Innlent

Skurðir á kynfærum hryssu - lögreglan kölluð til

Erla Hlynsdóttir skrifar
Mynd úr safni Getty
Lögð hefur verið fram kæra til lögreglunnar á Egilsstöðum um meint dýraníð eftir að áverkar, sem taldir eru af völdum eggvopns, fundust á innanverðum kynfærum hryssu. Þetta staðfestir Hjörtur Magnason, héraðsdýralæknir á Egilsstöðum.

Um er að ræða tvo skurði í skeið hryssunnar, eins og sjö sentimetra langa. Ekki hafa komið fram vísbendingar um hver var þarna að verki.

Héraðsdýralæknir var kallaður til á sunnudag eftir að hestamaður varð var við grunsamlega áverka og óeðlilega blæðingu úr skeið hryssu.

„Manni bregður nú við að sjá svona," segir Hjörtur.

Hestamaðurinn var í útreiðartúr á svæðinu ásamt eiginkonu sinni þegar hann tók eftir blóðblettum aftan á lærum umræddrar hryssu. Eftir komu í hesthús skoðaði hann blettina, lyfti taglinu og uppgötvaði þá blæðingu úr skeiðinni. Við nánari athugun kom í ljós skurður í neðra skeiðaropi og einhvers konar búlga innar í skeið. Hafði viðkomandi þá samband við héraðsdýralækni.

„Ég á mjög erfitt með að sjá hvernig þessir áverkar gætu verið af völdum hryssunnar sjálfrar eða annarra dýra," segir Hjörtur og telur því að ekki sé um annað en mannaverk að ræða.

Lögregla var kölluð til og tók myndir af áverkum. Hjörtur telur að á þeim tíma hafi áverkarnir verið á bilinu 8 til 24 klukkustunda gamlir.

„Ég legg til í skýrslu að þetta verði skráð sem meint dýraníð," segir Hjörtur. Enginn liggur undir grun um verknaðinn.

Hjörtur hefur aldrei séð viðlíka áverka á hestum en segist hafa heyrt um það þegar hann var við nám í Svíþjóð að dæmi væri um að fólk misþyrmdi dýrum illilega, og þá jafnvel með eggvopni.



Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×