Þróa dróna fyrir leitarstörf Haraldur Guðmundsson skrifar 27. desember 2013 12:26
Sprotafyrirtækið SAReye hefur þróað hugbúnað fyrir dróna sem greinir loftmyndir og vinnur úr þeim. Stofnendur fyrirtækisins segja að hugbúnaðurinn geti nýst við leit að týndu fólki. „Þetta kom til þegar tveir menn með sitthvort áhugasviðið, annars vegar björgunarsveitastörf og hins vegar ómönnuð flygildi, voru að ræða um leit og björgun og sáu tækifæri í að bæta við ákveðnu lagi inn í björgunarflóruna,“ segir Guðbrandur Örn Arnarson, viðskiptafræðingur og einn af stofnendum SAReye. Aðrir stofnendur eru þeir Björn Geir Leifsson, Hjörtur Geir Björnsson og Skúli Freyr Hinriksson. Hjörtur Geir og Skúli Freyr tóku í ár þátt í nýsköpunarkeppninni Gullegginu og unnu hana. Búnaðurinn er nú að sögn Guðbrands tilbúinn til notkunar. „Menn hafa verið að nota þyrlur og fisflugvélar við leit og leit úr lofti er mjög öflug. Hún er hins vegar óheyrilega dýr. Klukkutími í þyrlu kostar hvítuna úr augunum. Fis og flygildi eru miklu betri kostur að því leytinu til að þau eru ódýr og það er mjög fljótlegt að koma þeim í gang. En þægilegast er að vera með búnað sem hægt er að henda upp í loft án fyrirvara. Og með þessum flygildum og hugbúnaði er það hægt. Nú bíðum við bara eftir fyrstu leit sem myndi henta við að prófa búnaðinn,“ segir Guðbrandur. Aðalframleiðsluvara SAReye er hins vegar aðgerðastjórnunarkerfi sem Slysavarnafélagið Landsbjörg keypti nýverið. „Þar má fylgjast með og skrá allar aðgerðir íslenskra björgunarsveita um allt land og er þessi hugbúnaður að hjálpa mikið til við framkvæmd björgunaraðgerða."
Mest lesið Kjartan Guðmundsson er látinn Innlent New York Times fjallar um íslenskar pylsur: Ekkert jafnist á við eina með öllu Innlent Gular viðvaranir taka gildi í enn eitt skiptið Veður Íslendingur tók þátt í að gera tunglskotið að veruleika Innlent Ísland, Grænland og Færeyjar saman hefðu sterka samningsstöðu Innlent Stjórnstöð í Kópavogi sem líkist geimferðamiðstöð Innlent „Ég táraðist í flugvélinni“ Innlent Gerði grín að Macron og eiginkonu hans með frönskum hreim Erlent Bondi vikið úr embætti dómsmálaráðherra Erlent Fyrsta mannaða tunglskotið frá 1972: Lögð af stað til tunglsins Erlent Fleiri fréttir Ljósmyndarinn lifir ekki á „tagginu“ einu saman Framsókn næði ekki inn á þing Þáttaskil í sögu Lýðskólans á Flateyri Innanlandsflugi aflýst vegna veðurs Hryðjuverkamálið á dagskrá Landsréttar í maí Umferðin gengur hægt en stóráfallalaust fyrir sig Íslendingur tók þátt í að gera tunglskotið að veruleika Oddvita sparkað af listanum og segir af sér formennsku Sendiherrum og skrifstofustjórum stokkað Ísland, Grænland og Færeyjar saman hefðu sterka samningsstöðu Kjartan Guðmundsson er látinn Sjálfstæðismenn og óháðir staðfesta listann í Vogum New York Times fjallar um íslenskar pylsur: Ekkert jafnist á við eina með öllu Stjórnstöð í Kópavogi sem líkist geimferðamiðstöð „Leyfið grínurunum aðeins að eiga sviðið í dag“ Vilja fá valdið aftur Hátt í sextíu prósent óánægð með störf borgarstjóra „Ég táraðist í flugvélinni“ Finna aukna fordóma: Syninum sagt að „drulla sér aftur upp í tré“ Yfirgaf Sjálfstæðisflokkinn og leiðir Miðflokkinn í Borgarbyggð Enn ein veðurviðvörunin yfirvofandi í nótt Síðasti séns til að skrá kílómetrastöðuna Páskaeggja-„hefðinni“ var komið á í Covid Gestum neyðarskýla fækkar verulega milli ára Ráðherra vissi af gabbi um kílómetragjald fyrir fram Icelandair á leið til Möltu og heimilislausum fækkar Segja Skúla Tómas hafa hneppt móður þeirra í „lyfjafjötra“ Sárt fyrir aðstandendur að enginn taki ábyrgð Veiðimenn klæði sig í föðurlandið á morgun Mesta kvikusöfnun til þessa Sjá meira