Umfjöllun, viðtöl og einkunnir: Keflavík - Breiðablik 1-2 Eyþór Atli Einarsson á Nettóvellinum skrifar 14. júlí 2013 00:01
Breiðablik sigraði Keflavík 2-1 í Keflavík í Pepsí deild karla í fótbolta í dag. Markalaust var eftir tíðinda lítinn fyrri hálfleik en seinni hálfleikur var allt annar. Elías Már Ómarsson kom Keflavík yfir á 51. mínútu en Guðjón Pétur Lýðsson og Andri Rafn Yeoman tryggði Breiðabliki sigurinn með mörkum á 66. og 77. mínútu. Það var ekki margt markvert sem gerðist fyrri hálfleik á Nettóvellinum í Keflavík í dag. Gestirnir úr Kópavoginum virkuðu svolítið þungir og náðu ekki upp nægilega góðu spili. Keflvíkingar voru nokkuð sprækir lengi vel og voru nokkuð þéttir til baka en sköpuðu sé því miður ekki mörg færi. Nichlas Rohde fékk dauðafæri fyrir Breiðablik á 31. mínútu en hann hitti ekki boltann. Síðari hálfleikur var mun fjörugri en sá fyrri. Keflvíkingar héldu uppteknum hætti og voru agaðir í sínum leik og uppskáru mark á 51. mínútu þegar Elías Már Ómarsson skoraði gull af marki. Hann fékk boltann vel fyrir utan teiginn og lét vaða á markið. Drengurinn smellhitti boltann sem flaug í netið og það var ekkert sem landsliðsmarkvörðurinn og afmælisbarnið Gunnleifur Gunnleifsson gat gert við skotinu. Staðan 1-0 fyrir Keflavík. Það má segja að þetta hafi kveikt aðeins í Blikum. Keflvíkingar héldu uppteknum hætti en á 66. mínútu skora Blikar og tóku svolítið völdin á vellinum. Kristinn Jónsson átti þá stórhættulega fyrirgjöf sem Haraldur Freyr Guðmundsson skallaði í burtu. Boltinn datt fyrir fætur Guðjóns Péturs Lýðssonar, sem var nýkominn inn á sem varamaður, og hann skoraði með laglegu skoti. Staðan orðin 1-1. Keflvíkingar misstu aðeins skipulagið og gestirnir gengu á lagið. Þeir uppskáru annað mark á 77. mínútu þegar Andri Rafn Yeoman skoraði í kjölfar aukaspyrnu utan af velli. Staðan 1-2 fyrir gestina. Bæði lið sköpuðu sér færi eftir þetta en tókst ekki að koma boltanum yfir marklínuna og lokatölur 2-1. Leikurinn fór rólega af stað og Keflvíkingar mega vera nokkuð svekktir að hafa ekki náð í eitt stig í það minnsta úr þessum leik. Þeir spiluðu nokkuð vel en einbeitingaleysi í vörninni varð þeim að falli. Blikar virkuðu örlítið þreyttir til að byrja með en voru eins og gömul dísilvél, lengi í gang en fátt sem gat stoppað hana þegar hún var komin á skrið. Hjá Keflvíkingum voru menn nokkuð jafnir. Frans Elvarsson var sterkur inni á miðjunni. Jóhann Birnir sterkur á kantinum. Haraldur Guðmundsson og Benis Krasniqi voru fastir fyrir í vörninni og nýliðinn og markaskorarinn Elías Már Ómarsson var ferskur í framlínunni. Hjá Blikum ber helst að nefna Guðjón Pétur Lýðsson sem kom inn á sem varamaður á 60. mínútu og setti mark sitt á leikinn snemma. Leikurinn breyttist aðeins við þá skiptingu. Tómas Óli Garðarsson fór þá í bakvörðinn og Guðjón inn á miðjuna og spil Blikanna lagaðist. Blikasigur niðurstaðan og mega vera mjög sáttir með þennan sigur. Jóhann Birnir: Einbeitingarleysi í lykilatriðum„Við fáum á okkur tvö klaufamörk þar sem dekkningin var léleg. Við skorðum eitt mark en ætluðum að halda núllinu og það tókst því miður ekki.“ sagði Jóhann Birnir Guðmundsson, leikmaður Keflavíkur eftir tap gegn Breiðablik í dag. „Við spiluðum á móti góðu liði en við gerðumst sekir um einbeitingarleysi í lykilatriðum í leiknum og það var það sem skildi að í dag.“ Blikar eru í bullandi fallbaráttu þessa stundina og spurður út í það hvort liðið þyrfti að styrkja leikmannahópinn hafði Jóhann þetta að segja. „Við komum okkur í þessa stöðu sjálfir og þurfum að koma okkur úr henni líka. ég held að það sé ekki í stöðunni að fá nýja leikmenn.“ „Ég veit ekki hvort sé betra að spila fullt af leikjum eða ekki. Ef maður er ekki búinn að spila í tvær vikur þá kemur kannski smá skrekkur. Þeir eru búnir að spila marga leiki og ættu þá kannski að vera þreyttari. Við hefðum alveg getað krækt í stig og frammistaðan verðskuldaði það kannski en því miður gekk það ekki í dag.