Þrasarar og þvergirðingar

Fréttablaðið Fastir pennar 23. janúar 2012 06:00
Guðmundur Andri Thorsson, rithöfundur.
Guðmundur Andri Thorsson, rithöfundur.
Guðmundur Andri Thorsson skrifar:
Þrjú ár liðin frá Búsáhaldabyltingu og uppgjör ganga hægt og með harmkvælum – nema náttúrlega ársuppgjör þeirra fyrirtækja sem fengið hafa milljarðaskuldir sínar afskrifaðar.

Enn vaða uppi menn sem eignuðust gróin og ágæt fyrirtæki og skófu þau og skuldsettu og gerðu að rjúkandi rústum, kalla sig athafnamenn en ættu með réttu lagi að skúra einhvers staðar í samfélagsþjónustu. Engin uppgjör þar, engin iðrun, engin yfirbót. Bara forherðing tóm og einbeittur vilji til að halda áfram fyrri iðju við verðmætaskafelsi og eignarhaldsfélagasúpugerð. Þessi gömlu fyrirtæki sem þeir rústuðu skrölta að vísu sum áfram með ekkert hjól undir bílnum og flækjast fyrir þeim fyrirtækjum sem rekin voru af raunverulegum athafnamönnum, og eru í umsjón skilanefndafólks sem telur sig óskeikult af því að það er með þrjú hundruð þúsund krónur á tímann.


Þrasarar til vinstri
Svo á að heita að vinstri menn séu við völd hér og þar. Hafi það gilt um hægri menn sem Hannes Hólmsteinn orðaði svo prýðilega á velmektardögum útrásar og arðgreiðslna að þeir vilji „græða á daginn og grilla á kvöldin" má kannski segja að vinstri menn gefi um þessar mundir einkum þá mynd af sér að þeir vilji röfla á daginn og rífast á kvöldin. Vinstri menn virðast hreinlega ekki í rónni fyrr en þeim hefur tekist að sannfæra hvern einasta landsmann um að kjósa aldrei framar vinstri flokk, hverju nafni sem hann nefnist.

Það er eins og þeir átti sig ekki á því að fólk kaus þá ekki til að rífast. Þeir eru ekki kosnir fyrst og fremst til að þaulrækta hvert einasta hugsanlegt ágreiningsefni sem má finna – þó að það sé auðvitað ágætt að skiptast á skoðunum og vera hreinskiptinn þá þarf líka stundum að tala saman – og standa saman; þeir eru ekki heldur kosnir til að láta smjör drjúpa af hverju strái eða uppfylla hverja ósk hvers einasta manns – þeir eru ekki kosnir til að vera andi í lampa – og þeir eru ekki einu sinni endilega kosnir til að tjá ævinlega hina einu ósveigjanlega alréttu skoðun í hverju máli.
Kjósendur ætlast hins vegar til þess að það fólk sem þeir velja sem fulltrúa sína á þing vinni saman og sýni hvert öðru lágmarksvirðingu, sitji ekki á svikráðum hvert við annað heldur einbeiti sér að því að leysa þau verkefni sem ber að höndum af trúmennsku og með hagsmuni fjöldans að leiðarljósi. Það er kannski til mikils mælst og kannski finnst þessu fólki miklu skemmtilegra að rífast og gildir þar sjálfsagt hið fornkveðna að yfirleitt er meira gaman að þrátta sjálfur en að hlusta á annarra manna þras. En þetta fólk er sem sé fulltrúar kjósenda, því er ætlað að standa fyrir ákveðin grundvallaratriði í lífsviðhorfum og því er ætlað að vinna saman; þessir fulltrúar okkar og þjónar eru kosnir til að að finna út úr því – í sameiningu – hvernig best er að leysa mál, fremur en að leita ævinlega þess sem flækir mál, þeir eru kosnir til að standa vörð um ákveðin réttindi fólks, vinna gegn ójöfnuði og óréttlæti. Sumir hafa nú þegar hent frá sér völdunum og selt Sjálfstæðismönnum sjálfdæmi nú þegar, eins og gerðist í Kópavogi. Aðrir halda tilfinningaþrungnar ræður um að þeir hafi misskilið sig þegar þeir álpuðust á sínum tíma til að vera sammála eigin ríkisstjórn í Landsdómsmálinu.


