Innlent

Stjörnuspekingur: Líklega fáir útrásavíkingar vatnsdrekar

Arnþór Helgason.
Arnþór Helgason.
Nú er runnið upp ár drekans. Eða vatnsdrekans eins og Arnþór Helgason, stjörnuspekingur og formaður Kínverk-íslenska menningarfélagsins, segir í viðtali við Reykjavík síðdegis á Bylgjunni í dag.

„Þeir eru marglyndir, mjúkir, eftirgefanlegir, veikgeðja og það er stutt í ofsa. En þeir geta líka verið sáttasemjarar," lýsir Arnþór hinum venjulega dreka og bætir við að það sé ekkert betra til þess að slökkva eld en vatn.

„Og ég hef farið yfir þetta í huganum og það er líklega ekki mikið um dreka hjá hinum svokölluðu útrásavíkingum," segir Arnþór þegar hann fer yfir kosti og galla vatnsdrekanna.

Kínverska tímabilið er samsett af 60 ára árahring að sögn Arnþórs. Þar af eru fimm frumefni sem einkenna merkin, það eru vatn, viður, eldur, jörð og málmur.

Þegar Arnþór er spurður hvernig árið gæti orðið svarar hann því til að það gæti orðið öfgakennt. „Ég vona að ólgan lægi hér á landi," segir Arnþór sem vonar að eldar verði slökkti í samfélaginu á ári vatnadrekans. „Og ekki veitir af eins og þingmenn hafa orðið sér margsinnis til skammar, svo ég taki eitt dæmi," segir Arnþór.

Hægt er að hlusta á fróðlegt viðtal við Arnþór hér.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×