Síminn segir netöryggi landsmanna ekki hafa verið ógnað Kristján Hjálmarsson skrifar 23. desember 2013 12:37
Bandaríska fyrirtækið Cisco hefur staðfest að bilun í hugbúnaði hafi verið orsök þess að netumferð fór ranglega um kerfi Símans í Montreal á leið sinni á áfangastað. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Símanum.Fram kom á Vísi í lok nóvember að netvöktunarfyrirtækinu Renesys, sem fylgist með umferð á netinu út um allan heim, hafi haldið því fram að gagnastreymi á netinu hefði verið „rænt“ nokkrum sinnum á árinu og því beint í gegnum Ísland og Hvíta-Rússland. Þar kom fram að ræningjarnir hefðu beint sjónum sínum að ákveðnum borgum og voru þeir taldir hafa verið til að safna upplýsingum af fjárhagslegum toga. Nú hefur hins vegar annað komið í ljós, að því er segir í tilkynningu Símans „Orsakagreining Cisco (e. Root Cause Analysis) staðfestir að engin merki eru um að gögnin hafi verið misnotuð við þessa röngu hegðun í hugbúnaðinum nú síðsumars. Netöryggi Íslendinga eða annarra var því ekki ógnað þótt umferðin hafi farið um kerfi Símans,“ segir í tilkynningunni. Ástæða bilunarinnar greindist eftir ítarlega orsakagreiningu á búnaðinum. „Bilunin varð uppspretta vangaveltna í erlendum og íslenskum netmiðlum um að gögnin hefðu hugsanlega verið misnotuð og vísvitandi beint á rangan aðila. Eins og Síminn greindi þá frá var slíku ekki til að dreifa og ekkert benti til þess að um viljaverk hefði verið að ræða. Með orsakagreiningu Cisco er það staðfest. Endanlega var komist fyrir bilunina þann 22. ágúst sl. þegar hugbúnaðurinn var uppfærður. Síminn ítrekar að netöryggi Íslendinga eða annarra var ekki ógnað við bilunina,“ segir í tilkynningunni frá Símanum.
Mest lesið Finna meira gull á Grænlandi Viðskipti innlent Sér ljós við enda ganganna: „Kannski þurfti svona stóra truflun til“ Viðskipti innlent Segir mikla vinnu í gangi vegna lánamála Viðskipti innlent Sérlausn fyrir fluglosun virðist ekki hafa verið auglýst Viðskipti innlent Jónas Már til Réttar Viðskipti innlent Umfangsmiklar uppsagnir hjá Amazon Viðskipti erlent „Ekki bara smá eyða, þetta er risastórt gat“ Viðskipti innlent Mun leiða svið markaðsmála og þjónustuupplifunar hjá Advania Viðskipti innlent „Það verða fjöldagjaldþrot“ Viðskipti innlent Hætt við að vextir hækki Viðskipti innlent Fleiri fréttir Sérlausn fyrir fluglosun virðist ekki hafa verið auglýst Segir mikla vinnu í gangi vegna lánamála Sér ljós við enda ganganna: „Kannski þurfti svona stóra truflun til“ Mun leiða svið markaðsmála og þjónustuupplifunar hjá Advania Finna meira gull á Grænlandi Jónas Már til Réttar „Ekki bara smá eyða, þetta er risastórt gat“ Hætt við að vextir hækki „Niðursveifla í byggingariðnaði er hafin“ Niðurstaða í máli Arion banka um miðjan desember Hafi áhrif á innan við tíu prósent fyrstu kaupenda Ráðin framkvæmdastjóri Sólar ehf. Tilkynntu Terra og Kubb eftir fundi með sveitarfélögum Línur gætu skýrst hjá Norðuráli í næstu viku Síldarvinnslan birtir jákvæða afkomuviðvörun „Það verða fjöldagjaldþrot“ Veitingamenn uggandi yfir erfiðum rekstrarskilyrðum Meirihluti vill afnema áminningarskyldu Byrjaði 18 ára í þjónustuverinu og hættir nú sem framkvæmdastjóri Öll lónin full og vatnsbúskapur tók stökkbreytingum Tekjur Isavia jukust um tæpa 1,2 milljarða króna milli ára Þrjú kvár stýra fyrirtækjum Hyggjast opna lágvöruverslun og Orkustöð á Blönduósi Landsbankinn breytir framboði á lánum eftir vaxtadóminn Ljóst að kaupverð á íbúðum í Vesturbugt verði í hærri kantinum „Atvinnulífið er sannarlega að kólna“ Landsbankinn hagnast um tæpa 30 milljarða á níu mánuðum Síminn kaupir Motus og Pei Sjóvá hagnast um 666 milljónir það sem af er ári Húsleit hjá Terra Sjá meira