Erlent

Sleikjó með brjóstamjólkurbragði

Mynd tengist frétt ekki beint
Mynd tengist frétt ekki beint Mynd/getty

Bandarískt fyrirtæki hefur nú sett sleikibrjóstsykur með brjóstamjólkur-bragði.

Fyrirtækið, sem heitir Lollyphile, vonast til að sleikjóinn eigi eftir að slá í gegn hjá yngri kynslóðinni - sem og þeirri eldri.

Það er þó ekki alvöru brjóstamjólk sem notuð er í framleiðsluna heldur hefur fyrirtækið þróað efni sem bragðast nánast alveg eins og brjóstamjólk.

„Fólki á annað hvort eftir að finnast þetta snilld eða ógeðslegt. Ég vil þó spyrja þá síðarnefndu: Afhverju er brjóstamjólk ógeðsleg en kúamjólk ekki?“

Stykkið kostar 10 dollara, eða um 1200 krónur.

Sjá má heimasíðu fyrirtækisins hér.

Þessi mynd er tekin af heimasíðu fyrirtækisins, en á henni er ungur drengur að borða sleikjó með brjóstamjólkurbragði. Einhverjir segja: Nammi, nammi en aðrir segja Ojj.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×