Innlent

Síminn kærður til lögreglu - njósnuðu um viðskiptavini Nova

SB skrifar
Sævar Þráinsson, forstjóri Símans.
Sævar Þráinsson, forstjóri Símans.

Síminn safnaði viðkvæmum persónuupplýsingum um þúsundir viðskiptavina annarra fjarskiptafyrirtækja. Persónuvernd hefur kært Símann til lögreglunnar. Samkeppniseftirlitið gerði húsleitir hjá Símanum og fundust listar með upplýsingum um mörg þúsund viðskiptavini annarra fjarskiptafyrirtækja.

Á listunum koma fram heimilisföng, kennitölur og jafnvel starfsheiti viðskiptavina annarra fjarskiptafyrirtækja. Í úrskurði Persónuverndar sem sjá má á heimasíðu stofnunarinnar er sérstaklega talað um Nova og að markmið Símans hafi verið að ná svokölluðum "stórnotendum" frá fyrirtækinu. Á listunum eru upplýsingar um fjölda símtala hvers og eins, lengd símtala í sekúndum og lengd meðalsímtala fólks.

Nova kvartaði til Samkeppniseftirlitsins gruns um markaðsmisnotkunar. Framkvæmd var húsleit í höfuðstöðvum Símans og sagði þá Sævar Þráinsson, forstjóri Símans, að starfsfólki væri brugðið.

„Við erum 104 ára gamalt fyrirtæki og leggjum mikla áherslu á að fara eftir lögum og reglum," sagði Sævar.

Viðurkenna brot

„Gögn málsins gefa til kynna að Síminn hafi gripið til umfangsmikilla markaðsaðgerða sem beindust að öðrum fjarskiptafyrirtækjum. Tilgangurinn var markvisst sá að ná frá félögunum mikilvægum viðskiptavinum með óeðlilegri notkun á trúnaðarupplýsingum sem ekki ber að nota í markaðslegum tilgangi. Síminn hefur viðurkennt að umrædd notkun á framangreindum upplýsingum hafi ekki verið lögum samkvæmt," segir í úrskurði Persónuverndar.

Bæði Samkeppniseftirlitið og Póst og fjarskiptastofnun hafa haft málið til umfjöllunar og vísaði Póst og fjarskiptastofnun hluta málsins til Persónuverndar. Í úrskurðinum kemur fram að Póst og fjarskiptastofnun hafni "veikburða og fjarstæðukenndum málatilbúnaði Símans" í málinu.

Persónuvernd kemst að þeirri niðurstöðu að "sú aðgerð Símans að nota samtengiupplýsingar um aðra viðskiptavini en sína eigin, og samkeyra þær við aðrar skrár til að búa til lista til nota í markaðslegum og fjárhagslegum tilgangi, var heimildarlaus og braut gegn ákvæðum laga nr. 77/200".

Persónuvernd ákveður því að kæra málið til lögreglu.


















Fleiri fréttir

Sjá meira


×