„Ég á erfitt með að skilja þessa túrismafóbíu. Varla saknar fólk tóms og gjaldþrota Laugavegs? Þvert móti hefur aldrei verið jafn mikið líf í miðbænum og flóra verslunar og veitingastaða líklegast aldrei verið meiri,“ segir Magnús Berg, verslunarrekandi við Hverfisgötu um hvort lundabúðir og veitingastaðir séu að fæla alþjóðlegar verslunarkeðjur frá Laugaveginum.
Magnús opnaði í desember verslun á vegum danska hönnunar- og húsgagnaframleiðandans NORR11 við Hverfisgötu. NORR11 rekur sjö sýningarrými í Evrópu, m.a. í Kaupmannahöfn, Berlín og London.
„Það er frekar örgjaldmiðill og tollar sem fæla frá erlendar verslunarkeðjur. Okkar vörur eru tvítollaðar. Það er greiddur tollur af þeim þegar þær koma inn í Evrópusambandið og svo greiðum við 10 prósent toll þegar þær koma til landsins,“ segir Magnús.
Í Morgunblaðinu í dag sagði Gunnar Guðjónsson, formaður Samtaka kaupmanna og fasteignaeigenda við Laugaveg, að þekktar verslanir með alþjóðleg vörumerki vilji ekki opna við Laugaveginn vegna fjölda veitingastaða og lundabúða . „Almenn verslun er orðin undir og við taka lundabúðir og veitingastaðir,“ sagði Gunnar.
Túristabúðir stoppa ekki H&M á Strikinu
Magnús segir ekkert því til fyrirstöðu að alþjóðlegar verslanakeðjur séu reknar hér á landi við hlið lundabúða. „Það eru fjölmargar túristabúðir á Strikinu en það stoppar ekki H&M að vera við hliðina á þeim,“ segir Magnús.
Þá segir hann fjölda túristabúða á Laugarveginum einfaldlega vera hluti af eðlilegri borgarþróun. „Þetta sést líka í öðrum borgum. Stærri götur verða túristamiðaðri og göturnar í kring taka að lifna. Það er nýbúið að taka Hverfisgötuna í gegn og hér opna nýjar verslanir í hverjum mánuði. Þær eru oft sérhæfðari og metnaðarfyllri verslanir sem „lókallinn“ þekkir. Flottustu búðirnar eru ekki endilega á Strikinu heldur í hliðargötum,“ segir Magnús.
Hann segir eigendur NORR11 hafi verið mjög spenntir fyrir íslenskum markaði. Það hafi verið sett sem skilyrði að opna verslunarinnar að hún væri í miðbænum sem laði að bestu kúnnanna.
Viðskipti innlent