Þvergirðingar til hægri
Hægri menn þverskallast við að viðurkenna að nokkuð í stefnu þeirra hafi leitt til ófarnaðar. Á meðan þeir bíða eftir því að komast að á ný dunda þeir sér við að semja bækur um kommúnismann eins og hann sé einhvers staðar á dagskrá annars staðar en í Valhöll, í því skyni að telja fólki trú um að Gúlagið sé einasta hugsanlega mótvægið við það þjóðfélag óréttlætis, ójafnaðar, misskiptingar og auðræðis sem er hugsjón þessara manna.

Það er partur af stríðinu um Söguna. Ekki er einungis ætlun þeirra að innprenta þjóðinni að kommúnískt einræði bíði hennar ef hún hleypi Flokknum ekki aftur að völdum – og þar með yrði auðmönnum og aflendingum sleppt lausum til að rústa því sem eftir kann að vera af atvinnulífi í landinu – heldur er allt kapp lagt á að láta þá söguskýringu verða ofan á að Hrunið hafi verið hamfarir að utan sem enginn mannlegur máttur hefði getað spornað við, og að þar hafi tólf ára valdatíð Sjálfstæðisflokksins og markvisst afnám reglugerða og eftirlits með peningaöflunum ekki haft neitt að segja: Þetta var allt Bretum og Hollendingum að kenna.

Sjálfur hef ég haft um það bil fimmtán skoðanir á Landsdómsmálinu svokallaða, oft allar í einu. Það held ég að gildi um okkur æði mörg. Við finnum til með Geir Haarde mörg hver þrátt fyrir allt og skynjum að það er ekki alls kostar réttlátt, að láta hann bera burt syndir heimsins. Við spyrjum: hvað með þennan og þennan og þennan? Af hverju er ekki búið að lögsækja verstu fjárplógsmennina? Af hverju fá þeir enn að reka fyrirtæki og yfirleitt hafa fjárráð? Og er það ekki einmitt rangt hjá auðræðissinnunum að stefnan hafi ekki brugðist heldur bara fólk: var það ekki einmitt þannig að stefnan var röng? Geir Haarde aðhylltist ranga stefnu og framfylgdi henni eins og hann var kosinn til að gera í lýðræðislegum kosningum. Ber okkur ekki þá að sjá til þess að menn með slíka stefnu komist ekki á ný til áhrifa? Jú, allt þetta: en á móti kemur að við vitnaleiðslur þurfa eiðsvarnir þátttakendur í hruninu að segja frá því sem gerðist. Það skiptir miklu máli. Og Geir gefst tækifæri til að standa fyrir sínu máli í stað þess að bera þessa byrði alla ævi: að hafa strandað þjóðarskútunni.

Athugið. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Vísir hvetur lesendur til að halda sig við málefnalega umræðu. Einnig áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi eða ósæmilegar athugasemdir.

Fleiri fréttir - Fastir pennar

Fastir pennar 22. maí. 2012 06:00

Atkvæðaveiðigjald

Ríkisstjórnin kynnti í síðustu viku með talsverðum lúðrablæstri svokallaða fjárfestingaáæt...  

Meira
Fastir pennar 22. maí. 2012 06:00

Velferðarráðherra og sérgreinalæknar?

Í umræðunni undanfarið hefur verið tíðrætt um gjöld vegna komu til sérfræðilækna og svokal...  

Meira
Fastir pennar 21. maí. 2012 20:00

Er meyjarhaftið mýta?

Sæl, Sigga Dögg. Ég las greinina þína um mýtuna um þröngu píkuna og var mjög hrifin. Mig l...  

Meira
Fastir pennar 21. maí. 2012 06:00

Hinn ómissandi óþarfi

Listahátíðin í Reykjavík var alltaf stórviðburður í lífi föður míns....  

Meira
Fastir pennar 21. maí. 2012 06:00

Langtímaatvinnuleysi gefinn gaumur

Eftir langt skeið þar sem atvinnuleysi var nánast óþekkt á Íslandi skall það á af þunga ve...  

Meira
Fastir pennar 19. maí. 2012 06:00

Goðsögnum hnekkt

Háskóli Íslands hefur kannað hvernig einkunnir nemenda skiptast eftir þeim framhaldsskólum...  

