Viðskipti innlent

Þrefalt fleiri fyrirtæki til sölu

ÞSJ skrifar
Gunnar Andersen, forstjóri FME.
Gunnar Andersen, forstjóri FME.
Félögum í óskyldum rekstri í eigu viðskiptabanka, sparisjóða og lánafyrirtækja hefur fækkað um sjö frá 1. nóvember síðastliðnum. Þau voru þá 132 talsins en eru nú 125. Félögum sem eru komin í formlegt söluferli hefur þó fjölgað mikið á síðustu þremur mánuðum. Þau voru 14 í nóvember en eru nú 45. Þetta kemur fram í nýjum tölum Fjármálaeftirlitsins (FME) um tímabundna starfsemi lánastofnana sem Fréttablaðið hefur undir höndum.

Samkvæmt lögum mega fjármálafyrirtæki einungis eiga félög í óskyldum rekstri í 12 mánuði hið mesta án þess að leita eftir undanþágu vegna eignarhaldsins. Í tölum FME kemur fram að 26 þeirra félaga sem eru í eigu fjármálafyrirtækja séu innan upphaflegra tímamarka. Önnur hafa sóst eftir, og fengið fresti. Í tölum sem FME birti í nóvember kom fram að bankarnir hefðu frest til áramóta að losa um eignarhald á 66 félögum. Ljóst er að það hefur ekki tekist og flest þeirra félaga hafa fengið viðbótarfresti.

Athygli vekur að félögum sem eru í endurskipulagningu fækkar úr 27 í fimm. Að sama skapi hefur félögum sem komin eru í söluferli fjölgað þrefalt og fjórðungi fleiri eru komin í endanlegt slitaferli.

Gunnar Andersen, forstjóri FME, telur að aukinn þrýstingur eftirlitsins og mikil umræða um eignarhald banka á fyrirtækjum í óskyldum rekstri hafi haft jákvæð áhrif á vinnslu þessara mála. Mun fleiri félög séu nú komin í söluferli eða endanlega slitameðferð. „Auðvitað viljum við öll sjá þetta gerast hraðar. En þetta er þungt ferli og er að hreyfast í rétta átt. Okkur finnst að umræðan og þrýstingur okkar hafa haft góð áhrif."

Að sögn Gunnars þrýstir eftirlitið á að félög séu sett í söluferli ef áætlun liggur frammi um að slíkt eigi að gerast. „Það þarf alltaf að taka til í þessum félögum. Í sumum tilvikum eru þetta félög með til dæmis dótturfélög erlendis sem þarf að taka til í. Slíkt getur seinkað ferlinu. Ef það er lögð fram vel rökstudd umsókn um frest vegna svona aðstæðna þá er hann veittur. En 45 félög eru komin í sölumeðferð. Það er góð þróun." - þsj





Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×