Usmanov handrukkari - voru bankamenn að bjarga lífi sínu? Valur Grettisson skrifar 5. janúar 2011 13:31 Alisher Usmanov ásamt Pútín, forsætisráðherra Rússlands. „
Ég trúi því ekki að íslenskir bankamenn séu svona miklir aular að þeir láni manni eins og Usmanov 280 milljarða króna. Ég neita að trúa þeirri sögu," sagði Guðmundur Ólafsson, hagfræðingur, í Morgunútvarpinu á rás 2 í morgun. Þar fullyrðir hann að Úsbekinn Alisher Usmanov sé lítið annað en handrukkari eldsneytisfyrirtækisins Gazprom. Samkvæmt frétt RÚV þá samþykkti Kaupþing 270 milljarða króna lán til Usmanovs á lánafundi í London í september 2008. Samkvæmt upplýsingum sem finna má á Wikipediu þá sér Usmanov um viðkvæmar og erfiðar fjárfestingar fyrir fyrirtækið. „Á mannamáli heitir þetta að vera handrukkari Gazprom," sagði Guðmundur en finna má fjölda heimasíðna á netinu þar sem hið sama er fullyrt um þennan umdeilda auðkýfing sem er í hundraðasta sæti yfir ríkustu menn veraldar. Gazprom er stærsta eldsneytisfyrirtæki veraldar en að sögn Guðmundar er fyrirtækið gjörspillt og fé þess leitar ítrekað í dularfulla vasa auðkýfinga og stjórnmálamanna í Rússlandi. Hann bætir við að allur kostnaður fyrirtækisins sé alltaf þrefaldur á við önnur fyrirtæki. „Úsmanov er úr úsbekísku mafíunni og hefur meðal annars í kringum sig dauðasveitir," sagði Guðmundur en finna má upplýsingar á netinu þar sem fram kemur að Usmanov sé góður vinur Gafur Rakimov, sem er alræmdur mafíuforingi í Úsbekistan. Hann hefur helst hagnast á alþjóðlegri heróinsölu. Sumstaðar er hann sagður lærifaðir Usmanovs. Í umfjöllun Wikipedia um Usmanov kemur fram að hann sat um sex ára skeið á níunda áratug síðustu aldar í fangelsi í Úsbekistan eftir að hafa verið dæmdur fyrir mútur og fjárkúgun. Dómur hans hljóðaði upp á átta ára harða refsivist í þrælkunarbúðum. Hann afplánaði sex ár. Guðmundur segir margt sérkennilegt við Usmanov. Til að mynda er hann ekki á skrá yfir ríkustu Rússana. Þá er óljóst hvernig hann hagnaðist. Guðmundur segir hann olígarka og að hann hafi fyrir stuttu síðan komist í álnir, að því virðist í gegnum milljarðamæringinn Boris Berezovsky, sem datt út af sakramentinu hjá ráðamönnum í Kreml um síðustu aldamót. Hann flúði land 2001. Guðmundur Ólafsson, hagfræðingur. Hann segir Usmanov lítið annað en handrukkara og smákrimma. „Hvernig stendur svo á því að Kaupþing lánar síðan svona manni 280 milljarða. Og það í finnsku tryggingafélagi?" spurði Guðmundur og benti á að fæstir bankar í Evrópu vilja eiga í viðskiptum við manninn. Tryggingafélagið sem um ræðir er Sampo sem Bakkavarabræður áttu í. „Um hvað snýst málið raunverulega. Það er verið að segja okkur tóma lygi um þetta mál," sagði Guðmundur og bætti við: „Er maðurinn kannski að rukka inn skuld? Ég hef upplýsingar um það að Rússar hafi lagt fé inn í Kaupþing og stórtapað." Guðmundur sagði það sérkennilegt að þessi maður dúkki svo upp í Kaupþingi korteri fyrir hrun: „Og hann segir borgið. Og honum var borgað." Guðmundur sagði þessa lánveitingu algjörlega glórulausa nema málið væri sett í þetta samhengi. „Ég trúi því ekki að íslenskir bankamenn hafi verið svo miklir aular að þeir hafi lánað þessum manni 280 milljarða rétt fyrir hrun. En ef þeir voru að bjarga lífi sínu eða fjölskyldu, þá fer þetta að verða