Sverrir Jakobsson

Fréttamynd

Kreppukosningar

Það er hálfeinkennileg upplifun, eftir þjóðargjaldþrot og búsáhaldabyltingu, að nú standi yfir kosningabarátta á Íslandi og þó ekki síður hvað áróður stjórnmálaflokkanna hefur breyst ótrúlega lítið frá 2007. Lærdómurinn sem stjórnmálaforingjarnir og auglýsingastofur þeirra hafa dregið af hruni íslensks efnahagslífs virðist rista ótrúlega grunnt. Enn er öllu fögru lofað eins og verið sé að selja hreinsilöginn Cillit Bang og magn auglýsinga virðast vera í sömu hlutföllum og styrkirnir sem flokkar náðu að sópa til sín á lokadögum ársins 2006.

Fastir pennar
Fréttamynd

Minnisleysingjarnir

Um daginn fór fram endurnýjun á landsfundi Sjálfstæðisflokksins sem fólst í því að nýjum mönnum var skipað í brúna. Ekki sáu menn ástæðu til að endurskoða stefnu flokksins enda voru menn almennt sáttir við stjórn hans á efnahagsmálum. Til að undirstrika það var fyrrverandi formaður flokksins til margra ára fenginn til að segja brandara og sáust myndir af fundarmönnum veltast um af hlátri yfir máli hans. Sjálfstæðismenn afneita þó ekki hruni frjálshyggjunnar en hún kemur þeim ekki við enda var flokkurinn aldrei frjálshyggjuflokkur. Segir hinn nýi formaður.

Fastir pennar
Fréttamynd

Stórt og smátt

Fall SPRON á dögunum sýnir að hrun íslensks viðskiptalífs stendur enn þá yfir og ekki eru enn öll kurl komin til grafar. Ekki er hægt að segja að forstöðumenn sparisjóðanna hafi gengið langt í útrásarkapphlaupinu miðað við stóru bankana en krosstengsl í íslensku viðskiptalífi gerðu það að verkum að örlög þeirra voru ráðin.

Fastir pennar
Fréttamynd

Friðlýsum Ísland

Fyrir viku bárust alvarleg tíðindi af árekstri bresks og fransks kjarnorkukafbáts á Atlantshafi í febrúarbyrjun. Betur fór þar en á horfðist, en fréttirnar vekja mann óneitanlega til umhugsunar um áhrif þess sem skaðlegt kjarnorkuslys á höfunum gæti haft fyrir Ísland og Íslendinga. Auk beinna skaðlegra umhverfisáhrifa sem slíkt slys hefði í för með sér, mætti búast við því að sala og neysla á sjávarafurðum yrði fyrir áfalli með hörmulegum afleiðingum fyrir þjóðarhag sem síst má við miklum skakkaföllum. Þetta er raunveruleg ógn sem vofir yfir Íslendingum.

Fastir pennar
Fréttamynd

Tími félagshyggju

Eftir langan óvissutíma er loksins tekin við ríkisstjórn á Íslandi sem hefur vilja til breytinga. Svigrúm hennar til athafna er hins vegar þröngt og miklu máli skiptir hvernig henni tekst að fóta sig á næstu mánuðum. Það eina sem er öruggt er að miklar byrðar munu leggjast á Íslendinga næstu misserin. Á hinn bóginn getur skipt máli hvernig þær byrðar dreifast og hvernig samfélagið þróast í framhaldinu.

Fastir pennar
Fréttamynd

Hvað getum við gert?

Árið 1948 var ákveðið á vettvangi Sameinuðu þjóðanna að stofna tvö ríki í Palestínu, annað fyrir innflytjendur gyðinga en hitt fyrir Arabana sem höfðu búið þar um aldir.

Fastir pennar
Fréttamynd

Engar lausnir

Ríkisstjórnin hefur lekið út andlitslyftingu um áramótin - ráðherrum verður skipt út og aðrir settir inn í staðinn. Hugsanlega mun hrókunin ná til Seðlabankans líka enda líta margir á formann bankastjórnar sem tákngerving kreppunnar.

Fastir pennar
Fréttamynd

Ekki benda á mig

Það er ekki lengur hægt að láta menn komast upp með þann hálfsannleik að fjármálakreppan sem valdið hefur íslensku hagkerfi stórfelldum skakkaföllum sé eins og fellibylur sem kemur að utan og að hending ein valdi því að hann orsaki meiri skaða á einum stað en öðrum.

Fastir pennar
Fréttamynd

Lán eða lýðræði?

