Íslenski boltinn

Umfjöllun: Keflvíkingar byrja vel

Ari Erlingsson skrifar
Úr leiknum í kvöld.
Úr leiknum í kvöld. Mynd/Valli

Keflvíkingar byrja vel undir stjórn Willums Þórs Þórssonar því þeir unnu 1-0 sigur á Blikum á Kópavogsvelli í 1. umferð Pepsi-deild karla í kvöld.

Þau tvö lið sem fyrir mót hafa verið talin líklegust til að veita KR og FH samkeppni um titilinn mættust í Kópavoginum í kvöld. Því leit allt út fyrir spennandi leik. Þeir rúmlega 1800 áhorfendur sem mættir voru til leiks í rigningarsuddanum fengu að sjá fjörugan og skemmtilegan leik þó aðeins eitt mark hafi litið dagsins ljós.

Leikurinn byrjaði rólega og bæði lið gáfu fá færi á sér. Eftir því sem leið á fyrri hálfleikinn opnaðist leikurinn aðeins og loks leit fyrst mark kvöldins ljós á 36. mínútu. Guðmundur Steinarsson sem óvænt var stillt upp sem framliggjandi miðjumanni komst í fínt færi sem Ingvar Kale í marki Blika varði glæsilega í horn.

Keflvíkingar voru fljótir að hugsa. Hólmar Rúnarsson tók hornspyrnuna stutt á Guðmund og hann sendi boltann á fjærstöngina þar sem Slóveninn Alen Sutej skallaði boltann í netið án þess að Ingvar Kale kæmi vörnum við. Blikarnir hresstust aðeins við mótlætið og Guðmundur Pétusson átti meðal annars skala naumlega yfir mark Keflvíkinga áður en Þorvaldur Árnason flautaði til leikhlés.

Ekki veit ég hvað Willum Þór Þórsson hefur sagt við lærisveina sína í hálfleik en þeir mættu svo sannarlega tilbúnir til leiks í seinni hálfleikinn á meðan sveinar Ólafs Kristjánsson voru hálf meðvitundarlausir í upphafi seinni hálfleiks. Tveir elstu menn Keflavíkurliðsins skiptu með sér hálfleikjum því Jóhann Birnir Guðmundsson leysti Guðmund Steinarsson af hólmi í leikhlé.

Hörður Sveinsson fór illa með dauðafæri, auk þess sem Jóhann Birnir Guðmundsson og Alen Sutej áttu sín tvö færi hvor. Ólafur þjálfari Blikanna reyndi eftir fremsta megni að bregðast við yfirburðum Keflvíkinga. Haukur Baldvinsson og Andri Yeoman voru kynntir til leiks og við það lífgaði aðeins yfir sóknarleik Blika. Haukur fékk meðal annars hættulegasta færi Blika á 75. mínútu þegar hann skallaði beint í fangið á Ómari Jóhannssyni eftir sendingu Alfreðs Finnbogasonar utan af kanti. Suðurnesjamenn fengu þó besta færi seinni hálfleiks þegar Magnús Þórir Matthíasson skaut úr þröngu færi beint á Ingvar í markinu og í því kom Jóhann Birnir aðvífandi en skaut framhjá úr dauðafæri.

Þorvaldur Árnason góður dómari leiksins flautaði leikinn af skömmu síðar og sanngjarn sigur Keflvíkinga staðreynd. Handbragð Willums má greinilega merkja á leik liðsins og er Paul McShane klæðskerasniðinn af leikstíl Willums, barðist eins og ljón og stýrði miðjuspili Keflvíkinga af miklum myndugleik. Haraldur Freyr og Alen Sutej voru einnig öflugir í vörn liðsins og líklega er þetta ekki síðasta skallamark sumarsins hjá Sutej því þar fer öflugur skallamaður á ferð.

Leikur Breiðabliks hefur vafalaust valdið Ólafi Helga Kristjánssyni þjálfara vonbrigðum. Lítið bar á léttleikandi spili sem svo oft hefur einkennt liðið og voru Alfreð Finnbogason og Guðmundur Pétursson á strangri gæslu varnarmanna Keflavíkur. Ingvar Kale var einn af fáum ljósu punktum liðsins og ef hans hefði ekki notið við hefðum við séð stærri tölur í Kópavognum.

Breiðablik - Keflavík 0-1

0-1 Alen Sutej (36.)

Dómari: Þorvaldur Árnason (7)

Áhorfendur: 1860

Skot (á mark): 12-18 (4-10)

Varin skot: Ingvar 8, Ómar 4

Aukaspyrnur fengnar: 9-14

Horn: 4-9

Rangstöður: 5-1

Breiðablik (4-5-1):

Ingvar Þór Kale 7

Arnór Sveinn Aðalsteinsson 5

(89. Elvar Páll Sigurðsson -)

Kári Ársælsson 5

Elfar Freyr Helgason 5

Kristinn Jónsson 5

Olgeir Sigurgeirsson 4

(64., Haukur Baldvinsson 6)

Guðmundur Kristjánsson 5

Finnur Orri Margeirsson 4

(73., Andri Rafn Yeoman -)

Kristinn Steindórsson 4

Alfreð Finnbogason 4

Guðmundur Pétursson 6

Keflavík (4-4-2):

Ómar Jóhannsson 6

Guðjón Árni Antoníusson 6

Haraldur Freyr Guðmundsson 6

Bjarni Hólm Aðalsteinsson 6

Alen Sutej 8

Magnús Þorsteinsson 6

Hólmar Örn Rúnarsson 6

Paul McShane 8 - Maður leiksins -

(87. Brynjar Örn Guðmundsson -)

Magnús Þórir Matthíasson 7

(90. Ómar Karl Sigurðsson -)

Guðmundur Steinarsson 6

(46., Jóhann Birnir Guðmundsson 6)

Hörður Sveinsson 4

Smelltu hér til að opna Boltavaktina og lesa lýsingu leiksins: Breiðablik - Keflavík.








Tengdar fréttir




Fleiri fréttir

Sjá meira


×