Körfubolti

Skoraði 60 stig úr þriggja stiga skotum

Magnús í leik gegn KR.
Magnús í leik gegn KR.
Magnús Þór Gunnarsson er ein mesta skytta í sögu íslensks körfubolta og það sannaði hann rækilega í dag.

Magnús gerði sér þá lítið fyrir og skoraði 60 stig í leik. Það sem meira er þá komu öll stigin úr þriggja stiga skotum.

Magnús setti niður 20 þriggja stiga körfur í 35 tilraunum í leik Keflavík B og Skallagríms B. Keflavík vann leikinn 113-59.

Magnús er að koma sér í gang eftir meiðsli og virðist vera á nokkuð góðu róli miðað við þessa frammistöðu.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×