Innlent

Tveir alvarlega slasaðir eftir árekstur

Valur Grettisson skrifar

Tveir einstaklingar voru fluttir alvarlega slasaðir til Reykjavíkur eftir bílslys í Vestur-skaftafellssýslu í dag.

Samkvæmt lögreglunni á Hvolsvelli barst tilkynning til lögreglunnar um hálf fimm leytið. Í ljós kom að tveir jeppar skullu saman á mikilli ferð.

Alls voru fimm í bílunum tveimur. Flytja þurfti aðila úr sitthvorum bílnum til Reykjavíkur en þeir voru fluttir þangað með sjúkrabíl.

Tildrög slyssins eru óljós. Svo virðist sem önnur jeppabifreiðin hafi ekið í veg fyrir hina með fyrrgreindum afleiðingum en áreksturinn átti sér stað við afleggjarann að Dyrhólaey.

Annar hinna slösuðu þurfti að gangast undir aðgerð á Landspítalanum.





Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×