Mikil leynd hefur hvílt yfir viðræðum íslenskra stjórnvalda við Alþjóðagjaldeyrissjóðinn (IMF) og þeim skilmálum sem munu fylgja láni frá sjóðnum.

Fastir pennar
Fréttamynd

Ögurstund vestanhafs

Í dag ganga Bandaríkjamenn að kjörborði og velja sér nýjan forseta. Á lokasprettinum hefur Barack Obama haft nokkra forystu í skoðanakönnunum og eru það mikil tíðindi. Lengi hefur verið haft fyrir satt að Bandaríkjamenn væru of forpokaðir til þess að blökkumaður geti orðið forseti.

Fastir pennar
Fréttamynd

Auðmagnið

Engum dylst lengur að heimskerfi hins hnattvædda kapítalisma er í kreppu og að meginorsökin er hrun fjármálastofnana í Bandaríkjunum. Nú beinist athyglin að undirstöðum þessa kerfis.

Fastir pennar
Fréttamynd

Bakgrunnur kreppunnar

Enginn vafi er á því að nú geisar alþjóðleg fjármálakreppa. Hún á upptök sín í Bandaríkjunum en angar hennar teygja sig um öll lönd með misalvarlegum afleiðingum. Í Evrópu hefur hún þegar haft í för með sér þjóðnýtingu nokkra banka, þ. á m. Glitnis hérna á Íslandi, og alls staðar hafa ríkisstjórnir gripið til ráðstafana til að tryggja stöðugleika fjármálakerfis. Þetta er þvert á þá afskiptaleysisstefnu sem hefur verið borið af málsvörum hins frjálsa markaðar og hefur því eðlilega vakið upp umræðu hvort kapítalisminn sé í kreppu og þó sérstaklega það afbrigði hans sem hefur verið allsráðandi í Bandaríkjununum undanfarin 20 ár.

Fastir pennar
Fréttamynd

Að læra af kreppunni

Að undanförnu hefur sjálfsálit Íslendinga fengið nokkurn skell. Hugmyndin um íslenska efnahagsmógúlinn sem væri bestur og klárastur í öllum heiminum hefur verið leiðarstef í hátíðarræðum ráðamanna um langt skeið og hefur breytt íslenskri tungu.

Fastir pennar
Fréttamynd

Endalok hernáms

Útlit er fyrir að hernám Bandaríkjanna í Írak sé bráðum á enda. Ríkisstjórn George W. Bush hefur lagt kapp á að semja við ríkisstjórn Íraks um áframhaldandi herstöðvar en þegar tillögur Bandaríkjastjórnar láku til fjölmiðla í júní vöktu þær mikla reiði, enda fólst í þeim að Írak yrði í raun bandarískt leppríki.

Fastir pennar
Fréttamynd

Goðsagnir

Goðsagnir finnast í öllum mannlegum samfélögum og eru hluti af sameiginlegu minni okkar. En vísindin eru það líka. Það hefur alltaf verið til fólk sem er tilbúið að andæfa goðsögnum og halda fram mynd af veruleikanum sem því finnst sannari þótt hún stangist á við hefðina.

Fastir pennar
Fréttamynd

Flóttamenn á Íslandi

Fyrir rúmri viku var Keníumaður að nafni Paul Ramses Odour rekinn frá Íslandi en hingað hafði hann leitað til að biðja um pólitískt hæli. Mál hans fékk aldrei efnislega meðferð heldur var hann fluttur til Ítalíu á grundvelli svonefnds Dyflinnarsamnings.

Fastir pennar
Fréttamynd

Evrópuhugsjón í kreppu?

Samstarf Evrópuþjóða á sér ýmsar ólíkar myndir. Þessa dagana stendur t.d. yfir Evrópukeppni landsliða í knattspyrnu. Í sjónvarpi allra landsmanna er hægt að fylgjast með smáþjóðum takast á við gamalgróin risaveldi íþróttarinnar og eina reglan þar virðist vera sú að aldrei er hægt að afskrifa neitt lið.

Fastir pennar
Fréttamynd

Til hvers einkaframkvæmd?

Um árabil hafa einkaaðilar veitt sjúklingum þjónustu af ýmsum toga, en almannatryggingar greiða kostnaðinn að sínum hluta. Heilsugæslustöðvar á vegum hins opinbera og læknamiðstöðvar á vegum lækna virðast hafa rekist ágætlega saman en lítið hefur verið um rannsóknir á kostnaði þessara tveggja rekstrarforma.

