Spilling og græðgi

Fréttablaðið Fastir pennar 22. desember 2011 11:00
Þórður Snær Júlíusson.
Þórður Snær Júlíusson.
Þórður Snær júlíusson skrifar:
Björn Jón Bragason skrifaði nýverið grein um einkavæðingu Búnaðarbankans í tímaritið Sögu. Þar rekur hann gamalkunnan sannleik um þá fordæmalausu spillingu sem fylgdi þeim gjörningi af nokkurri dýpt. Tvennt í grein Björns vekur mikla athygli: samantekt hans á því hvað hinir ýmsu menn sem tengdust S-hópnum högnuðust gríðarlega í kjölfar einkavæðingarinnar og fullyrðingar um að sameining bankans og Kaupþings hafi verið skipulögð nokkrum mánuðum áður en ríkið seldi hlut sinn.

Í grein Björns er sagt frá þeim ummælum Páls Magnússonar, sem var aðstoðarmaður bankamálaráðherra, að Þorsteinn Már Baldvinsson, einn bjóðenda, væri „orðinn nógu ríkur" og fengi því ekki að kaupa bankann. Ýmsir aðrir menn, með mikil tengsl við Framsóknarflokkinn, voru hins vegar ekki orðnir nógu ríkir. Sérstaklega ekki þeir sem voru í hinum svokallaða S-hópi, en að honum stóðu eignarhaldsfélögin Samvinnutryggingar, Egla, Ker og VÍS.

Eignarhaldsfélag Samvinnutrygginga var félag utan um eigur tryggingataka sem hópur framsóknarmanna tók að sér að nýta í eigin viðskiptapólitík. Félagið var keyrt í gegnum nauðasamninga eftir bankahrun eftir að hafa tapað öllum peningum tryggingatakanna, að mestu í viðskiptasnúningum með Kaupþingi.

Kjalar, félag Ólafs Ólafssonar, eignaðist á endanum Eglu og Ker. Björn rekur í grein sinni að Kjalar hafi átt eignir upp á 3,2 milljarða króna í árslok 2003, en 85 milljarða króna tveimur árum síðar. Finnur Ingólfsson varð forstjóri VÍS nokkrum mánuðum fyrir einkavæðingu Búnaðarbankans. Stuttu áður hafði VÍS verið keypt af fjölskyldufélagi Halldórs Ásgrímssonar og Kaupfélagi Skagfirðinga, sem hefur rík tengsl við Framsóknarflokkinn. Seljandinn var ríkisbanki. Þau viðskipti skiluðu milljarða króna hagnaði á endanum. Í grein Björns segir að „fram að einkavæðingu Búnaðarbankans hafði Finnur Ingólfsson ekki komið nærri íslensku viðskiptalífi að neinu marki, en hann hafði gegnt stöðu þingmanns og ráðherra árum saman […] Finnur keypti fjórum sinnum hluti í Kaupþingi frá 20. ágúst 2003 fram til 3. ágúst 2004 […]. Samtals keypti hann hluti að nafnvirði 3.783.000, en það voru um 800 milljónir króna að raunvirði á þeim tíma. Ekki liggur fyrir hvernig hann fjármagnaði þessi kaup".

Björn segir líka frá því að svo virðist sem sameining Kaupþings við Búnaðarbankann hafi verið „hönnuð" á leynifundum mörgum mánuðum áður en einkavæðingin gekk í gegn. Þá fundi sátu, að sögn Björns, Finnur Ingólfsson, Sigurður Einarsson og Ólafur Ólafsson. Landsbankastjórinn fyrrverandi, Sigurjón Þ. Árnason, sagði við rannsóknarnefnd Alþingis að við sameininguna hefðu Kaupþingsmenn fengið það sem þeir þurftu; „lánshæfismat og viðskiptabankagrunn á Íslandi." Afleiðingin er öllum kunn: sameinaður banki orsakaði fimmta stærsta gjaldþrot heims og grunur er um umfangsmestu markaðsmisnotkun sem átt hefur sér stað.

Það er í tísku í dag að segja fólki að hætta að horfa í baksýnisspegilinn og horfa frekar fram á veginn. Það er hins vegar erfitt þegar útsýnið út um framrúðuna sýnir sömu einstaklingana og stóðu að rót vandans áhyggjulausa á fleygiferð inn í framtíðina.

Athugið. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Vísir hvetur lesendur til að halda sig við málefnalega umræðu. Einnig áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi eða ósæmilegar athugasemdir.

Fleiri fréttir - Fastir pennar

Fastir pennar 22. maí. 2012 06:00

Atkvæðaveiðigjald

Ríkisstjórnin kynnti í síðustu viku með talsverðum lúðrablæstri svokallaða fjárfestingaáæt...  

Meira
Fastir pennar 22. maí. 2012 06:00

Velferðarráðherra og sérgreinalæknar?

Í umræðunni undanfarið hefur verið tíðrætt um gjöld vegna komu til sérfræðilækna og svokal...  

Meira
Fastir pennar 21. maí. 2012 20:00

Er meyjarhaftið mýta?

