Innlent

Segir Sjálfstæðisflokknum stjórnað með baktjaldamakki

Jón Hákon Halldórsson skrifar
Helgi Magnússon, stjórnarformaður Lífeyrissjóðs verzlunarmanna, deilir hart á forystu Sjálfstæðisflokksins í grein sem birtist í Fréttablaðinu í dag. Þar gerir hann umræðu um Evrópusambandið og aðildarviðræður við sambandið að umfjöllunarefni.

Hann vísar í orð Bjarna heitins Benediktssonar, fyrrverandi forsætisráðherra, þegar deilt var um aðild Íslands að EFTA samkomulaginu. „En eðlilegt er, að almenningur spyrji: Ef aðrir, þeir sem okkur eru líkastir að menningu og efnahag, hafa svo góða reynslu, hví skyldum við þá óttast, að reynsla okkar yrði önnur og lakari?" sagði Bjarni árið 1969.

Helgi Magnússon segir að núverandi, réttkjörnir forystumenn Sjálfstæðisflokksins, verði að taka þessi orð til sín. „Mikið hefur verið rætt að undanförnu um formannsskipti í ríkisstjórnarflokkunum og að með þeim megi vænta uppbyggilegri vinnubragða í kjölfar kynslóðaskipta. Ætli Sjálfstæðisflokkurinn að njóta góðs af því að kjósendur kalli eftir nýjum forystumönnum af kynslóð þeirra sem eru kringum fertugt verður forystan að taka til sín þau völd sem henni hafa verið fengin með lögmætum hætti. Þá getur hún ekki lengur unað við það að standa í skugga þeirra sem tilheyra veröld sem var og seilast enn eftir völdum og áhrifum sem þeir höfðu í ríkum mæli á árum áður," segir Helgi. Hann segir að Sjálfstæðisflokkinn virðist vanta dug til að taka djarfar og farsælar ákvarðanir eins og voru einkennandi fyrir stjórnmálamenn sem þorðu að leiða þjóðina inn í Sameinuðu þjóðirnar, NATO, EFTA og EES. Þau skref hafa reynst gæfuspor fyrir landsmenn.

„Til þess að vel takist til í hópum og flokkum þarf forystumenn með kjark, góða dómgreind og víðsýni á við Bjarna heitinn Benediktsson forsætisráðherra sem vitnað var til hér í upphafi. Það heyrðust úrtöluraddir á landsfundinum árið 1969 og einangrunarsinnar vildu forðast samstarf við útlendinga - alveg eins og nú er. En þá leiddi forystan flokkinn til réttra ákvarðana og kvað niður útlendingahræðslu og minnimáttarkennd," segir Helgi.

„Sjálfstæðisflokkurinn á því miður ekki slíkum leiðtogum á að skipa nú um stundir. Gildir þá einu hvort átt er við réttkjörna forystumenn eða hina sem ráða flokknum að tjaldabaki," bætir hann við.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×