Viðskipti innlent

Segir niðurstöðu FME vonbrigði og boðar til blaðmannafundar

Víglundur Þorsteinsson.
Víglundur Þorsteinsson.
„Ég lýsi yfir vonbrigðum mínum með niðurstöðu Fjármálaeftirlitsins (FME) á athugun sem eftirlitið gerði í kjölfar kæru minnar á meðferð skuldamála BM VALLÁ hf. hjá Arionbanka" segir Víglundur Þorsteinsson í yfirlýsingu sem hann sendi á fjölmiðla fyrir skömmu vegna niðurstöðu FME um að engin aftökulisti væri til.

Fjármálaeftilitið gerir að auki ekki athugasemdir við það hvernig Arion banki háttaði tilraunum við endurskipulagningu og síðar gjaldþrot B.M. Vallá hf, sem Víglundur var forstjóri hjá.

Svo segir í yfirlýsingu Víglundar: „Miðað við tilkynningu FME er ljóst að hin svokallaða athugun eftirlitsins hefur verið yfirborðskennd og fjarri þeirri rannsókn sem stofnuninni bar að framkvæma.

Þessi vinnubrögð hefðu ekki átt að koma mér á óvart því þau er í fullu samræmi við vinnulag FME á undanförnum árum, sem hefur fremur snúist um að gæta hagsmuna fjármálafyrirtækjanna en viðskiptavina þeirra."

Víglundur hélt mikinn blaðmannafund þar sem hann fór yfir ásakanir sínar gagnvart Arion banka á sínum tíma. Þar hélt hann einmitt fram að einhverskonar aftökulisti hefði verið notaður, en þar er átt við lista með fyrirtækjum sem átti að keyra í þrot. Víglundur er þó ekki af baki dottinn, hann hyggst halda annan blaðmannafund, þar sem hann hyggst birta áður óbirt gögn í málinu. Eða eins og segir í tilkynningunni:

„Í næstu viku mun ég boða til blaðamannafundar og sýna þar áður óbirt gögn, máli mínu til frekari stuðnings. Tilkynning um þann fund verður send út þriðjudaginn 4. desember næstkomandi."






Fleiri fréttir

Sjá meira


×