Innlent

Sparnaður fyrir borgina - stóraukin kostnaður fyrir íbúa

Andri Ólafsson skrifar

Fjögurra milljón króna sparnaður sem Reykjavíkurborg fær fram með því að loka enduvinnslustöð á Kjalarnesi hefur í för með sér 8 milljón króna kostnað fyrir íbúa á svæðinu. Ekki klók stjórnsýsla segir formaður íbúasamtaka.

Þrjá daga í viku endurvinnslustöðin á Kjalarnesi opin og tekur við sorpi og flokkuðum úrgangi frá Kjalnesingum. Stjórn Sorpu hefur í hagræðingarskyni ákveðið að loka stöðinni en mönnum telst til að þannig náist fram sparnaður upp á um fjórar milljónir á ári.

En hvert eiga kjalnesingar þá að fara með flokkaðan úrgang, sem er um 130 tonn á ári. Það eru 15 kílómetrar í næsta losunarstað í Mosfellsbæ og því 30 kílómetra ferðalag fyrir þá sem vilja skila af sér flokkuðum úrgangi á réttan stað.

Ef miðað er við að hver íbúi taki með sér 40 kíló í hverri ferð þurfa kjalnesingar að fara eitthvað á bilinu 2500-3000 ferðir til Mosfellsbæjar og tilbaka á ári. Það á eftir að kosta íbúana alls á áttundu milljón í aksturskostnaði miðað við útreikninga íbúasamtakanna.

Formaður þeirra segir þetta ekki dæmi um klóka stjórnsýslu, auk þess sem það sé óumhverfisvænt að ætlast til að fólk keyri langar leiðir með flokkaðan úrgang.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×