Vantrú og HÍ

Fréttablaðið Aðsendar greinar 16. desember 2011 06:00
Trúmál
Pétur Björgvin Þorsteinsson
djákni
Trúmál Pétur Björgvin Þorsteinsson djákni
Pétur Björgvin Þorsteinsson skrifar:
Nokkur umræða hefur spunnist síðustu daga í kjölfar fréttaflutnings fjölmiðla af málþófi því sem hefur átt sér stað innan veggja HÍ frá því í febrúar 2010. Það er miður að siðanefnd HÍ, háskólayfirvöld og málsaðilar hafi ekki náð samstöðu um að færa málið í málefnalegan farveg.

Upphaf þessa máls má rekja til þriggja kærubréfa frá félaginu Vantrú á hendur stundakennaranum Bjarna Randveri Sigurvinssyni, m.a. til siðanefndar HÍ. Viðbrögð siðanefndar HÍ voru þau að reyna að koma málshefjanda og guðfræði- og trúarbragðafræðideild að einhvers konar sáttaborði.

Það sem mér þykir furðulegast í því samhengi er að svo virðist sem siðanefnd hafi ekki ætlað sér að bjóða hinum kærða stundakennara að þessu sáttaborði, heldur gert þess í stað ráð fyrir að hvers kyns sættir hlytu að vera bundnar ávítum gegn honum.

Óháð rannsóknarnefnd, sem skipuð var til þess að fara yfir þetta mál, gerir í skýrslu sinni sem kom út í haust alvarlegar athugasemdir við það verklag siðanefndar að eiga í óformlegum samskiptum við málshefjanda. Þá er fundið að því að nefndin aflaði ekki á kerfisbundinn hátt upplýsinga um málið og hafi ekki farið eftir 1., 4., 5. og 6. gr. eigin starfsreglna sem jafnframt eru áréttaðar í sjálfum siðareglum skólans. Þrátt fyrir þessi alvarlegu mistök virðist HÍ ekki ætla að bæta Bjarna Randveri það tjón sem hann hefur orðið fyrir.


Hver gætir hagsmuna (fræða)samfélagsins?
Ég vil ekki trúa því að HÍ hafi ekki metnað til að styðja starfsmann sinn og gæta um leið hagsmuna fræðasamfélagsins í þessu samhengi. HÍ hlýtur að eiga eftir að bregðast frekar við skýrslu rannsóknarnefndarinnar. Ég spyr hvort það geti verið að ef ekki hefði ítrekað komið til stuðningur háskólaprófessora og kennara úr ýmsum deildum HÍ, þá sætum við sem samfélag uppi með þá staðreynd að geðþótti en ekki fagleg vinnubrögð réðu málalyktum í svona undarlegu máli?
Í mínum augum er einstakur kennari ekki án samhengis. Allt efni sem sett er fram á vettvangi háskóla er bæði í fræðilegu samhengi (að baki því eru ákveðnar kenningar fræðimanna, námskeiðslýsing ...) og í stjórnsýslulegu samhengi (að baki kennaranum er deild, svið ...). Siðanefndin er líka í samhengi. Hún er bundin starfsreglum, siðareglum, landslögum og stjórnarskrá. Því hlýtur það að teljast álitshnekkir fyrir HÍ þegar umræða um óánægju utanaðkomandi hóps kemst aldrei í málefnalegan farveg innan stofnunarinnar vegna rangrar málsmeðferðar en fer þess í stað fram að stórum hluta í dagblöðum og á vefnum. Hver eru áhrif þess? Mun það ekki t.d. fæla aðra frá því að koma athugasemdum á framfæri innan háskóla?
Vert er að halda því til haga að hinn kærði vildi, frá þeim tímapunkti sem honum var kunnugt um margþætt brot siðanefndarinnar á eigin starfsreglum í málsmeðferð sem virtist mjög hlutdræg, að skipuð yrði ný siðanefnd til að tryggja faglega málsmeðferð. Til þess kom ekki enda vildi siðanefndin ekki víkja vegna vanhæfis og Vantrú gat ekki hugsað sér nýja siðanefnd. Fyrir vikið fékk kæra Vantrúar aldrei málefnalega umfjöllun á vettvangi siðanefndar HÍ, þar sem félagið dró hana til baka eftir að átök höfðu staðið yfir á annað ár, m.a. um hæfi siðanefndar.
Það er miður, því að hagsmunum fræðasamfélagsins sem og almennings í landinu hlýtur að vera best borgið þegar hvers konar ágreiningur fær málefnalega umfjöllun, hvort sem hún felst í því að kæru sé vikið frá eða hún tekin til efnislegrar meðferðar í samræmi við starfsreglur siðanefndar.


