Spilling og siðbót

Vísir Fastir pennar 14. janúar 2012 12:46
Magnús Halldórsson, viðskiptafréttastjóri Vísis og Stöðvar 2.
Magnús Halldórsson, viðskiptafréttastjóri Vísis og Stöðvar 2.
Eftir að Alþingi lögfesti heimild handa bönkunum til þess að afskrifa skuldir fyrirtækja umfram eignir gegn framlagi fjármuna upp á 10% af virði eigna var samkeppnismarkaður skilinn eftir á eyðieyju. Þar er hann enn.
Dæmi:

Fyrirtæki skuldar 6 milljarða en á eignir sem metnar eru á tvo milljarða. Eigandi fyrirtækisins getur tryggt stöðu fyrirtækisins með því að leggja því til 200 milljónir og fengið fjóra milljarða afskrifaða. Síðan er haldið áfram.

Það eru mörg dæmi um afgreiðslu sem þessa hér að framan og hafa verið sagðar sannar og réttar fréttir af þessum afgreiðslum ítrekað. Þar hafa komið við sögu útgerðarfyrirtæki, fyrirtæki í verktakageiranum, bílaumboð og fleiri.

Hvatinn minnkar


Vandamálið sem þetta skapar er augljóst; samkeppnismarkaður, sem alls staðar í vestrænum ríkjum er talinn vera mikilvægur fyrir neytendur, er í rúst. Samkeppnisaðilar þeirra fyrirtækja sem þurfa ekki að hafa áhyggjur af því þegar aukinn markaðshlutdeild er sótt með lánsfé, geta lítið gert. Þeir fá ekki að njóta góðs af því ef eigendur fyrirtækja og stjórnendur samkeppnisaðilanna gera mistök með offjárfestingu. Þetta leiðir til þess að samkeppni brotnar niður innan frá og vinnur gegn hvata hjá fyrirtækjum til þess að standa sig vel og bjóða góða þjónustu, neytendum til hagsbóta.

Það versta við þetta vandamál er hversu víðtæk sú skoðun er að þetta sé eðlilegt í ljósi þess sem gerðist hér fyrir þremur árum. Þ.e. að atvinnurekendur eigi skilið að taka ekki örlögum gjörða sinna þegar þeir stofnuðu til of mikilla skulda. Þetta á ekki síst við um Samtök atvinnulífsins, Viðskiptaráð Íslands og Samtök iðnaðarins. Hjá forystumönnum þessara samtaka hefur því miður lítil áhersla verið lögð á það að leyfa fyrirtækjum að fara í gjaldþrot sem þannig er um statt, til þess að viðhalda markaðsbúskapnum. Í íslenska hagkerfinu er þó nóg til af peningum sem þar að auki eiga í erfiðleikum með að finna farvegi fyrir ávöxtun. Fjárfestingin – sem kvartað er yfir að sé lítil – er ekki síst lítil af þessum sökum. Það er ekkert að óttast ef „lífvænlegur" rekstur stöðvast vegna rangra ákvarðana stjórnenda og eigenda. Hann fer þá af stað aftur með hjálp þeirra sem bjóða best í eignir hjá skiptastjóra og hafa trú á rekstrinum.

Óljóst, og þó


Pólitísk sýn á þetta álitamál er svolítið óljós að því er mér finnst. Að öðru leyti en því, að svo til allir flokkar sem eiga fulltrúa á Alþingi virðast almennt hlynntir því að markaðsbúskapurinn sé sniðgenginn og fyrirtæki fái afskrifaðar skuldir á kostnað kröfuhafa eins og það sé sjálfsagt mál. Það virðist engu breyta að lögfestar heimildir banka til þess að afskrifa skuldir á útvalda, með fyrrnefndu fyrirkomulagi, á sér líklega engin fordæmi í hinum vestræna heimi.

Sérstaklega er merkilegt að Sjálfstæðisflokkurinn hafi ekki barist hatrammlega fyrir því að markaðsbúskapurinn fái að halda sér, svona í ljósi þess að innan þess flokks hefur tal um ágæti hins frjálsa markaðar stundum fengið vængi. Meðal annars hjá háskólaprófessor sem tekið hefur virkan þátt í starfi flokksins í áratugi, Hannesi Hólmsteini Gissurarsyni. Hann er líklega þekktastur fyrir að hafa verið dæmdur í Hæstarétti fyrir að fénýta sér höfundarréttarvarið efni nóbelsverðlaunahafa, sem er um það bil mesta mótsögn við heiðarlega markaðslega breytni sem hægt er að hugsa sér.