Sæl, Sigga Dögg. Ég las greinina þína um mýtuna um þröngu píkuna og var mjög hrifin. Mig l...  

Meira
Fastir pennar 21. maí. 2012 06:00

Hinn ómissandi óþarfi

Listahátíðin í Reykjavík var alltaf stórviðburður í lífi föður míns....  

Meira
Fastir pennar 21. maí. 2012 06:00

Langtímaatvinnuleysi gefinn gaumur

Eftir langt skeið þar sem atvinnuleysi var nánast óþekkt á Íslandi skall það á af þunga ve...  

Meira
Fastir pennar 19. maí. 2012 06:00

Goðsögnum hnekkt

Háskóli Íslands hefur kannað hvernig einkunnir nemenda skiptast eftir þeim framhaldsskólum...  

Meira
Fastir pennar 19. maí. 2012 06:00

Uppvakningur tekinn í fóstur

Sagt var að siðfræði margra þeirra sem áttu og stjórnuðu gömlu bönkunum fyrir hrun hefði r...  

Meira
Fastir pennar 18. maí. 2012 11:03

Til varnar Suðurnesjum

Pabbi vann tvo vetur í Grindavík eftir að hann kláraði kennaranám, frá 1972 til 1974. Pabb...  

Meira
Fastir pennar 18. maí. 2012 08:00

Lög lygum líkust

Í frumvarpi að lögum um fjölmiðla sem nú liggur fyrir þinginu er lagt til að útlendingar u...  

Meira
Fastir pennar 18. maí. 2012 06:00

Ríkisbónus

Í desember 2009 var samið um uppgjör milli gamla og nýja Landsbankans. Í því fólst meðal a...  

Meira
Fastir pennar 17. maí. 2012 06:00

Óttinn við upplýsingar

Þórunn Sveinbjarnardóttir, fyrrverandi þingmaður Samfylkingarinnar, skrifaði grein hér í b...  

Meira
Fastir pennar 17. maí. 2012 06:00

Útlendingarnir ógurlegu

Allir hafa lent í einhverjum vandræðum með nágranna sína. Lengi var saga hvers lands líka ...  

Meira
Fastir pennar 16. maí. 2012 06:00

Brjótið lög!

Íslensk stjórnvöld hafa um langt skeið sett mikinn þrýsting á lífeyrissjóði landsins um að...  

Meira
Fastir pennar 15. maí. 2012 08:00

Tímamót í mannréttindabaráttu

Það eru merkileg tímamót í réttindabaráttu samkynhneigðra þegar valdamesti maður heims, Ba...  

Meira
Fastir pennar 15. maí. 2012 06:00

Dómur Landsdóms - fyrri hluti

Hinn 23. apríl sl. kvað Landsdómur upp dóm í máli fyrrverandi forsætisráðherra. Hann marka...  

Meira
Fastir pennar 14. maí. 2012 09:14

Það gefur á bátinn …

Það eru ekki margar stéttir sem njóta almennrar virðingar í samfélaginu....  

Meira
Fastir pennar 14. maí. 2012 09:14

Skýrar línur

Ólafur Ragnar Grímsson forsetaframbjóðandi birtist landsmönnum í gamalkunnugum, pólitískum...  

Meira
Fastir pennar 14. maí. 2012 03:13

Heimilisreksturinn

Ég og konan mín keyptum okkar fyrstu íbúð fyrr á þessu ári. Samhliða því fórum við yfir re...  

Meira
Fastir pennar 12. maí. 2012 06:00

Pólitík eða gæði

Vísindarannsóknir á Íslandi eru fjársveltar. Þar að auki er alltof stórum hluta þeirra tak...  

Meira
Fastir pennar 12. maí. 2012 06:00

Málþófið

Í tímaþröng eru mál þæfð í öllum þjóðþingum. Tímaþröng er klípa sem ríkisstjórnir koma sér...  

Meira
Fastir pennar 11. maí. 2012 06:00

Óþolandi ógagnsæi

Seðlabanki Íslands kynnti á miðvikudag niðurstöðu þriggja gjaldeyrisútboða sem farið hafa ...  

Meira
Fastir pennar 11. maí. 2012 06:00

Ónæg rök fyrir hjálmaskyldu

Kæri lesandi, settir þú á þig hjálm í morgun? Nei, ég er ekki sérstaklega að tala við þig ...  

Meira
Fastir pennar 10. maí. 2012 06:00

Vondar fyrirmyndir á Alþingi

Vanskil ársreikninga til réttra yfirvalda virðast landlægur vandi á Íslandi. Fréttablaðið ...  

Meira
Fastir pennar 09. maí. 2012 06:00

Sök þarf að sanna

Paul Larsson, prófessor við Lögregluháskólann í Ósló, ráðlagði Íslendingum í samtali við F...  

Meira

Mest lesið: Umræðan

Nýjast á Vísi

Fréttablaðið

  • Forsíða Fréttablaðsins
  • Serblad
  • Allt

Stöð2

  • Ísland í dag
  • Kvöldfréttir
  • Veðurfréttir
Þú ert hér: Forsíða / Umræðan / Fastir pennar / Spilling og græðgi