Tilboðin himinhátt yfir kostnaðaráætlun 26. september 2011 20:15 Patreksfjörður.
Aðeins tvö tilboð bárust í ræsa- og brúagerð á sunnanverðum Vestfjörðum og reyndust bæði svo hátt yfir kostnaðaráætlun að Vegagerðin ákvað að vinna verkið sjálf. Krafa um að verktakar hafi jákvæða eiginfjárstöðu er talin geta skýrt fá tilboð. Verkefnin eru á leiðinni milli Brjánslækjar og Patreksfjarðar snúa að því að leggja af þrjár einbreiðar brýr; yfir Hlaðseyrará og Raknadalsá í Patreksfirði, og Hrísnesá á Barðaströnd. Þau eru unnin fyrir hluta af 350 milljóna króna aukafjárveitingu stjórnvalda til að vegagerðar á Vestfjörðum og voru boðin út í einu lagi. Á tímum verkefnaskorts kom það vegagerðarmönnum á óvart í síðasta mánuði að aðeins tvö tilboð bárust, og reyndust bæði hátt yfir kostnaðaráætlun, sem var upp á tæpar 58 milljónir króna. Geirnaglinn á Ísafirði bauð 86 milljónir, eða 48 prósent yfir áætlun, og Græðir á Flateyri bauð 77 milljónir, eða 33 prósent yfir áætlun. Vegagerðin hafnaði báðum og ákvað í staðinn að vinna sjálf verkið en ráða til sín undirverktaka. Magnús Jóhannsson, svæðisstjóri Vegagerðarinnar, telur það geta skýrt fá tilboð að gerð var krafa um að verktakar hefðu jákvætt eigið fé og þeir væru fáir slíkir eftir í greininni. Einnig kunni verkið að hafa verið of lítið til að það freistaði stærstu verktakanna. Fyrir vestan fagna menn samt sem áður vegarbótunum. Ásthildur Sturludóttir, bæjarstjóri Vesturbyggðar, segir frábært að losna við krappar beygjur og einbreiðar brýr. Þær vilji menn losna við sem fyrst.
Mest lesið Trump segist vera að íhuga að draga saman seglin í Þýskalandi Erlent Vændiskaupendur verði nafngreindir og þeim stungið í steininn Innlent Rifjaði upp erfitt augnablik frá 1994 til að skjóta á mótherja Innlent Einhuga um að lengja gildistíma ökuskírteina Innlent Nafn mannsins sem lést í fallhlífastökki í Danmörku Innlent Stefni í sömu átt og Svíþjóð Innlent Svæðisskrifstofur Guðmundar Inga líklega slegnar út af borðinu Innlent Mamdani vill að Bretar skili Koh-i-Noor Erlent Bútaði líkið í sundur í uppblásinni sundlaug Erlent Baldur til Eyja Innlent Fleiri fréttir „Konur upplifa ekki öryggi í íslensku samfélagi“ Nafn mannsins sem lést í fallhlífastökki í Danmörku Mátti ekki arfleiða sambýliskonuna að séreigninni Dómsmálaráðherra boðar herta löggjöf í vændismálum Vændiskaupendur verði nafngreindir og þeim stungið í steininn Svör Kristrúnar minni meira á Keir Starmer en Mette Fredriksen Flugvallarstæði Hvassahrauns á mesta áhættusvæði hraunflæðis Svæðisskrifstofur Guðmundar Inga líklega slegnar út af borðinu Helmingur gæti ekki mætt 100 þúsund króna útgjöldum Bein útsending: Svarar fyrir skipulagsbreytingar á framhaldsskólum Bein útsending: Ræða markmiðadrifði hagkerfi í þaula Rifjaði upp erfitt augnablik frá 1994 til að skjóta á mótherja Einhuga um að lengja gildistíma ökuskírteina Baldur til Eyja „Þetta er gríðarlegt högg fyrir þessi minni bæjarfélög“ „Það er mikið verið að suða“ Stefni í sömu átt og Svíþjóð Gripu til sinna ráða og settu Starlink í skólarútuna „Hún er skrifuð af mér“ Ísland stefni í sömu átt og Svíþjóð Fjórir í varðhaldi vegna Dettifossmálsins Rafgeymar gátu ekki fætt dælur þegar Ormurinn langi sökk Mega hjóla gegn einstefnu Greiða hundruð þúsunda fyrir heimsókn Tinna til Íslands Bein útsending: Oddvitar í Reykjavík á kosningafundi Viðskiptaráðs Viðreisn upp fyrir Sjálfstæðisflokk og Framsókn bætir við sig Leiðir áfram unga miðflokksmenn Batahorfur betri eftir umferðarslys við Skógarveg „Það var reynt að fá þá fyrr að verkinu“ Algengt að krafa sé gerð í sambandi um að deila stöðugt staðsetningu Sjá meira