Innlent

Súludansmeyjar segja ný lög vega að atvinnuöryggi þeirra

Tvær íslenskar súludansmeyjar á Goldfinger óttast að ný lög sem banni nektardans vegi að atvinnuöryggi þeirra. Þær fóru að dansa eftir að hafa misst vinnuna og segjast afar ánægðar með starfið. Íslenskum súludansmeyjum mun hafa fjölgað mjög eftir bankahrun.

Alþingi samþykkti lög á þriðjudag sem bannar nektardans og öðlast lögin gildi í byrjun júlí. Í áliti allsherjarnefndar sem fjallaði um málið segir að í ljósi upplýsinga frá lögreglu séu verulegar líkur séu á því að á nektardansstöðum starfi fólk sem sé mögulega fórnarlömb mansals eða annars konar misneytingar.

Þessu hafna tvær íslenskar konur sem fengist hafa við dans á Goldfinger síðan eftir bankahrun.

Konurnar segja fordóma helst birtast í fullyrðingum um að nektardansarar hljóti stunda vændi og vera í vímuefnaneyslu. Þær segja það alls ekki sína reynslu af starfinu. Mjög auðvelt sé að finna sér vændiskarl eða -konu á Íslandi en slík starfsemi sé ekki stunduð á Goldfinger. Þær óttast um framtíð sína verði staðnum lokað.

Á fundi sem haldinn var í síðustu viku í Háskólanum í Reykjavík undir yfirskriftinni Er mansal og vændi vandamál á Íslandi, sagði Stefán Eiríksson, lögreglustjóri á höfuðborgarsvæðinu þetta: „Við höfum enga ástæðu til þess að ætla það sé eitthvað öðruvísi hér á landi heldur en annars staðar í Evrópu þar sem að fyrir liggur í mjög mörgum tilfellum eru skýr tengsl á milli nektardansstaða og skipulagðrar brotastarfsemi og mansals."






Fleiri fréttir

Sjá meira


×