Lífið

Tengdó hefur slæm áhrif á sambandið

Erfiðleikar Samband Katherine Heigl við móður sína er farið að hafa slæm áhrif á hjónaband hennar.
nordicphotos/getty
Erfiðleikar Samband Katherine Heigl við móður sína er farið að hafa slæm áhrif á hjónaband hennar. nordicphotos/getty
Hjónaband leikkonunnar Katherine Heigl og eiginmanns hennar, Josh Kelley, gengur ekki nógu vel, ef marka má fréttir The National Enquirer. Tímaritið greinir frá því að Kelley sé orðinn þreyttur á að hafa tengdamóður sína stanslaust inni á heimilinu.

„Josh er mjög þolinmóður maður en hann er orðinn þreyttur á því að koma alltaf í öðru sæti á eftir Nancy, tengdamóður sinni. Hún býr í næsta nágrenni við þau hjónin en eyðir mestum tíma sínum inni á heimili þeirra. Hún ferðast meira að segja með þeim þegar þau eiga frí og þetta er farið að hafa áhrif á hjónalíf þeirra,“ var haft eftir heimildarmanni.

Heigl og móðir hennar eru ekki aðeins bestu vinkonur, móðir hennar er einnig umboðsmaður Heigl og viðskiptafélagi og því eyða þær umtalsverðum tíma saman. „Þetta er of mikið fyrir Josh. Hann verður stanslaust pirraðri og honum líður eins og hann sé kvæntur tveimur konum, Katherine og móður hennar.“






Fleiri fréttir

Sjá meira


×