Erlent

Stórlega dregið úr barnadauða í heiminum

Myndin er úr safni.
Myndin er úr safni. Nordicphotos/afp
Stórlega hefur dregið úr barnadauða á heimsvísu og marktækur árangur náðst við að ráðast gegn helstu þáttum sem valda honum. Þetta kemur fram í nýrri skýrslu frá UNICEF, Barnahjálp Sameinuðu þjóðanna og UNICEF á Íslandi vekur athygli á.

Daglega deyja 14.000 færri börn nú en árið 1990.

Árið 1990 létust árlega 12 milljónir barna yngri en fimm ára en talan nú er 6,9 milljónir. Ár hvert hefur hún farið lækkandi – þrátt fyrir að á sama tíma hafi fólki fjölgað í heiminum. Athygli vekur að tíðni barnadauða hefur lækkað í ríkjum víðsvegar um heim – þar á meðal í mörgum þeirra fátækari, svo sem í Bangladess, Líberíu og Rúanda.

Síðan í júní hefur meira en helmingur ríkja í heiminum formlega heitið því að halda áfram baráttunni gegn barnadauða. Guðbjartur Hannesson, velferðarráðherra, undirritaði nú í morgun slíkt heit fyrir Íslands hönd.

„Það er gleðiefni að Ísland styðji þennan verðuga málstað. Ekki síst í ljósi þess að hér á landi höfum við náð afar langt í baráttunni gegn barnadauða. Það gleymist oft að á Íslandi var barnadauði áður mjög mikill – miklu meiri en í þeim ríkjum þar sem hann er mestur í dag," segir Stefán Ingi Stefánsson, framkvæmdastjóri UNICEF á Íslandi.

Í skýrslu UNICEF kemur fram að dauðsföllum af völdum mislinga og lömunarveiki hefur fækkað mikið á heimsvísu. Færri börn deyja einnig nú en áður vegna lungnabólgu, niðurgangspesta og malaríu. Þökk sé forvörnum og bættri meðferð við HIV-smiti hefur dauðsföllum barna af völdum alnæmis sömuleiðis fækkað verulega.

En þrátt fyrir að milljónum barnslífa hafi verið bjargað síðastliðna áratugi deyja enn 19.000 börn daglega – flest af orsökum sem rekja má beint til fátæktar eða sjúkdóma sem hægt er að fyrirbyggja. Allt kapp er nú lagt á að lækka þessa tölu enn frekar. Helmingur dauðsfalla allra barna á sér stað í fimm ríkjum; Indlandi, Nígeríu, Austur-Kongó, Pakistan og Kína, en sjálf tíðni barnadauðans er aftur á móti hæst í ríkjum Afríku sunnan Sahara.


Tengdar fréttir

Verulega dregur úr ungbarnadauða í heiminum

Verulega hefur dregið úr ungbarnadauða í heiminum á undanförnum árum. Þetta kemur fram í nýrri skýrslu frá Unicef, Barnahjálp Sameinuðu þjóðanna.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×