Lífið

Uma eignaðist dóttur

Uma Thurman eignaðist dóttur á mánudag.
Uma Thurman eignaðist dóttur á mánudag. nordicphotos/getty
Leikkonan Uma Thurman eignaðist dóttur með unnusta sínum, viðskiptamanninum Arpad Busson. Stúlkan fæddist á mánudag og heilsast móður og barni vel að sögn talsmanns Thurman.

Thurman og Busson hófu samband sitt árið 2007 en hættu saman tveimur árum síðar. Árið 2011 tóku þau saman á ný og trúlofuðu sig stuttu síðar. Thurman á fyrir dótturina Maya Ray og soninn Levon Roan með leikaranum Ethan Hawke og Busson á tvo syni með fyrirsætunni Elle Macpherson.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.