Sigruðu í LEGO-hönnunarkeppninni Sunna Kristín Hilmarsdóttir skrifar 31. janúar 2015 17:47 Sigurlið keppninnar með LEGO-bikarinn. Mynd/Háskóli Íslands
Liðið Einn + níu úr Grunnskóla Reyðarfjarðar sigraði í dag í tækni-og hönnunarkeppni grunnskólanema, FIRST LEGO League. Þar með tryggði liðið sér þátttökurétt á heimsmeistaramóti FIRST LEGO League í St. Louis í Bandaríkjunum í vor. Alls tóku 18 lið víðs vegar af landinu þátt í keppninni sem fór fram í Háskólabíói. Í hverju liði voru á bilinu 6-10 manns á aldrinum 9-16 ára og voru þátttakendur því hátt í 200 talsins. Þema keppninnar í ár var „Skóli framtíðarinnar“ og þurftu keppendur meðal annars að forrita vélmenni úr tölvustýrðu Mindstorms-legói til að leysa tiltekna þraut sem tengdist þemanu. Þegar stigin í keppninni höfðu verið talin reyndist liðið Einn + níu sigurvegari. Í viðurkenningarskyni fyrir sigurinn hlaut liðið forláta LEGO-bikar og 150 þúsund króna úttekt frá aðalbakhjarli keppninnar, Nýherja, auk áðurnefnds þátttökuréttar í Bandaríkjunum. Þá voru einnig veitt verðlaun í eftirfarandi flokkum:Besta dagbókin: Gemsarnir úr Grunnskóla Hornafjarðar.Besta lausn í hönnun og forritun vélmennis: LegóFásk úr Gunnskóla Fáskrúðsfjarðar.Vélmennakapphlaup: Lið Breiðholtsskóla.Besta rannsóknaverkefnið: Nafnlausar úr Brúarásskóla á Fljótsdalshéraði.
Mest lesið Vaktin: Bílaplanið þakið hrauni Innlent Sigmundur hafi viljað í kennslustund með nemendum Innlent Bættu krakkpípu við styttu Nínu Sæmundsson í Los Angeles Erlent Kosningavaktin: Íslendingar ganga að kjörborðinu Innlent Gætu kosið strategískt þegar svo margir flokkar eru á mörkunum Innlent Telur Bláa lónið öruggt vegna varnargarðanna Innlent Endalok goshrinunnar teygist inn á mitt næsta ár Innlent „Þetta var bara besta stund kosningabaráttunnar til þessa“ Innlent Funda áfram hjá sáttasemjara á morgun Innlent „Fólki er frekar misboðið“ Innlent Fleiri fréttir Sigmundur hafi viljað í kennslustund með nemendum Gætu kosið strategískt þegar svo margir flokkar eru á mörkunum Funda áfram hjá sáttasemjara á morgun „Fólki er frekar misboðið“ Gosið gætið varað í nokkrar vikur Endalok goshrinunnar teygist inn á mitt næsta ár Bílaplan á bólakafi, könnun og frambjóðanda misboðið Höfðu ekki áhyggjur af lóninu sjálfu Skilorðsbundinn dómur yfir strætóbílstjóra staðfestur Veit ekki hver getur tekið við gögnunum Refsing Jaguars þyngd verulega Sjálfstæðisflokkur og Miðflokkur takist á í bergmálshelli Samið um sjálfstæða leikskóla í Reykjavík Vilja byggja vísindasetur fyrir almenning í Háskólabíói Útlit fyrir að varnir Bláa lónsins haldi Hart tekist á um fyrirætlanir Heidelberg í Þorlákshöfn Bein útsending: Hver er sýn flokkanna á lífskjör eldra fólks? Verkföll boðuð í fjórum grunnskólum í janúar „Þetta var bara besta stund kosningabaráttunnar til þessa“ Komust langt að gosinu því það gleymdist að loka veginum Nýsköpun eða „rándýr aðgangur“?: 300.000 króna heilskimun aftur á boðstólnum Telur Bláa lónið öruggt vegna varnargarðanna Káfaði á konu á salerni skemmtistaðar Segir komið fram við sig eins og glæpamann fyrir að vilja vera heima í Grindavík „Ekki rólegur með hraunið ofan á“ Samfylkingin bætir við sig í fyrsta sinn síðan í maí og Píratar úti Varar við sprengjum á svæðinu við gosstöðvarnar Glóðvolg könnun og hraun rennur enn á ný Gandri fær grænt ljós Magnaðar myndir sýna Grindavíkurveg undir hrauni Sjá meira