Ítök atvinnurekenda


Ég held að það sé ekki hægt að útiloka að þau ítök sem atvinnurekendur hafa í Sjálfstæðisflokknum af sögulegum ástæðum m.a., bæði á innflutningshlið hagkerfisins og útflutningshliðinni, hafi leitt til þess að flokkurinn hefur ekki staðið vörð um markaðsbúskapinn þegar kemur að skuldamálum fyrirtækja. Vandamálin voru í fangi atvinnurekenda, sem síðan mynda hryggjarstykkið í flokksstarfinu. Flokkurinn hefur beinlínis vantreyst markaðnum til þess að leysa úr vandamálum sínum, þrátt fyrir að hagkerfið sé svo til troðfullt af peningum sem nýta má í endurreisn reksturs sem fjárfestar telja lífvænlegan. Mat starfsmanna banka á því hvað telst lífvænlegt í þeim efnum skiptir engu máli, enda segir sagan okkur það – hvert sem litið er – að það megi aldrei treysta á dómgreind bankamanna. Þeir eru blindaðir af ríkisábyrgð á mistökum sínum.

Innan stjórnarflokkanna, VG og Samfylkingarinnar, ríkir algjör þögn um þá spilltu meðhöndlun sem valdir atvinnurekendur eru að fá í bankakerfinu. Er spilling of stórt orð? Nei varla, einkum í ljósi þess að aðgerðir sem þessar, það er stórfelldar skuldaniðurfellingar hjá völdum fyrirtækjum, eiga sér engin alþjóðleg fordæmi. Enda er þetta háttalag víðast hvar bannað og líklegt að aðgerðirnar geti talist til umboðssvika.

Siðbót?


Stjórnarflokkarnir lögfestu heimild bankanna til þess að handvelja þá atvinnurekendur út sem þurfa að borga skuldir sínar til baka sem stofnað var til, til þess að styrkja stöðu á markaði. Ég veit ekki til þess að þetta hafi verið rætt nema með yfirborðslegum fyrirspurnum á þingi. Siðbótin sem forsvarsmenn þessara flokka tala stundum fyrir, er víðsfjarri þegar að þessum málum kemur. Ég held að fyrir því séu tvær ástæður. Annars vegar of lítil greining og þekking á því sem er að gerast í atvinnulífinu, meðal annars vegna þess að flokksmenn eru almennt fremur illa tengdir inn í bakherbergin, og síðan vantrú á gildi markaðsbúskaparins. Jafnvel þó það séu algild sannindi að velferðarkerfi Norðurlandanna – yfirlýstrar fyrirmyndar stjórnarsamstarfsins – hvílir á stoðum hans, en ekki öfugt.

Framsóknarflokkurinn hefur talað beint fyrir því að þeir sem skuldi mest eigi að fá mesta niðurfellingu. Þetta hafa forsvarsmenn flokksins ítrekað gert allt frá því 20% niðurfelling allra skulda var borin á borð kjósenda, en hún þjónar þeim best sem mest skulda. Engin almenn varðstaða um markaðsbúskapinn hef ég séð eða greint, heldur miklu fremur stór orð um nauðsyn þess að afskrifa, og afskrifa síðan aðeins meira. Mér hefur sýnst Hreyfingin og óháðir þingmenn tala hátt um siðbót en lítið fjallað sértækt um þær leikreglur sem í gildi eru á samkeppnismarkaði og hvernig þær beinlínis greiða fyrir spillingu. Það eru vissulega undantekningar á þessu, en þær eru of fáar. Áherslan á þessi mál er lítil og léttvæg.

Alltaf hægt að kaupa afskrift


En stóra spurningin fyrir stjórnvöld, rúmum þremur árum eftir hrunið, er þessi: Hvernig eiga málin að vera til framtíðar? Eiga fyrirtæki að geta keypt sér niðurfellingu á skuldum fyrir smánarupphæð til þess að halda markaðshlutdeild?

Ef málin eiga að vera þannig, þá stendur íslenskt samfélag eftir gjörspillt, þar sem bankamenn ráða miklu meiru en áður, eins og ótrúlegt að það nú hljómar. Hagsmunir almennings verða færðir neðar í forgangsröðina ef hlutirnir eiga að vera eins og þeir eru núna til frambúðar.

Athugið. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Vísir hvetur lesendur til að halda sig við málefnalega umræðu. Einnig áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi eða ósæmilegar athugasemdir.

Fleiri fréttir - Fastir pennar

Fastir pennar 22. maí. 2012 06:00

Atkvæðaveiðigjald

Ríkisstjórnin kynnti í síðustu viku með talsverðum lúðrablæstri svokallaða fjárfestingaáæt...  

Meira
Fastir pennar 22. maí. 2012 06:00

Velferðarráðherra og sérgreinalæknar?

Í umræðunni undanfarið hefur verið tíðrætt um gjöld vegna komu til sérfræðilækna og svokal...  

Meira
Fastir pennar 21. maí. 2012 20:00

Er meyjarhaftið mýta?

Sæl, Sigga Dögg. Ég las greinina þína um mýtuna um þröngu píkuna og var mjög hrifin. Mig l...  

Meira
Fastir pennar 21. maí. 2012 06:00

Hinn ómissandi óþarfi

Listahátíðin í Reykjavík var alltaf stórviðburður í lífi föður míns....  