Fólki er brugðið
Upp úr stendur að fjölda fólks er verulega brugðið yfir því öngstræti sem þetta mál hefur ratað í. Mér þykir mjög miður að það skuli snúast um persónu stundakennarans. Bjarni Randver Sigurvinsson fær þá einkunn hjá langflestu af samferðafólki sínu að hann sé einstaklega samviskusamur og að þekking hans sé yfirgripsmikil. Af því sem ég þekki Bjarna Randver á ég ekki von á því að hann telji að allt efni sem frá honum komi sé fullkomið, enda maðurinn sér meðvitaður um annmarka eigin fræðasviðs auk þess sem hann hvetur nemendur sína bæði munnlega og skriflega til að meta allt sem frá honum kemur með gagnrýnu hugarfari. Hann hafnar því hins vegar alfarið að hann hafi gerst brotlegur við siðareglur HÍ og er fjöldi háskólakennara sammála honum þar.
Hvert fræðasvið hefur sína annmarka og snýr þróun fræðanna jú sífellt að því að fengist er við þessa annmarka. Með rannsóknum og ritrýni, sem og öllum öðrum þeim tækjum sem fræðimennskunni stendur til boða, leitast fræðimaðurinn við á hverjum tíma að þróa fræðin og bæta nýrri þekkingu í sarpinn. Að ráðist sé á persónu fræðimannsins vegna þess að einhver sé ósáttur við aðferðir viðkomandi fræðigreinar er aðför að háskólastarfi í landinu. Við það verður ekki unað.
Höfundur er einn þeirra sem staðið hafa fyrir fjársöfnun til stuðnings Bjarna Randver.

Athugið. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Vísir hvetur lesendur til að halda sig við málefnalega umræðu. Einnig áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi eða ósæmilegar athugasemdir.

Fleiri fréttir - Aðsendar greinar

Aðsendar greinar 19. maí. 2012 06:00

Forseti og siðferði

Í samfélögum Vesturlanda nú á dögum eru tvær valdamiðstöðvar helstar. Önnur er á vettvangi...  

Meira
Aðsendar greinar 19. maí. 2012 06:00

Hvenær vegur maður að…

Þann 30. apríl sl. voru 15 og 16 ára gamlir hælisumsækjendur dæmdir í 1 mánaðar langt óski...  

Meira
Aðsendar greinar 19. maí. 2012 06:00

Ný atvinnustefna – framkvæmdum hraðað

Aðgerðir ríkisstjórnarinnar í efnahagsmálum hafa skilað áþreifanlegum árangri. Enn dregur ...  

Meira
Aðsendar greinar 18. maí. 2012 12:25

NASA - hugleiðing

Þegar ég las greinina hans Páls Óskars þar sem hann sagði frá því búið væri að segja upp s...  

Meira
Aðsendar greinar 18. maí. 2012 06:00

Forsetinn: Tákn eða afl

Ég held ekki að það sé sérlega eftirsóknarvert að vera forseti. Líklega er þó skárra að ve...  

Meira
Aðsendar greinar 18. maí. 2012 06:00

Þegar ég missi trúna á mannkyninu

Heima í Neskaupstað er eitt af þeim glæsilegu félagsheimilum sem landið státar af. Í því f...  

Meira
Aðsendar greinar 18. maí. 2012 06:00

Verður þá enginn fiskur veiddur meir?

Útgerðarfyrirtæki landsins auglýsa nú grimmt gegn fyrirhuguðum breytingum á fiskveiðistjór...  

Meira
Aðsendar greinar 18. maí. 2012 06:00

Stefnumót að vori

Það vorar og Listahátíð í Reykjavík verður sett í dag. Næstu vikur verður hægt að næra and...  

Meira
Aðsendar greinar 17. maí. 2012 06:00

Til kjósenda

Fulltrúar Besta flokksins buðu sig ekki fram til borgarstjórnar til þess að standa vörð um...  

Meira
Aðsendar greinar 17. maí. 2012 06:00

Ekki meira málþóf

Á næstu dögum kemur í ljós hvort Alþingi leggur nýja stjórnarskrá stjórnlagaráðs í þjóðara...  

Meira
Aðsendar greinar 17. maí. 2012 06:00

Hótel Godzilla

Nasa mun hætta starfsemi sinni 1. júní næstkomandi. Sá vondi draumur er að verða að verule...  

Meira
Aðsendar greinar 17. maí. 2012 06:00

Leitin að samræðugeninu

Eitt stærsta hlutverk stjórnmálanna er að viðhalda samræðu á milli þriggja mikilvægra þátt...  

Meira
Aðsendar greinar 16. maí. 2012 06:00

Til borgarfulltrúa Besta flokksins

Kæru borgarfulltrúar Besta flokksins. Þið buðuð ykkur fram undir því yfirskyni að gera Rey...  

