Þrýstihópar

Fréttablaðið Fastir pennar 29. desember 2011 06:00
Þórður Snær Júlíusson thordur@frettabladid.is
Þórður Snær Júlíusson thordur@frettabladid.is
Þórður Snær Júlíusson skrifar:
Hópur lögmanna ýmissa sakborninga sem eru til rannsóknar vegna ætlaðra efnahagsbrota skrifuðu grein skömmu fyrir jól. Þar hvöttu þeir fjölmiðla landsins til „að sýna þann siðferðisstyrk að leyfa mönnum að njóta sjálfsagðra mannréttinda þar til leyst hefur verið úr ágreiningi um sekt þeirra fyrir dómstólum".

Einn úr hópnum, Reimar Pétursson, skrifaði síðan aðra grein, sem birtist í Morgunblaðinu á aðfangadag. Þar segir hann vanda fjölmiðla vera mikinn „þegar kemur að aðhaldshlutverki þeirra gagnvart stjórnvöldum eða öðrum ráðandi öflum í þjóðfélaginu". Þetta leiði til þess að „fjölmiðlar veita sérstökum saksóknara lítið sem ekkert aðhald, annað en það að krefjast jafnvel enn meiri hörku gagnvart sakborningum. Tíðarandinn og rekstur fjölmiðla krefst þess. Allir ættu að hafa þetta í huga við lestur frétta um rannsóknir sérstaks saksóknara".

Í nýlegri greinargerð lögmanns Baldurs Guðlaugssonar, sem hefur verið dæmdur sekur fyrir innherjasvik og brot í opinberu starfi, segir að Baldur hafi orðið fyrir „dæmalausum áföllum og ágangi á mannorð sitt og allt persónulegt starf og líf, en þar hefur fjölmiðlaumfjöllun spilað stórt hlutverk".

Inntakið hjá öllum er það sama: fjölmiðlar eiga ekki að fjalla um þessi mál. Ef þeir gera það eru þeir gerendur. Bera ábyrgðina og skömmina sem fylgir því að dæma menn fyrir fram. Fjölmiðlar sinna aðhaldshlutverki sínu best, að þeirra mati, með því að segja ekki fréttir.

Svona aðfinnslur eru ekki nýjar af nálinni. Meintir sakamenn og aðilar á þeirra vegum hafa ítrekað reynt að hafa óbein áhrif á fréttaskrif með ýmsum hætti á liðnum árum. Oftast eyða þeir reyndar mestu púðri í að upplýsa hversu léleg rannsóknarskýrslan sé, hversu illa gefnir rannsakendur þeirra séu og hversu illa gefinn fréttamaðurinn sé ef hann taki ekki undir með þeim. Það er að vissu leyti skiljanlegt að þessir aðilar hagi málflutningi sínum svona. Flestir þeirra hafa stórar hugmyndir um eigið ágæti, sumir virðast beinleiðis upplifa sig sem einhvers konar hálfguði, og sjálfsmynd þeirra er beintengd við það sem þeir gerðu á hinum fölsku uppgangstímum. Þeir hafa því lítinn áhuga á að sjá hana molna með því að tengjast raunveruleikanum.

En hlutverk fréttastofa fjölmiðla er einfalt: að segja fréttir. Þær reyna að gera það heiðarlega og með það fyrir augum að upplýsa lesendur, eða áhorfendur, sína. Það er meginhlutverk þeirra og við þá liggur trúnaður fréttastofu. Þær eiga að segja satt, ekki að gæta hagsmuna. Hvorki sakborninga né annarra.

Á Íslandi áttu sér stað atburðir sem eru einstæðir. Umfang blekkingarinnar var hvergi meiri og afleiðingar hennar höfðu gríðarleg áhrif á allt samfélagið. Þetta kemur okkur öllum við og sakamálarannsóknir hrunsins eru því ekki einkamál sakborninga. Málflutningur lögmannanna og skjólstæðinga þeirra verður að skoðast í ljósi þess að hér er háð barátta á milli gerenda í viðskiptum, innan embættismannakerfisins eða í stjórnmálum fyrir bankahrun um hvernig sagan verði skrifuð. Tilraunir til að hafa áhrif á fréttaumfjöllun eru stór liður í þeirri baráttu. Allir ættu að hafa þetta í huga þegar þeir lesa gagnrýni þeirra á störf fjölmiðla.

Athugið. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Vísir hvetur lesendur til að halda sig við málefnalega umræðu. Einnig áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi eða ósæmilegar athugasemdir.

Fleiri fréttir - Fastir pennar

Fastir pennar 22. maí. 2012 06:00

Atkvæðaveiðigjald

Ríkisstjórnin kynnti í síðustu viku með talsverðum lúðrablæstri svokallaða fjárfestingaáæt...  

Meira
Fastir pennar 22. maí. 2012 06:00

Velferðarráðherra og sérgreinalæknar?

Í umræðunni undanfarið hefur verið tíðrætt um gjöld vegna komu til sérfræðilækna og svokal...  

Meira
Fastir pennar 21. maí. 2012 20:00

Er meyjarhaftið mýta?

