Bílvelta á Suðurlandi Sjá meira