Innlent

Tveimur bjargað af þaki bifreiðar

Mynd úr safni.
Þyrlu landhelgisgæslunnar barst útkall um tíuleytið í gærkvöldi vegna bifreiðar sem festist í Sandavatni suður af Langjökli.

Tveir voru komnir á þak bifreiðarinnar og óskuðu eftir aðstoð. Bifreiðin var vel skorðuð og ekki var talin hætta á veltu.

Þegar á vettvang var komið átti þyrlan erfitt um vik og ekki tókst að hífa fólkið um borð vegna nálægðar háspennulína og lenti því þyrlan og aðstoðaði áhöfnin af landi. Fólkinu var bjargað af þaki bifreiðarinnar og var flutt á sjúkrahús til aðhlynningar.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×