Tekjur af tölvuleikjum hafa sexfaldast á fjórum árum

Fréttablaðið Viðskipti innlent 03. maí 2011 03:13
Mynd úr EVE Online.
Mynd úr EVE Online.
Mesti vöxtur útflutningstekna í skapandi greinum hér á landi hefur verið í útgáfu tölvuleikja. Heildarverðmæti hefur sexfaldast á árunum 2005 til 2009, úr 1,9 milljörðum króna í 13,2 milljarða. Nær öll velta í útgáfu á tölvuleikjum hér á landi telst til útflutnings.

Þetta kemur fram í nýrri skýrslu um hagræn áhrif skapandi greina á Íslandi. Að skýrslunni stóðu dr. Margrét Sigrún Sigurðardóttir, lektor við viðskiptafræðideild Háskóla Íslands, og Tómas Young, verkefnastjóri ÚTÓN. Notuð voru gögn frá Hagstofu Íslands, Fjársýslu ríkisins og Sambandi íslenskra sveitarfélaga.

Hilmar Veigar Pétursson, framkvæmdastjóri tölvuleikjaframleiðandans CCP, segir þróun í útflutningi tölvuleikja hraðari hér á landi en erlendis, en útflutningur CCP nam 7,5 milljörðum króna árið 2009, sem gerir um 60 prósent af heildarútflutningsverðmæti íslenskra tölvuleikja.

„Þetta hentar Íslendingum vel," segir Hilmar. „Það hefur ekki borið mikið á markaðssetningu í íslensku samfélagi þar sem gert er út á að láta tölvuleiki verða part af útflutningi. En það gerðist og því ber að fagna." Hann bætir við að nú sé orðinn til eins konar sjálfsprottinn klasi af fyrirtækjum sem sinni greininni og slíkt sé ákveðið heilbrigðismerki.

Útflutningstekjur skapandi greina voru um 24 milljarðar árið 2009 eða um 3 prósent af heildarútflutningi þjóðarinnar. Til samanburðar má nefna að tekjur af útflutningi landbúnaðarvara námu um 1,5 prósenti af heildarútflutningstekjum. - sv

Fleiri fréttir - Viðskipti innlent

Viðskipti innlent 21. maí. 2012 17:14

Gengi Facebook hrynur

Gengi Facebook hefur hrunið í dag, og nemur lækkunin það sem af er degi tæplega 9 prósentu...  

Meira
Viðskipti innlent 21. maí. 2012 16:59

Tölvur og linsur á Suðurskautinu

Höfuðstöðvar Nýherja iðuðu af lífi þegar fréttastofa heimsótti þær á dögunum. Þetta er önn...  

Meira
Viðskipti innlent 21. maí. 2012 15:08

Eignarhaldsfélag Hörpu selur í Marel

Eignarhaldsfélag Hörpu, þar sem Helgi Magnússon, stjórnarformaður Lífeyrissjóðs verzlunarm...  

Meira
Viðskipti innlent 21. maí. 2012 09:15

Vísitala byggingarkostnaðar lækkar lítið eitt

Vísitala byggingarkostnaðar lækkaði um 0,1 prósentustig milli mánaða og er hún nú 114,9 st...  

Meira
Viðskipti innlent 20. maí. 2012 20:15

Rannsóknin á Kaupþingsviðskiptum myndi taka mörg ár

Efnahagsbrotadeild bresku lögreglunnar, eða Serious Fraud Office, varaði bræðurna Robert o...  

Meira
Viðskipti innlent 19. maí. 2012 13:27

Mátti greiða 10 milljarða fyrir að láta Kaupþingsmál niður falla

Efnahagsbrotadeild bresku lögreglunnar, Serious Fraud Office, bauðst til þess að láta rann...  

Meira
Viðskipti innlent 19. maí. 2012 13:00

Mikill áhugi á Facebook

Það var líflegur dagur í Nasdaq-Kauphöllinni í New York í Bandaríkjunum í gær þegar viðski...  

Meira
Viðskipti innlent 19. maí. 2012 10:00

Leiguverð fer enn hækkandi

Vísitala leiguverðs á höfuðborgarsvæðinu hækkaði um 0,6 prósent á milli apríl og maí. Síða...  

Meira
Viðskipti innlent 18. maí. 2012 15:11

Ergo lögmenn verða Íslenska lögfræðistofan

Lögmannsstofan Ergo lögmenn, Turninum Smáratorgi, hefur skipt um nafn og heitir nú Íslensk...  

