Innlent

Skólagjöld hækka um 25 prósent

Boði Logason skrifar
Skólagjöld hækka úr 60 þúsund krónum í 75 þúsund krónur í öllum ríkisreknum háskólum.
Skólagjöld hækka úr 60 þúsund krónum í 75 þúsund krónur í öllum ríkisreknum háskólum. Mynd/365
Framlag íslenska ríkisins til Háskóla Íslands á næsta ári lækkar um 321,8 milljónir króna og skólagjöld verða hækkuð úr 60 þúsund krónum í 75 þúsund krónur.

Í fjárlagafrumvarpinu fyrir árið 2014 kemur fram að áætlað sé að hækka framlag ríkisins í Aldarafmælissjóð Háskóla Íslands um 300 milljónir, í samræmi við ákvörðun ríkisstjórnarinnar í október 2011.

Þá verði lögð til áframhaldandi tímabundin fjárheimild vegna byggingar Húss Vigdísar Finnbogadóttur, 75 milljónir. Samtals hefur ríkið þá lagt 200 milljónir í byggingu hússins, sem áætlað er að kosti 1,4 milljarða. Styrktaraðilar og Happdrætti háskólans sjá um rest.

Þá segir að gert sé ráð fyrir að ríkistekjur aukist um 137,3 milljónir króna og að greiðsla úr ríkissjóði lækki á móti sömu fjárhæð.

„Þetta er í samræmi við áform um að háskólunum verði heimilað að hækka skrásetningargjald,“ segir í frumvarpinu. 

Miðað er við að gjaldið verði 75 þúsund krónur, en var áður 60 þúsund krónur. „Þessi breyting er í samræmi við greiningu opinberu háskólanna á kostnaði.“

Gert ráð fyrir að bæði ríkistekjur af skrásetningargjaldinu og útgjöldum sem þeim er ætlað að standa undir hækki um 39,2 milljónir vegna 3.300 fleiri reiknaðra ársnemenda en lagðir eru til grundvallar kennsluframlagi.

Framlag til Háskólans á Akureyri lækkar um 22,7 milljónir á milli ára, Landbúnaðarháskóla Íslands um 24,5 milljónir, Háskólans á Hólum um 35,8 milljónir, Háskólans á Bifröst um 83,4 milljónir, Háskólans í Reykjavík um 43 milljónir og Listaháskóla Íslands um 9,2 milljónir.

Allar þessar lækkanir eru að frátöldum launa- og verðlagshækkunum. 


Tengdar fréttir

Landspítalinn fær enga innspýtingu - fé til tækjakaupa skorið niður

Tímabundið 600 milljóna króna framlag til spítalans vegna tækjakaupa er fellt niður. Hagræðingarkrafa á spítalann felur í sér hækkun á sértekjum sem verður náð með nýju legugjaldi. Um er að ræða nýtt gjald þar sem sjúklingar greiða 1.200 krónur fyrir hvern sólarhring sem þeir dvelja á Landspítalanum. Með þessu nýja gjaldi er spítalanum reiknaðar um 200 milljónir í sértekjur.

Mikilvægt að stöðva skuldasöfnun ríkissjóðs

Bjarni Benediktsson fjármálaráðherra segir gríðarlega mikilvægt að stefna að hallalausum fjárlögum til að stöðva skuldasöfnun ríkissjóðs. Bankaskatturinn verður notaður til að lækka skatta á fyrirtæki og heimili.

Stefna á hallalaus fjárlög

Gert er ráð fyrir því að ríkissjóður skili tæplega 500 milljón króna afgangi á næsta ári miðað við fjárlagafrumvarp ríkisstjórnarinnar sem var kynnt í morgun. Þetta eru fyrstu hallalausu fjárlögin frá hruni.

Kaldar kveðjur í fjárlögum

Árni Páll Árnason formaður Samfylkingarinnar segir fjárlögin sýna forgangsröðun nýrrar ríkisstjórnar.

Barna- og vaxtabætur lækka

Samkvæmt fjárlagafrumvarpinu er áætlað að barnabætur á næsta ári verði 10.2 milljarðar króna en á í fjárlögum þessa árs voru þær tæpir 10.8 milljarðar króna.

Tóbak og áfengi hækka í verði

Tóbaksgjald og gjald á áfengi verður hækkað, samkvæmt lagabreytingu sem verður lögð fyrir Alþingi í næstu viku.

Heilbrigðisstofnanir á landsbyggðinni sameinaðar

Kristján Már Júlíusson heilbrigðisráðherra hefur ákveðið að heilbrigðisstofnanir á landsbyggðinni verði sameinaðar. Þetta kemur fram í frumvarpi til fjárlaga fyrir árið 2014. Eftir sameiningu stofnana verður ein stofnun í hverju heilbrigðisumdæmi, eins og lög um heilbrigðisþjónustu gera ráð fyrir. Þetta á við um Norðurland, Suðurland og Vestfirði.

Milljónir í eflingu löggæslu

Gert er ráð fyrir 500 milljón króna viðvarandi framlagi til að efla löggæsluna í landinu. Á sama tíma er gert ráð fyrir að 200 milljón króna framlag sem veitt var tímabundið til löggæslumála í fjárlögum 2013 verði fellt niður.

Tekjuskattur lækkar

Skatthlutfallið í miðþrepi tekjuskatts verður lækkað um 0,8 prósentustig samkvæmt fjárlagafrumvarpi ríkisstjórnarinnar. Skatthlutfallið lækkar úr 25,8% í 25%.

Hætt við stækkun FSU

Heildarfjárveiting íslenska ríkisins til framhaldsskóla á Íslandi lækkar um rúmlega 1,5 milljarð króna í fjárlögum síðasta árs. Þar af eru almennar launa- og verðlagsbreytingar 645 milljónir króna.

100 milljónir til hönnunar sjúkrahótels

Nýr Landspítali er ekki fyrirferðarmikill í nýju frumvarpi til fjárlaga. Til hans eru lagðar 100 milljónir króna til fullnaðarhönnunar á sjúkrahóteli.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×