Fastir pennar
Fréttamynd

Heimsveldi dópsalanna

Frjáls verslun og heimskerfi alþjóðavædds kapítalisma hefur frá upphafi hnitast um nokkrar vörur sem hafa áhrif á alþjóðlegar hagsveiflur. Nú á dögum eru það olía og önnur brennsluefni fyrir orkuframleiðslu, en í árdaga hnattvæðingar voru það fremur ýmsar neysluvörur.

Fastir pennar
Fréttamynd

Fallandi gengi

Ekki er hægt að segja annað en að landsmenn hafi tekið hraustlega við sér eftir að fréttir bárust af mikilli gengisfellingu nú á dögunum.

Fastir pennar
Fréttamynd

Paradís framkvæmdavaldsins?

Allt frá því á 18. öld hafa frjálslyndir hugsuðir litið á þrískiptingu ríkisvaldsins í löggjafarvald, framkvæmdavald og dómsvald sem einn af hornsteinum lýðræðisins.

Fastir pennar
Fréttamynd

Grínverktaki rekinn

Fyrir nokkrum vikum var tilkynnt um grundvallarbreytingu á einni af helstu stofnunum íslensks samfélags, sjálfri Spaugstofunni. Einn félaganna sem hefur verið með í hópnum frá upphafi, Randver Þorláksson, hefur verið rekinn frá Ríkisútvarpinu og verður ekki með í Spaugstofunni í ár.

Fastir pennar
Fréttamynd

Uppbyggingin

Nú á dögunum kom hingað til Íslands háttsetur gestur að nafni Nicholas Burns. Hann er aðstoðarutanríkisráðherra Bandaríkjanna og átti hér í viðræðum við forsætis- og utanríkisráðherra. Að viðræðunum loknum fluttu fjölmiðlar, sem núna eru upp til hópa orðnir stjórnarsinnaðir, gagnrýnislausar fréttir um gott samband ríkjanna tveggja, rekstur ratsjárkerfisins og fleiri tæknileg mál sem þarf að semja um

Fastir pennar
Fréttamynd

Framtíðin

Núna stendur yfir kosningabarátta þar sem stjórnmálaflokkar demba yfir okkur slagorðum og auglýsingum í örfáar vikur sem eiga að fá okkur til að gleyma öllu því sem hefur gerst á Íslandi undanfarin fjögur ár.

Fastir pennar
Fréttamynd

Stjórn sýndarveruleikans

Núna í vikunni andaðist franski spekingurinn Jean Baudrillard sem varð frægur (eða alræmdur) fyrir að halda því fram að ýmis nútímafyrirbæri væru sýndarveruleiki. Umdeildasta dæmið sem Baudrillard tók um þetta var Persaflóastríðið 1991.

Fastir pennar
Fréttamynd

Bið eftir kynjajafnrétti

Nú á dögum líta flestallir Íslendingar á sig sem jafnréttissinna. Sú sjálfsmynd er þó ekki endilega byggð á gildum rökum. Það er a.m.k. þversögn að mörgum af hinum meintu jafnréttissinnum finnst allt í himnalagi í samfélagi þar sem misrétti kynjanna er viðhaldið með kerfisbundnum hætti.

Fastir pennar
Fréttamynd

Utanríkismál á dagskrá

Mikill kosningaskjálfti virðist kominn í íslenska stjórnmálaflokka og ýmsum brögðum beitt til að marka sér sérstöðu. Allt er þetta brölt óskaplega klassískt og fyrirsjáanlegt sem er miður því að ýmis tíðindi gætu gerst í pólitíkinni á árinu 2007.

Fastir pennar
Fréttamynd

Sá alræmdi

Fallinn er Óli fígúra í Síle“ sagði menntaskólakennari nokkur daginn eftir að einræðisherrann Augusto Pinochet hafði tapað þjóðaratkvæðagreiðslu um áframhaldandi völd árið 1989. Nemendur hans fengu frí þann daginn.

Fastir pennar
Fréttamynd

Það sem átti ekki að vera hægt

Í dag, laugardaginn 2. desember 2006, fer fram forval Vinstrihreyfingarinnar - græns framboðs á höfuðborgarsvæðinu. Ólíkt því sem tíðkast hefur í prófkjörum annarra flokka þá hafa frambjóðendur ekki eytt milljónum í auglýsingar um hvippinn og hvappinn.

Fastir pennar
Fréttamynd

Flóð í uppsiglingu

Íslenskan á ekki mörg hugtök sem eru gjörsamlega óþýðanleg, en í hópi þeirra er „jólabókaflóð“. Reynið að útskýra þetta fyrirbæri fyrir útlendingum og þið munuð komast að því að það er gjörsamlega vonlaust.

Fastir pennar