Meira
Viðskipti innlent 18. maí. 2012 10:55

Verðmætið jókst um 7,8 prósent

Verðmæti útflutningsframleiðslu sjávarafurða nam rúmum 256 milljörðum króna á síðasta ári ...  

Meira
Viðskipti innlent 17. maí. 2012 17:44

Afar óskynsamlegt að ráðast í framkvæmdir meðan ríkissjóður er jafn skuldsettur

Seðlabankinn varar við því að ráðist sé í opinberar framkvæmdir á meðan íslenska ríkið sku...  

Meira
Viðskipti innlent 17. maí. 2012 13:23

Arnarlax fékk rekstrarleyfi fyrir 200 tonna eldi

Arnarlax fékk í gær rekstrarleyfi frá Fiskistofu fyrir 200 tonna eldi á tveimur stöðum í A...  

Meira
Viðskipti innlent 17. maí. 2012 14:06

Vill halda í krónuna en bylta stefnunni í peningamálum

Frosti Sigurjónsson, rekstarhagfræðingur, segir að það þjóni hagsmunum Íslands best að ver...  

Meira
Viðskipti innlent 16. maí. 2012 22:31

Már Guðmundsson seðlabankastjóri í Klinkinu

Már Guðmundsson, seðlabankastjóri er gesturinn í nýjasta þættinum af Klinkinu, spjallþætti...  

Meira
Viðskipti innlent 16. maí. 2012 19:30

Verðbólga étur upp launahækkanir í kjarasamningum

Aðalhagfræðingur Seðlabankans segir að launahækkanir í kjarasamningum, sem samið var um í ...  

Meira
Viðskipti innlent 16. maí. 2012 18:30

Seðlabanki tekst á við verðbólur - stýrivextir hækkaðir

Stýrivextirnir eru komnir upp í 5,5 prósent en Peningastefnunefnd Seðlabanka Íslands ákvað...  

Meira
Viðskipti innlent 16. maí. 2012 16:38

Greining Arion: Frekari vaxtahækkanir í pípunum

„Seðlabanki Íslands hækkaði vexti um 50 punkta í dag. Hinir virku vextir Seðlabanka...  

Meira
Viðskipti innlent 16. maí. 2012 12:34

Deloitte harmar "aðför“ sjávarútvegsráðherra að fyrirtækinu

Endurskoðunarfyrirtækið Deloitte hafnar öllum þeim ávirðingum sem Sjávarútvegsráðuneytið s...  

Meira
Viðskipti innlent 16. maí. 2012 11:30

Sigurður Einarsson þarf að greiða Kaupþingi 500 milljónir

Héraðsdómur Reykjavíkur komst í dag að þeirri niðurstöðu að Sigurður Einarsson fyrrverandi...  

Meira
Viðskipti innlent 16. maí. 2012 11:00

Eignir jukust um 462 milljónir

Hækkun á heimsmarkaðsverði á áli varð til þess að eignir HS Orku jukust um 462 milljónir k...  

Meira
Viðskipti innlent 16. maí. 2012 08:59

Stýrivextir hækka um 0,5 prósentustig - Vextirnir komnir í 5,5 prósent

Peningastefnunefnd Seðlabanka Íslands hefur ákveðið að hækka vexti bankans um 0,5 prósentu...  

Meira
Viðskipti innlent 16. maí. 2012 06:00

Hafa þegar tryggt sér 1,45 prósenta hlut

Starfsmenn Landsbankans hafa þegar tryggt sér 1,45 prósenta hlut í bankanum. Virði þess hl...  

Meira
  • Fréttir
  • Sport
  • Viðskipti
  • Lífið

Nýjast á Vísi

Fréttir eftir mánuði

Fréttablaðið

  • Forsíða Fréttablaðsins
  • Fasteignir
  • Allt

Skoðun

Velferðarráðherra og sérgreinalæknar?

Velferðarráðherra og sérgreinalæknar?

Teitur Guðmundsson
Í umræðunni undanfarið hefur verið tíðrætt um gjöld vegna komu til sérfræðilækna og svokallað viðbótarála...

Skoðun

Atkvæðaveiðigjald

Atkvæðaveiðigjald

Ólafur Þ. Stephensen
Ríkisstjórnin kynnti í síðustu viku með talsverðum lúðrablæstri svokallaða fjárfestingaáætlun fyrir Íslan...

Stöð2

  • Ísland í dag
  • Kvöldfréttir
  • Veðurfréttir
Þú ert hér: Forsíða / Viðskipti / Viðskipti innlent / Tekjur af tölvuleikjum hafa sexfaldast á fjórum árum