Meira
Fastir pennar 19. maí. 2012 06:00

Uppvakningur tekinn í fóstur

Sagt var að siðfræði margra þeirra sem áttu og stjórnuðu gömlu bönkunum fyrir hrun hefði r...  

Meira
Fastir pennar 18. maí. 2012 11:03

Til varnar Suðurnesjum

Pabbi vann tvo vetur í Grindavík eftir að hann kláraði kennaranám, frá 1972 til 1974. Pabb...  

Meira
Fastir pennar 18. maí. 2012 08:00

Lög lygum líkust

Í frumvarpi að lögum um fjölmiðla sem nú liggur fyrir þinginu er lagt til að útlendingar u...  

Meira
Fastir pennar 18. maí. 2012 06:00

Ríkisbónus

Í desember 2009 var samið um uppgjör milli gamla og nýja Landsbankans. Í því fólst meðal a...  

Meira
Fastir pennar 17. maí. 2012 06:00

Óttinn við upplýsingar

Þórunn Sveinbjarnardóttir, fyrrverandi þingmaður Samfylkingarinnar, skrifaði grein hér í b...  

Meira
Fastir pennar 17. maí. 2012 06:00

Útlendingarnir ógurlegu

Allir hafa lent í einhverjum vandræðum með nágranna sína. Lengi var saga hvers lands líka ...  

Meira
Fastir pennar 16. maí. 2012 06:00

Brjótið lög!

Íslensk stjórnvöld hafa um langt skeið sett mikinn þrýsting á lífeyrissjóði landsins um að...  

Meira
Fastir pennar 15. maí. 2012 08:00

Tímamót í mannréttindabaráttu

Það eru merkileg tímamót í réttindabaráttu samkynhneigðra þegar valdamesti maður heims, Ba...  

Meira
Fastir pennar 15. maí. 2012 06:00

Dómur Landsdóms - fyrri hluti

Hinn 23. apríl sl. kvað Landsdómur upp dóm í máli fyrrverandi forsætisráðherra. Hann marka...  

Meira
Fastir pennar 14. maí. 2012 09:14

Það gefur á bátinn …

Það eru ekki margar stéttir sem njóta almennrar virðingar í samfélaginu....  

Meira
Fastir pennar 14. maí. 2012 09:14

Skýrar línur

Ólafur Ragnar Grímsson forsetaframbjóðandi birtist landsmönnum í gamalkunnugum, pólitískum...  

Meira
Fastir pennar 14. maí. 2012 03:13

Heimilisreksturinn

Ég og konan mín keyptum okkar fyrstu íbúð fyrr á þessu ári. Samhliða því fórum við yfir re...  

Meira
Fastir pennar 12. maí. 2012 06:00

Pólitík eða gæði

Vísindarannsóknir á Íslandi eru fjársveltar. Þar að auki er alltof stórum hluta þeirra tak...  

Meira
Fastir pennar 12. maí. 2012 06:00

Málþófið

Í tímaþröng eru mál þæfð í öllum þjóðþingum. Tímaþröng er klípa sem ríkisstjórnir koma sér...  

Meira
Fastir pennar 11. maí. 2012 06:00

Óþolandi ógagnsæi

Seðlabanki Íslands kynnti á miðvikudag niðurstöðu þriggja gjaldeyrisútboða sem farið hafa ...  

Meira
Fastir pennar 11. maí. 2012 06:00

Ónæg rök fyrir hjálmaskyldu

Kæri lesandi, settir þú á þig hjálm í morgun? Nei, ég er ekki sérstaklega að tala við þig ...  

Meira
Fastir pennar 10. maí. 2012 06:00

Vondar fyrirmyndir á Alþingi

Vanskil ársreikninga til réttra yfirvalda virðast landlægur vandi á Íslandi. Fréttablaðið ...  

Meira
Fastir pennar 09. maí. 2012 06:00

Sök þarf að sanna

Paul Larsson, prófessor við Lögregluháskólann í Ósló, ráðlagði Íslendingum í samtali við F...  

Meira

Mest lesið: Umræðan

Nýjast á Vísi

Fréttablaðið

  • Forsíða Fréttablaðsins
  • Serblad
  • Allt

Stöð2

  • Ísland í dag
  • Kvöldfréttir
  • Veðurfréttir
Þú ert hér: Forsíða / Umræðan / Fastir pennar / Þrasarar og þvergirðingar