Innlent

Tuttugu milljarða króna fjárfesting Verne Holdings

Verne Holdings hyggur á 20 milljarða króna fjárfestingu hér á landi í tengslum við uppbyggingu alþjóðlegs gagnavers hér á næstu fimm árum og verða óbein efnahagsleg áhrif um 40 milljarðar króna.

Þetta kemur fram í tilkynningu frá félaginu sem í dag kynnti áform sín um uppbyggingu gagnavers á gamla varnarliðssvæðin. Eins og fram kom í hádegisfréttum Stöðvar 2 skapast yfir 100 störf við gagnaverið á næstu árum en það mun hýsa tölvubúnað, neþjóna og gagnageymslur fyrir alþjóðlega stórnotendur. Þá mun Verne holdings útvega þeim örugga aðstöðu, orku og nettengingar. Meðal viðskiptavina gagnavera eru netveitur, fjármálafyrirtæki, smásölufyrirtæki og stafræn kvikmyndaver og aðrir aðilar sem þurfa mikla reiknigetu, geymslurými fyrir gögn og öflugar nettengingar.

Á blaðamannafundi í dag skrifaði Verne Holding undir samninga við Landsvirkjun, Farice og Þróunarfélag Keflavíkurflugvallar vegna málsins. Farice leigir Verne Holding flutningsrými á Farice-1 sæstrengnum og hinum nýja Danice-streng sem á að leggja á þessu ári. Samtals mun Verne Holdings hafa aðgang að 160 gígabitum á sekúndu eða 80 gígabitum á hvorum streng. Til samanburðar nota allir landsmenn, fólk og fyrirtæki, tæpa fjóra gígabita á sekúndu nú.

Verne semur við Landsvirkjun um að kaupa af því 25 megavött af rafmagni, en það er fimmtungur af því sem Járnblendiverksmiðjan á Grundartanga notar. Jafnframt hefur Verne möguleika á að panta 25 megavött til viðbótar sem Landsvirkjun afgreiðir innan tilrekinna tímamarka.

Enn fremur kaupir Verne tvö stálgrindarhús sem eru samtals 23 þúsund fermetrar af Þróunarfélagi Keflavíkurflugvallar ásamt smærri eignum undir starfsemina. Möguleikar eru á lóðinni til að byggja tvö hús til viðbótar. Í húsin verða sett öflug kæli- og varaaflskerfi en bent er á að með notkun kalds vatns og lofts úr umhverfi megi spara verulega raforku sem annars færi til kælingar á búnaði í gagnaverinu.

Nýr kafli í atvinnusögu Íslands

Verne Holdings er í eigu Novators, fjárfestingafélags Björgólfs Thors Björgólfssonar, og bandaríska fjárfestingarsjóðsins General Catalyst Partners.

Haft er eftir Vilhjálmi Þorsteinssyni, stjórnarformanni Verne Holdings, að í verkefninu mætist hnattrænar breytingar og íslenskar kjöraðstæður. „Raforka verður sífellt dýrari beggja vegna Atlantshafsins. Netþjónusta og tölvuvinnsla byggist í æ meira mæli á öflugum gangaverum. Ábyrg fyrirtæki leita umhverfisvænni lausna. Brottför hersins af Miðnesheiði, lagning nýs sæstrengs og aðgangur að grænni orku gera okkur kleift að svara brýnni þörf. Ég held að hér sé að byrja nýr kafli í atvinnusögu Íslands," segir Vilhjálmur.


Tengdar fréttir

Verne Holding kynnir netþjónabú hér á landi

Boðað hefur verið til blaðamannafundar í dag þar sem undirritaðir verða samningar félagsins Verne Holdings við Landsvirkjun, Farice og Þróunarfélag Keflavíkurflugvallar í tengslum við rekstur netþjónabús hér á landi.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×