Sæl, Sigga Dögg. Ég las greinina þína um mýtuna um þröngu píkuna og var mjög hrifin. Mig l...  

Meira
Fastir pennar 21. maí. 2012 06:00

Hinn ómissandi óþarfi

Listahátíðin í Reykjavík var alltaf stórviðburður í lífi föður míns....  

Meira
Fastir pennar 21. maí. 2012 06:00

Langtímaatvinnuleysi gefinn gaumur

Eftir langt skeið þar sem atvinnuleysi var nánast óþekkt á Íslandi skall það á af þunga ve...  

Meira
Fastir pennar 19. maí. 2012 06:00

Goðsögnum hnekkt

Háskóli Íslands hefur kannað hvernig einkunnir nemenda skiptast eftir þeim framhaldsskólum...  

Meira
Fastir pennar 19. maí. 2012 06:00

Uppvakningur tekinn í fóstur

Sagt var að siðfræði margra þeirra sem áttu og stjórnuðu gömlu bönkunum fyrir hrun hefði r...  

Meira
Fastir pennar 18. maí. 2012 11:03

Til varnar Suðurnesjum

Pabbi vann tvo vetur í Grindavík eftir að hann kláraði kennaranám, frá 1972 til 1974. Pabb...  

Meira
Fastir pennar 18. maí. 2012 08:00

Lög lygum líkust

Í frumvarpi að lögum um fjölmiðla sem nú liggur fyrir þinginu er lagt til að útlendingar u...  

Meira
Fastir pennar 18. maí. 2012 06:00

Ríkisbónus

Í desember 2009 var samið um uppgjör milli gamla og nýja Landsbankans. Í því fólst meðal a...  

Meira
Fastir pennar 17. maí. 2012 06:00

Óttinn við upplýsingar

Þórunn Sveinbjarnardóttir, fyrrverandi þingmaður Samfylkingarinnar, skrifaði grein hér í b...  

Meira
Fastir pennar 17. maí. 2012 06:00

Útlendingarnir ógurlegu

Allir hafa lent í einhverjum vandræðum með nágranna sína. Lengi var saga hvers lands líka ...  

Meira
Fastir pennar 16. maí. 2012 06:00

Brjótið lög!

Íslensk stjórnvöld hafa um langt skeið sett mikinn þrýsting á lífeyrissjóði landsins um að...  

Meira
Fastir pennar 15. maí. 2012 08:00

Tímamót í mannréttindabaráttu

Það eru merkileg tímamót í réttindabaráttu samkynhneigðra þegar valdamesti maður heims, Ba...  

Meira
Fastir pennar 15. maí. 2012 06:00

Dómur Landsdóms - fyrri hluti

Hinn 23. apríl sl. kvað Landsdómur upp dóm í máli fyrrverandi forsætisráðherra. Hann marka...  

Meira
Fastir pennar 14. maí. 2012 09:14

Það gefur á bátinn …

Það eru ekki margar stéttir sem njóta almennrar virðingar í samfélaginu....  

Meira
Fastir pennar 14. maí. 2012 09:14

Skýrar línur

Ólafur Ragnar Grímsson forsetaframbjóðandi birtist landsmönnum í gamalkunnugum, pólitískum...  

Meira
Fastir pennar 14. maí. 2012 03:13

Heimilisreksturinn

Ég og konan mín keyptum okkar fyrstu íbúð fyrr á þessu ári. Samhliða því fórum við yfir re...  

Meira
Fastir pennar 12. maí. 2012 06:00

Pólitík eða gæði

Vísindarannsóknir á Íslandi eru fjársveltar. Þar að auki er alltof stórum hluta þeirra tak...  

Meira
Fastir pennar 12. maí. 2012 06:00

Málþófið

Í tímaþröng eru mál þæfð í öllum þjóðþingum. Tímaþröng er klípa sem ríkisstjórnir koma sér...  

Meira
Fastir pennar 11. maí. 2012 06:00

Óþolandi ógagnsæi

Seðlabanki Íslands kynnti á miðvikudag niðurstöðu þriggja gjaldeyrisútboða sem farið hafa ...  

Meira
Fastir pennar 11. maí. 2012 06:00

Ónæg rök fyrir hjálmaskyldu

Kæri lesandi, settir þú á þig hjálm í morgun? Nei, ég er ekki sérstaklega að tala við þig ...  

Meira
Fastir pennar 10. maí. 2012 06:00

Vondar fyrirmyndir á Alþingi

Vanskil ársreikninga til réttra yfirvalda virðast landlægur vandi á Íslandi. Fréttablaðið ...  

Meira
Fastir pennar 09. maí. 2012 06:00

Sök þarf að sanna

Paul Larsson, prófessor við Lögregluháskólann í Ósló, ráðlagði Íslendingum í samtali við F...  

Meira

Mest lesið: Umræðan

Nýjast á Vísi

Fréttablaðið

  • Forsíða Fréttablaðsins
  • Serblad
  • Allt

Stöð2

  • Ísland í dag
  • Kvöldfréttir
  • Veðurfréttir
Þú ert hér: Forsíða / Umræðan / Fastir pennar / Þrýstihópar