Um 64% vilja að Jón hætti 9. desember 2011 06:45 Jón Bjarnason
Tæplega tveir af hverjum þremur sem afstöðu tóku í nýrri skoðanakönnun Fréttablaðsins og Stöðvar 2 vilja að Jón Bjarnason láti af embætti sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra. Alls segjast 35,7 prósent þeirra sem afstöðu taka vilja að Jón sitji áfram sem ráðherra. Um 64,3 prósent vilja að hann hætti. Stuðningur við Jón er lítið meiri þegar eingöngu er skoðuð afstaða stuðningsmanna flokks Jóns, Vinstri grænna. Alls segjast 37,1 prósent þeirra sem segjast myndu kjósa Vinstri græna vilja að Jón haldi áfram sem ráðherra, en 62,9 prósent vilja að hann láti af embætti sínu. Meðal stuðningsmanna Samfylkingarinnar segjast aðeins 8,3 prósent vilja að Jón sitji áfram, en 91,7 prósent vilja hann út embætti. Um 46,2 prósent þeirra sem styðja Framsóknarflokkinn vilja að Jón haldi ráðherrastól sínum, og 34,5 prósent stuðningsmanna Sjálfstæðisflokksins. Heldur fleiri karlar en konur vilja að Jón sitji áfram. Um 38,3 prósent karla vilja að hann verði áfram ráðherra en 32,6 prósent kvenna. Stuðningur við Jón er talsvert meiri á landsbyggðinni en á höfuðborgarsvæðinu. Um 32,5 prósent borgarbúa sem afstöðu taka vilja að Jón sitji áfram, en 42,5 prósent íbúa landsbyggðarinnar. Hringt var í 800 manns dagana 7. og 8. desember. Þátttakendur voru valdir með slembiúrtaki úr þjóðskrá. Svarendur skiptust jafnt eftir kyni, og hlutfallslega eftir búsetu og aldri. Spurt var: Finnst þér að Jón Bjarnason eigi að sitja áfram sem sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra? Alls tóku 75,4 prósent afstöðu til spurningarinnar. - bj
Mest lesið Skip úr skuggaflotanum hægði grunsamlega mikið á sér Erlent Reyndu að ræna hraðbanka Innlent Spennan magnast fyrir fundi sem óvænt á að fresta Innlent Áfengissala á helgidögum þjóðkirkjunnar stöðvuð af lögreglu Innlent Hættulega heitir dagar fleiri og mannskæðari en áður Erlent Rússar vara við því að hrapað sé að ályktunum áður en rannsókn lýkur Erlent Komu hesti til bjargar úr gjótu Innlent Spáir stillu og miklu svifryki um áramótin Veður Holtavörðuheiði enn lokuð Innlent Icelandair skoðar næstu skref í þróun flugflotans Innlent Fleiri fréttir Skilaréttur neytenda ríkari ef varan er keypt á netinu Lögregla hafi hálfpartinn „hrökklast frá“ Hæstiréttur fer beint í búvörulagamálið Spennan magnast fyrir fundi sem óvænt á að fresta Grímuskylda og ósáttir vínsalar Holtavörðuheiði enn lokuð Reyndu að ræna hraðbanka Komu hesti til bjargar úr gjótu Icelandair skoðar næstu skref í þróun flugflotans Áfram töluverð snjóflóðahætta á Vestfjörðum Áfengissala á helgidögum þjóðkirkjunnar stöðvuð af lögreglu Snjóflóðahætta á Vestfjörðum og frumsýning Yermu Holtavörðuheiðinni lokað aftur í kvöld Sex voru fluttir með þyrlunni Gamla ríkið falt og milljónir fylgja Telja skemmdir í Bláfjöllum minniháttar Súðavíkurhlíð opin til 16 Alvarlegt bílslys í Öræfum Rólegt á aðfangadag en mikil aðsókn í viðtalstíma í desember Snjóflóð féllu á Súðavíkurhlíð Rúta rann yfir rangan vegarhelming út í móa Týndu vagni með jólamáltíðum sjúklinga á bráðamóttökunni Snjóflóð féll á Súðavíkurhlíð og rólegt í Kvennaathvarfinu Skógaskóli verður hótel Grímuskylda á Landspítalanum Búið að opna Hellisheiði og Holtavörðuheiði Strætó rann á bíl og ruslaskýli Töldu að ævilöng vesælmennska biði „barnanna á mölinni“ Jólakindin Djásn á Stokkseyri Standa vaktina á jóladag: „Þetta er bara eins og hina dagana“ Sjá meira