“ sagði Jóhann súr að lokum. Guðjón Pétur: Óli lofaði að hjóla heim ef við ynnum„Keflavík er með gott lið og góðan þjálfara en við gerðum vel með því að koma til baka og klára þennan leik.“ sagði Guðjón Pétur Lýðsson sem kom inn á sem varamaður og skoraði fyrra mark Breiðabliks í sigri á Keflvíkingum. „Við fórum að keyra aðeins á þá sýndum styrk okkar. Óli lofaði líka að hjóla heim ef við myndum vinna.“ „Ég var ömurlegur úti og er því á bekknum. Við ætluðum að vera í þessari toppbaráttu. Við gátum gert tvær breytingar í dag og við kláruðum þennan leik. Við erum með stóran og góðan hóp.“ „Ég held að það sé betra að fá fleiri leiki því þá spila menn meira saman og þar af leiðandi betri spilun í liðinu.“ sagði Guðjón Pétur að lokum. Óli Kristjáns.: Ég var ánægður í stöðunni 1-0 fyrir Keflavík„Leikurinn einkenndist af því að Keflavíkurliðið var vel skipulagt og beið eftir okkur. Tempóið hjá okkur var hægt. Síðan losnaði aðeins við markið hjá þeim og við spýttum í og gátum sleppt okkur aðeins meira og þá spiluðum við vel. Ég er sáttur við úrslitin eins og þau féllu en þetta var svolítið torsótt.“ sagði Ólafur Kristjánsson, þjálfari Breiðabliks, eftir leik gegn Keflavík. Guðjón Pétur Lýðsson kom inn á sem varamaður og breyttist leikurinn svolítið við þá skiptingu. Aðspurður hvort að þetta hafi ekki verið snilldar skipting sagði Óli.„Það eru ekki til neinar snilldar skiptingar, leikmaðurinn kemur inn á og fer í ákveðna rullu. Guðjón er keppnismaður og hann skuldaði í dag. Úlli og Gummi áttu nú þessa skiptingu þannig að þeir fá heiðurinn.“ „Menn eru ekkert að kvarta yfir álagi á meðan þetta er svona skemmtilegt. Við erum búnir að rúlla liðinu ágætlega og höfum skipt út. Ég er allavega ekkert þreyttur. „Leikmannahópurinn er virkilega góður og ég sé ekki ástæðu að gera neinar breytingar þegar félagsskiptaglugginn opnar.“ „Það var lagt undir að ég myndi hjóla heim ef við ynnum þennan leik. Mín vegna var ég ánægður í stöðunni 1-0 fyrir Keflavík og þegar við komumst í 2-1 blótaði ég aðeins. En það verður ágætt að ylja sér við sigurinná leiðinni heim. Ég verð líklega svona einn og hálfan tíma,“ sagði Ólafur hress að lokum.
Pepsi Max-deild karla Mest lesið Víkingar fundu nýtt nafn á íþróttasvæði sitt í Safamýri Sport Alfreð hættur hjá Breiðabliki Íslenski boltinn Burnley - Man. United | Stjóralausir rauðir djöflar sækja nýliðana heim Enski boltinn Selur Ólympíugullverðlaunin eftir skilnað við eiginkonuna Sport Fór 402 sinnum upp á Esjuna á einu ári Sport Verdens Gang: Solskjær í samningaviðræðum við Man. United Enski boltinn „Þegar maður spilar á móti karli er ákefðin allt önnur“ Sport „Mér finnst mjög erfitt að heyra þetta“ Enski boltinn Skipulagsbreytingar á skrifstofu KSÍ Íslenski boltinn Ótrúleg óheppni Slóvena Handbolti Fleiri fréttir Alfreð hættur hjá Breiðabliki Skipulagsbreytingar á skrifstofu KSÍ Nýliðarnir fá bandarískan markvörð Júlíus sagður á förum frá KR til Noregs Vestri opnar knattspyrnuakademíu í Senegal Valur fær Dana til að fullmóta teymi sín Ingimar Stöle semur við Val Adda verður hægri hönd Ian Jeffs í sumar „Mér var bara tjáð að þeir ætluðu að leita eitthvað annað“ Enn kvarnast úr liði Blika Leið Víkings að titlinum rifjuð upp í kvöld Þjálfar 2. flokk samhliða því að spila fyrir KR Færeysk landsliðskona til liðs við ÍBV Býst ekki við að spila aftur fyrir landsliðið Kynntu Sigurð á slaginu sex á aðfangadag Heyrði hvorki frá Blikum né Víkingum Úr Bestu heim í Hauka „Þetta er stærsti klúbbur Íslands“ Sagan ekki sönn: „Veit ekki hvaðan þetta á að hafa komið“ Meira en 37 stöðugildi hjá Knattspyrnusambandi Íslands Óskar Hrafn um komu Arnórs Ingva: „Gífurlega dýrmætt fyrir KR“ Arnór Ingvi orðinn leikmaður KR Breiðablik kaupir Jónatan frá Norrköping Elías mættur til meistaranna KR sagt vera að landa Arnóri Ingva Hilmar Árni til starfa hjá KR Segir fjórðung í bók Óla ósannan Víkingur í úrslit Bose-bikarsins eftir sigur „Verið heiður að spila í appelsínugulu með frábærum liðsfélögum“ Þekkir Egilshöllina vel og skoraði gegn fyrrum félögum Sjá meira