Innlent

Segir olíuskatta ýta undir að frekar verði borað Noregsmegin

Kristján Már Unnarsson skrifar
Olíuleitarstjóri Valiant telur íslenska olíuskatta fæla olíufélög frá Drekasvæðinu og geti valdið því að frekar verði borað Noregsmegin. Atvinnuvegaráðherra telur enga ástæðu til að lækka skattana.

Sem leitarstjóri Valiant er Norðmaðurinn Terje Hagevang í lykilstöðu þegar ákveðið er hvar og hvenær er borað og hann segir freistandi að byrja frekar Noregsmegin á Jan Mayen-svæðinu. Í viðtali í Klinkinu á Vísi segir hann ástæðuna vera hagstæðara skattakerfi í Noregi.

Hann telur að þótt íslensk stjórnvöld hafi lagfært olíuskattakerfið fyrir síðasta útboð hafi ekki verið gengið nógu langt, og það eigi þátt í dræmri þátttöku olíufélaga í útboðinu. Vega þurfi upp erfiðar aðstæður á Jan Mayen-svæðinu með lægri sköttum.

Þegar Steingrímur J. Sigfússon atvinnuvegaráðherra, sem ráðherra olíumála, var spurður hvort til greina komi að endurskoða skatta á olíuvinnslu tók hann treglega undir slíkt. Viðbrögð ráðherrans má sjá í meðfylgjandi frétt á Stöð 2.

Á ráðstefnu um Drekasvæðið í Reykjavík í nóvember síðastliðnum lýsti Vala Valtýsdóttir, sviðsstjóri hjá Deloitte, sömu áhyggjum og Terje Hagevang. Hún sagði að norska ríkið endurgreiddi allt að 78 prósent af kostnaði vegna leitar og rannsókna og taldi að Íslendingar gætu því séð boranir hefjast Noregsmegin en ekki Íslandsmegin.

„Ef fyrirtæki telja að það sé jafnmikill séns að finna olíu Íslandsmegin og Noregsmegin þá getur maður séð að fyrirtæki myndu frekar fara Noregsmegin út af þessum endurgreiðslureglum," sagði Vala í viðtali á Stöð 2.


Tengdar fréttir

Leitin skapar fjölda starfa þótt engin olía finnist

Olíuleit við Ísland mun skila verulegum fjölda starfa, jafnvel þótt engin olía finnist. Endurgreiðslur norska ríkisins vegna olíuleitar gætu hins vegar freistað olíufélaga til að bora fremur Noregsmegin á Jan Mayen-svæðinu. Þetta kom fram á ráðstefnu í Reykjavík í dag. Ert þú klár í olíufund?




Fleiri fréttir

Sjá meira


×