Þakklæti til forsetans efst í huga Sigurjóns Jón Hákon Halldórsson skrifar 28. janúar 2013 15:24
Sigurjón Þorvaldur Árnason, fyrrverandi bankastjóri Landsbankans, segir að niðurstaða EFTA dómstólsins sé í takti við það sem hann hafði átt von á. Öllum kröfum ESB, ESA, Eftirlitsstofnunar EFTA, Breta og Hollendinga á hendur Íslendingum var hafnað. Hitt sem sé að koma í ljós, sem hafi verið á hreinu í sínum huga, sé að eignir Landsbankans muni duga fyrir innistæðum á Icesave og meira til. Áætlað sé að eignir þrotabúsins séu um 200 milljörðum meira en kröfurnar. Sigurjón segir að það hafi verið frekja og yfirgangur af hálfu stærri þjóða að ætlast til þess að Íslendingar gengust undir skuldbindingar sem þeim hafi aldrei borið skylda til að gangast undir. „Og í dag er í mínum huga eiginlega efst þakklæti til forsetans fyrir að hafa staðið sig svona vel. Ef hans hefði ekki notið við þá hefði þetta getað endað mjög illa. Því að hann gaf þjóðinni tækifæri til að segja hug sinn um málið og í rauninni hafna þeim samningum sem þá lágu fyrir," segir Sigurjón. Forsetinn eigi mikinn heiður og þakkir skyldar fyrir í þessu máli. „Ef hans hefði ekki notið við þá værum við stödd á allt öðrum stað en við erum í dag," segir Sigurjón. Þá bendir Sigurjón á að með þessum dómi hafi Neyðarlögin verið staðfest. „Það er ekki verið að mismuna milli innlendra og erlendra aðila," segir Sigurjón. „Og svo er gaman að sjá að meira að segja málskostnaðurinn var allur felldur á gagnaðilann," segir Sigurjón. Það segi oft mikla sögu um lyktir máls hvernig málskostnaðurinn fellur.
Mest lesið Biður Jón afsökunar Innlent Lést eftir alvarlegt slys á Gæsavatnaleið Innlent „Vitum ekki hvaða skrímsli er verið að skapa“ Innlent Landtökumenn réðust á evrópska erindreka Erlent Barn og fullorðinn létu lífið þegar bíl var ekið inn á knattspyrnuvöll Erlent Vara við „perragleraugum“ Innlent Leggi línuna að samþykki veiti rétt til að stórskaða fólk Innlent Ari nýr formaður Ungra vinstri grænna Innlent Komi til greina að nýta gervigreind í námsgagnagerð Innlent Bakar til góðs næsta sólarhringinn Innlent Fleiri fréttir Biður Jón afsökunar „Vitum ekki hvaða skrímsli er verið að skapa“ Komi til greina að nýta gervigreind í námsgagnagerð Ari nýr formaður Ungra vinstri grænna Farið að hvessa: „Veðrið er ekkert svo slæmt en ekkert sérstakt heldur“ Lést eftir alvarlegt slys á Gæsavatnaleið Engin yfirsýn hvort það séu Tik Tok-myndbönd eða klám sem eigi að geyma Leggi línuna að samþykki veiti rétt til að stórskaða fólk Vara við „perragleraugum“ Þyrlan kölluð út vegna slyss á hálendinu Kannast ekki við lýsingar Jóns Bakar til góðs næsta sólarhringinn Þakplötur að losna af íþróttahúsi í Grundarfirði Skoða viðbrögð við rannsókn á Ölgerðinni Minna á útgáfu nafnskírteina vegna rannsóknar lögreglu Eldur í lyftara í álverinu í Straumvík Tveir reyndu að flýja lögreglu á fótum eftir eftirför „Fylgjumst grannt með framvindu mála“ Dæmi um að búnar séu til „gervikennitölur“ fyrir börn Handtekinn fyrir að ausa fúkyrðum yfir hóp fólks Aðgengið gott en gefur ekki upp synjanirnar „Eigum ekki að bíða eftir alvarlegu atviki“ Jafnlaunavottunin afnumin en starfsfólkinu fækkar ekki Halla kjörin fyrsti varaforseti ASÍ Varar við að biðraðir í Keflavík geti fækkað flugleiðum Ekki ástæða til að rýma bankann Allt virðist mega ef BDSM-orðið er notað „Ég ætla ekki að fara í nein orðaskipti við Jón“ Sjö ára dómur Nýr forseti ASÍ, umdeildur sýknudómur og snjöll markaðsbrella Sjá meira