Þór til Íslands á morgun - fjögur ár á leiðinni 25. október 2011 17:30 Smíði Þórs í Chíle.
Varðskipið Þór er nú komið inn í íslenska leitar- og björgunarsvæðið og verða Vestmannaeyjar fyrsti viðkomustaður þegar komið er til Íslands samkvæmt tilkynningu frá Landhelgisgæslunni. Leggst varðskipið að bryggju í Friðarhöfn á morgun klukkan tvö og verður skipið opið til sýnis milli tvö og átta. Þór siglir frá Vestmannaeyjum á miðvikudagskvöld og verður tekið á móti varðskipinu á Miðbakka Reykjavíkurhafnar kl. 14:00 á fimmtudag eða Þórsdag samkvæmt heiðnu tímatali. Varðskipið verður til sýnis á Miðbakka föstudaginn 28. október kl. 13:00-17:00, laugardaginn 29. október kl. 13:00-17:00 og sunnudaginn 30. október kl. 13:00-17:00. Einnig mun Þór mun koma víða við um landið á næstu mánuðum þar sem skipið verður til sýnis fyrir alla áhugasama. Með komu varðskipið Þórs verða kaflaskipti í öryggismálum sjómanna og vöktun íslenska hafsvæðisins, hvort sem er á sviði auðlindagæslu, fiskveiðieftirlits, löggæslu eða leitar eða björgunar. Varðskipið er sérstaklega hannað með þarfir Íslendinga og framtíðaráskoranir á Norður- Atlantshafi í huga og verður varðskipið öflugur hlekkur í keðju björgunaraðila á Norður Atlantshafi og stóreykur möguleika Landhelgisgæslunnar á hafinu. Viðbragðsgeta vegna björgunar stærri skipa gjörbreytist við komu varðskipsins en einnig má nefna öflugan mengunarhreinsi- slökkvi- og fjölgeislabúnað sem notaður er við leit og rannsóknir neðansjávar. Einnig er um borð öflugur eftirlitsbúnaður sem sameinast í stjórnstöð sem staðsett er í miðri brúnni. Getur skipið t.d. verið færanleg stjórnstöð í neyðaraðgerðum og tengt björgunaraðila við samhæfingarstöð almannavarna þó svo að allt venjulegt fjarskiptasamband liggi niðri. Einnig getur skipið tekið stórtækan björgunarbúnað og fjölda manns um borð. Mengunarhreinsibúnaður skipsins er hliðstæður búnaði norska varðskipsins Harstad sem kom til Íslands sumarið 2009. Æfði þá áhöfn varðskipsins Týs notkun búnaðarins með Harstad. Má í því sambandi nefna að Harstad var notaður við hreinsun á Oslóarfirði, eftir strand Goðafoss, í febrúar síðastliðnum. Varðskipið Þór er 93,80 m að lengd, 16 m breitt og með 120 tonna dráttargetu. Til samanburðar má nefna að varðskipin Ægir og Týr eru 71,15 metrar að lengd, 10 metra breið og með um 56 tonna dráttargetu. Þrjátíu og sex ár eru liðin síðan Týr kom til landsins en hann kom þann 24. mars 1975, varðskipið Ægir kom 12. júní 1968. Smíði varðskipsins hófst þann 16. október 2007 og var Þór afhentur í Chile þann 23. september sl. Kostnaður við smíði varðskipsins er innan heildaráætlunar.
Mest lesið Snjóflóð hrifsaði með sér göngugarpa Innlent „Vatnsbólið er nánast tómt, það er að tæmast“ Innlent Viðvaranirnar appelsínugular og hviður yfir 40 metrum á sekúndu Veður Féll fyrir borð í Norðursjó í ofsaveðri Erlent Flugliðanum bjargað eftir hættulega björgunaraðgerð Erlent „Opnið djöfulsins sundið, sjúku fantarnir ykkar“ Erlent Mæla með að fólk leggi fyrr af stað Veður Vanalega óttist fólk að eitthvað hræðilegt sé að gerast Innlent Sautján ára drengur lést í snjóflóði Erlent Lilja mætt aftur á Alþingi Innlent Fleiri fréttir Vanhæfi fyrirtækisins til að sinna skyldum sínum sé algert Bíll við bíl á Hellisheiði eftir að heyrúllur féllu á veginn Lilja mætt aftur á Alþingi Óveðrið hefur áhrif á flugáætlun Icelandair Vanalega óttist fólk að eitthvað hræðilegt sé að gerast Lýstu eftir manni á níræðisaldri „Skynsamlegt að spyrja þjóðina“ Snjóflóð hrifsaði með sér göngugarpa Fólk stillt að mestu á Akureyri „Stórslysalaust“ á Ísafirði í nótt Hvernig greiðir Ragnar Þór atkvæði í ágúst? Gefur skít í helvítishótanir Trumps Viðreins býður fram sinn fyrsta lista á Akranesi Unnið að tillögum um lengingu brimvarnargarða Landeyjahafnar „Vatnsbólið er nánast tómt, það er að tæmast“ Hleypt inn í hollum í Vesturbæjarlaug Eldri borgarar einmana en eigi erfitt með að rífa sig upp á ný Segir stjórnvöld vinna gegn ferðaþjónustunni „Það er munur á karllíkama og kvenlíkama“ Mæla gegn því að ganga ofar en að Steini í Esjunni Óvissa í ferðaþjónustu og stuð á Aldrei fór ég suður Þrír vistaðir í fangaklefa og einn fluttur á bráðamóttöku Fyrsti innflytjandinn til að lesa Passíusálmana í kirkju skáldsins „Enginn ætti að þurfa að fara í annað land til þess að fá viðeigandi heilbrigðisþjónustu“ Lögregla lét loka þremur afhendingarstöðum áfengis „Þetta hlýtur að verða metdagur“ Snjóruðningstæki sat fast Göngin lokuð á næturnar í sjö vikur: „Hélt að þetta væri aprílgabb“ Sjúkrahúsið skilar ekki páskagjöf Smáríkisins Glórulaust að veginum hafi ekki verið lokað fyrr Sjá meira