Meira
Fastir pennar 21. maí. 2012 06:00

Langtímaatvinnuleysi gefinn gaumur

Eftir langt skeið þar sem atvinnuleysi var nánast óþekkt á Íslandi skall það á af þunga ve...  

Meira
Fastir pennar 19. maí. 2012 06:00

Goðsögnum hnekkt

Háskóli Íslands hefur kannað hvernig einkunnir nemenda skiptast eftir þeim framhaldsskólum...  

Meira
Fastir pennar 19. maí. 2012 06:00

Uppvakningur tekinn í fóstur

Sagt var að siðfræði margra þeirra sem áttu og stjórnuðu gömlu bönkunum fyrir hrun hefði r...  

Meira
Fastir pennar 18. maí. 2012 11:03

Til varnar Suðurnesjum

Pabbi vann tvo vetur í Grindavík eftir að hann kláraði kennaranám, frá 1972 til 1974. Pabb...  

Meira
Fastir pennar 18. maí. 2012 08:00

Lög lygum líkust

Í frumvarpi að lögum um fjölmiðla sem nú liggur fyrir þinginu er lagt til að útlendingar u...  

Meira
Fastir pennar 18. maí. 2012 06:00

Ríkisbónus

Í desember 2009 var samið um uppgjör milli gamla og nýja Landsbankans. Í því fólst meðal a...  

Meira
Fastir pennar 17. maí. 2012 06:00

Óttinn við upplýsingar

Þórunn Sveinbjarnardóttir, fyrrverandi þingmaður Samfylkingarinnar, skrifaði grein hér í b...  

Meira
Fastir pennar 17. maí. 2012 06:00

Útlendingarnir ógurlegu

Allir hafa lent í einhverjum vandræðum með nágranna sína. Lengi var saga hvers lands líka ...  

Meira
Fastir pennar 16. maí. 2012 06:00

Brjótið lög!

Íslensk stjórnvöld hafa um langt skeið sett mikinn þrýsting á lífeyrissjóði landsins um að...  

Meira
Fastir pennar 15. maí. 2012 08:00

Tímamót í mannréttindabaráttu

Það eru merkileg tímamót í réttindabaráttu samkynhneigðra þegar valdamesti maður heims, Ba...  

Meira
Fastir pennar 15. maí. 2012 06:00

Dómur Landsdóms - fyrri hluti

Hinn 23. apríl sl. kvað Landsdómur upp dóm í máli fyrrverandi forsætisráðherra. Hann marka...  

Meira
Fastir pennar 14. maí. 2012 09:14

Það gefur á bátinn …

Það eru ekki margar stéttir sem njóta almennrar virðingar í samfélaginu....  

Meira
Fastir pennar 14. maí. 2012 09:14

Skýrar línur

Ólafur Ragnar Grímsson forsetaframbjóðandi birtist landsmönnum í gamalkunnugum, pólitískum...  

Meira
Fastir pennar 14. maí. 2012 03:13

Heimilisreksturinn

Ég og konan mín keyptum okkar fyrstu íbúð fyrr á þessu ári. Samhliða því fórum við yfir re...  

Meira
Fastir pennar 12. maí. 2012 06:00

Pólitík eða gæði

Vísindarannsóknir á Íslandi eru fjársveltar. Þar að auki er alltof stórum hluta þeirra tak...  

Meira
Fastir pennar 12. maí. 2012 06:00

Málþófið

Í tímaþröng eru mál þæfð í öllum þjóðþingum. Tímaþröng er klípa sem ríkisstjórnir koma sér...  

Meira
Fastir pennar 11. maí. 2012 06:00

Óþolandi ógagnsæi

Seðlabanki Íslands kynnti á miðvikudag niðurstöðu þriggja gjaldeyrisútboða sem farið hafa ...  

Meira
Fastir pennar 11. maí. 2012 06:00

Ónæg rök fyrir hjálmaskyldu

Kæri lesandi, settir þú á þig hjálm í morgun? Nei, ég er ekki sérstaklega að tala við þig ...  

Meira
Fastir pennar 10. maí. 2012 06:00

Vondar fyrirmyndir á Alþingi

Vanskil ársreikninga til réttra yfirvalda virðast landlægur vandi á Íslandi. Fréttablaðið ...  

Meira
Fastir pennar 09. maí. 2012 06:00

Sök þarf að sanna

Paul Larsson, prófessor við Lögregluháskólann í Ósló, ráðlagði Íslendingum í samtali við F...  

Meira

Mest lesið: Umræðan

Nýjast á Vísi

Fréttablaðið

  • Forsíða Fréttablaðsins
  • Serblad
  • Allt

Stöð2

  • Ísland í dag
  • Kvöldfréttir
  • Veðurfréttir
Þú ert hér: Forsíða / Umræðan / Fastir pennar / Spilling og siðbót