skiljanlegt," sagði Guðmundur í Morgunútvarpinu og bætti við: „Íslenskir bankamenn voru liklega lentir í klónum á alþjóðlegum glæpamönnum." Guðmundur spurði svo hversvegna menn eins og Usmanov, og menn af hans toga, hafi nýtt sér ástandið hér á landi eins og það var. „Hvers vegna skildu svona menn ekki hafa nýtt sér þá stöðu sem uppi var hér á landi? Engan barnaskap. Heimurinn er ljótur," sagði Guðmundur að lokum. Þess má geta að Vísir greindi frá því í apríl á síðasta ári að Kaupþing hafi gert tæplega þrjátíu milljarða króna lánasamning í ágúst 2008 við Gallagher Holdings Limited, sem var í eigu Usmanov. Undirliggjandi hlutabréf í þeim viðskiptum var Mmc Norilsk Adr, alþjóðlegt námufyrirtæki upprunnið í Rússlandi. Usmanov skuldaði íslenskum bönkum samtals 237 miljónir evra eða ríflega 40 milljarða króna samkvæmt skýrslu rannsóknarnefndar Alþingis. Langstærstur hluti upphæðarinnar var við Kaupþing. Við það tækifæri var Hreiðar Már Sigurðsson, fyrrverandi forstjóra Kaupþings, spurður hvers vegna bankinn hefði lánað Úsbekanum svo háa fjárhæð svo skömmu fyrir hrun. Hreiðar Már svaraði í gegnum almannatengslafulltrúa sinn og sagði að lán Usmanovs hefði verið greitt upp að fullu, enda væri hann einn ríkasti maður í heimi, eins og það var orðað.
Mest lesið Trump hækkar tolla á öll lönd Viðskipti erlent Samrunaviðræðum Íslandsbanka og Skaga slitið Viðskipti innlent Gefur fermingamyndinni 10 í einkunn Atvinnulíf Byrja á þremur verslunum og skoða sameinaða verslun á Selfossi Viðskipti innlent Sætur borgarbíll þar til kíkt er í skottið Samstarf Einn stofnenda ASOS fannst látinn Viðskipti erlent Skapa nýjar flíkur úr óseldum notuðum fötum Atvinnulíf „Við reiknum með því að bandarísk stjórnvöld séu með plan B“ Viðskipti innlent Prófessor slær á áhyggjuraddir Viðskipti innlent Íþróttaálfurinn reynir við Íslandsmet á fjölskylduhátíð BL Samstarf Fleiri fréttir Samrunaviðræðum Íslandsbanka og Skaga slitið „Við reiknum með því að bandarísk stjórnvöld séu með plan B“ Engin viðvarandi markaðssetning frá 2023 Bestu íslensku vörumerkin 2025 heiðruð í Hörpu Allt á uppleið á Grundartanga Nova kaupir Ofar Byrja á þremur verslunum og skoða sameinaða verslun á Selfossi Ólafsson gin aftur í eigu Íslendinga Hagnaður af grunnrekstri nam 36 milljörðum Sölvi genginn til liðs við KAPP Líklegra en áður að nýjar íbúðir seljist undir ásettu verði Lindex-höllin verður Kappahl-höllin og ný verslun opnuð 21. mars Arkitektar og verkfræðingar vænta samdráttar á íbúðamarkaði Prófessor slær á áhyggjuraddir 74 prósent íbúða seldist á undirverði í desember Dramadrottningar myndu líkja Tromsö-flugi við rýting í bakið Opinberir starfsmenn eigi rétt á sjöfalt fleiri veikindadögum Skiptastjóri Play kannar hvort Icelandair sé bótaskylt vegna ummæla starfsmanns Hæstiréttur gefur ÁTVR á baukinn Kristín í Komið gott fær sér dagvinnu Skiptastjóri Play þarf að víkja Innkalla brúna rúllutertu Taka Amaroq af markaði í Kanada Ríkið niðurgreiddi losun Icelandair um rúmar 400 milljónir Deilt um kjör Wolt-sendla Síminn tekur upp nýtt nafn og hagnast um 1,6 milljarða Ólafur Björnsson ráðinn fjármálastjóri Inchcape á Íslandi Loka Duck & Rose á sunnudaginn „Vel skipulögð herferð“ gegn ETS-losunarkerfinu Þóra og Eva sameinaðar á ný í Efstaleitinu Sjá meira