Þrettándabrennum frestað vegna óveðurs ingvar haraldsson skrifar 6. janúar 2015 07:00 Um hádegisbilið í dag verður tilkynnt hvort þrettándabrennur í Grafarvogi og við Ægisíðu verða haldnar. vísir/ernir
Óvíst er hvort þrettándaskemmtanir- og brennur sem á dagskrá voru í dag verði haldnar vegna veðurs. Veðurstofa Íslands hefur sent út viðvörun um að búast megi við stormi um landið sunnan- og vestanvert í kvöld. Vindhraði verður 12-20 metrar á sekúndu auk þess að það spáir rigningu. Þegar er búið að fresta þrettándabrennum í Grafarholti og á Akranesi, þrettándagleði HK í Digranesi og á Selfossi. Þrettándabrennur í Grafarvogi og við Ægisíðu og þrettándagleði Hauka eru enn á dagskrá. Endanleg ákvörðun um hvort þær verða haldnar verður tekin um hádegisbilið í dag. Þór hyggst halda þrettándagleði á Þórsvellinum á Akureyri sem hefst klukkan fimm í dag. Leiki veðurguðirnir Akureyringa grátt verða hátíðahöldin færð inn í Bogann.@kvót fréttasíður nafnogtitill:Bjarni Brynjólfsson upplýsingafulltrúi ReykjavíkurborgarReykjavíkurborg tekur ekki jólatré en aðrir gera þaðReykjavíkurborg er eina sveitarfélag höfðuborgarsvæðins sem ekki safnar saman jólatrjám fyrir íbúa sína. Í öðrum sveitarfélögum eru íbúðar beðnir að setja jólatré fyrir utan lóðamörk þar sem þeim verður safnað saman frá miðvikudeginum 7. janúar. Reykvíkingar þurfa sjálfir að sjá um að koma jólatrjám í endurvinnslustöðvar Sorpu óski þeir þess. Bjarni Brynjólfsson, upplýsingafulltrúi Reykjavíkurborgar, segir að söfnun jólatrjáa hafi verið hætt í sparnaðarskyni eftir jólin árið 2008. „Það kostaði borgina um tíu milljónir króna á ári að tína jólatrén upp,“ segir Bjarni og bætir við að almennt hafi fyrirkomulagið gefist vel. „Við sjáum að minnsta kosti ekki mörg tré á flækingi,“ segir Bjarni.
Mest lesið Vaktin: Bílaplanið þakið hrauni Innlent Kosningavaktin: Íslendingar ganga að kjörborðinu Innlent Telur Bláa lónið öruggt vegna varnargarðanna Innlent Samfylkingin bætir við sig í fyrsta sinn síðan í maí og Píratar úti Innlent Kort af staðsetningu gossprungunnar Innlent Segir komið fram við sig eins og glæpamann fyrir að vilja vera heima í Grindavík Innlent Siðanefndin klofin í máli Gaetz en gögn farin að leka Erlent Hraun rann yfir Grindavíkurveg Innlent Magnaðar myndir sýna Grindavíkurveg undir hrauni Innlent Barnabarnið hélt að gosið væri grín þegar afi reyndi að koma honum á lappir Innlent Fleiri fréttir „Þetta var bara besta stund kosningabaráttunnar til þessa“ Komust langt að gosinu því það gleymdist að loka veginum Nýsköpun eða „rándýr aðgangur“?: 300.000 króna heilskimun aftur á boðstólnum Telur Bláa lónið öruggt vegna varnargarðanna Káfaði á konu á salerni skemmtistaðar Segir komið fram við sig eins og glæpamann fyrir að vilja vera heima í Grindavík „Ekki rólegur með hraunið ofan á“ Samfylkingin bætir við sig í fyrsta sinn síðan í maí og Píratar úti Varar við sprengjum á svæðinu við gosstöðvarnar Glóðvolg könnun og hraun rennur enn á ný Gandri fær grænt ljós Magnaðar myndir sýna Grindavíkurveg undir hrauni Loftslagsáætlun Íslands sögð ómarkviss og bjartsýn úr hófi fram Borgarísjaki en enginn björn Svartsengi keyrt á varaafli Hraun náð Njarðvíkuræð Verði að koma í ljós hvort fergjun Njarðvíkuræðar heldur Hraun rann yfir Grindavíkurveg Miðlarnir úti í heimi ekki eins áhugasamir og fyrir ári Barnabarnið hélt að gosið væri grín þegar afi reyndi að koma honum á lappir Kort af staðsetningu gossprungunnar Áttu ekki von á eldgosi í nóvember Rýming í Bláa lóninu og Grindavík gengur vel Stukku út í glugga og biðu eftir eldgosinu Vaktin: Bílaplanið þakið hrauni Tæp tíu þúsund hafa kosið utan kjörfundar Vilja samræmdar reglur um símafrí í skólum Um 150 manns munu fá vinnu við smíði nýrrar Ölfusárbrúar Fyrrverandi forseti furðar sig á taktík kennara Hafnar því að honum hafi verið vísað út Sjá meira