Meira
Aðsendar greinar 16. maí. 2012 06:00

Björt framtíð

Öfugt við væntingar hafa mörg okkar, sem sóttum málþing á vegum Háskólans á Bifröst og Ney...  

Meira
Aðsendar greinar 16. maí. 2012 06:00

Fiskveiðifrumvörpin eru andstæð þjóðarhagsmunum

Svo ótrúlegt sem það er, þá er það engu að síður staðreynd, að verði frumvörp ríkisstjórna...  

Meira
Aðsendar greinar 16. maí. 2012 06:00

Enn um sæstreng

Greinar Magnúsar Bjarnasonar, framkvæmdastjóra markaðs- og viðskiptaþróunarsviðs Landsvirk...  

Meira
Aðsendar greinar 16. maí. 2012 06:00

Tannpínusjúklingar nútímans

Undanfarin misseri hefur ástandið í tannheilsumálum þjóðarinnar verið til umræðu á opinber...  

Meira
Aðsendar greinar 16. maí. 2012 06:00

Vísindagreinar á mannamáli

Þó nokkur umfjöllun hefur átt sér stað í fjölmiðlum og í fræðasamfélaginu eftir að Magnús ...  

Meira
Aðsendar greinar 16. maí. 2012 06:00

Að varðveita sögu allra

Á síðustu áratugum hafa orðið miklar breytingar á íslensku þjóðfélagi og það hefur orðið á...  

Meira
Aðsendar greinar 16. maí. 2012 06:00

Á stjórnarandstaðan bara að halda kjafti og vera sæt?

Sigríður Ingibjörg Ingadóttir skrifaði grein á dögunum þar sem hún kennir stjórnarandstöðu...  

Meira
Aðsendar greinar 16. maí. 2012 06:00

Landspítali í Fossvog

Við sameiningu Sjúkrahúss Reykjavíkur og Landspítala í eina stofnun á árinu 2000 var farið...  

Meira
Aðsendar greinar 16. maí. 2012 06:00

Komum mynd á mannréttindi

Í dag 16. maí er mannréttindadagur Reykjavíkurborgar en þennan dag árið 2006 var mannrétti...  

Meira
Aðsendar greinar 16. maí. 2012 06:00

Skyldan til að tala saman

Síðustu misseri hef ég lesið margar greinar og hlustað á ljósvakamiðla og játa að mig setu...  

Meira
Aðsendar greinar 16. maí. 2012 06:00

Um "leppshlutverk“ forsetans

Eitt af markmiðum stjórnlagaráðs við gerð tillögu um nýja stjórnarskrá var að afnema "lepp...  

Meira
Aðsendar greinar 15. maí. 2012 17:30

Stuðningsgrein: Lýðræði er alltaf svarið!

Þá er það komið á hreint – Ólafur Ragnar Grímsson, forseti lýðveldisins, er byrjaður...  

Meira
Aðsendar greinar 15. maí. 2012 06:00

Vinkonan í ESB

Stundum velti ég því fyrir mér af hverju ég búi á Íslandi. Einhvern veginn tekst aldrei að...  

Meira
Aðsendar greinar 15. maí. 2012 06:00

Ólína, berðu í borðið!

Ólína Þorvarðardóttir hefur verið einn öflugasti talsmaður þingsins fyrir breyttu fiskveið...  

Meira
Aðsendar greinar 15. maí. 2012 06:00

Til varnar heildrænum meðferðum

Sif Sigmarsdóttir hallmælir „óhefðbundnum lækningum” eða heildrænum meðferðum ...  

Meira
Aðsendar greinar 15. maí. 2012 06:00

"Allt að“ ekki neitt

Sjaldan hafa valkostir neytenda verið jafn margir og nú þegar kemur að fjarskiptatengingum...  

Meira
Aðsendar greinar 15. maí. 2012 06:00

Má kaupa sér niðurstöðu?

Árið er 2012, rúmum þremur árum eftir hrun, og aldrei hefur ofríki sérhagsmunaaflanna í sa...  

Meira
Aðsendar greinar 15. maí. 2012 06:00

Hagur útgerðar og veiðigjald

Ríkisstjórn Samfylkingar og Vinstri Grænna lofaði því í samstarfsyfirlýsingu sinni árið 20...  

Meira
Aðsendar greinar 14. maí. 2012 09:14

Verðvernd er rökleysa

Verðvernd verslana er fullkomin rökleysa. Þeir sem auglýsa verðvernd bjóða nefnilega ekki ...  

Meira
Aðsendar greinar 12. maí. 2012 06:00

Við látum verkin tala

Það er fagnaðarefni á þriggja ára afmæli ríkisstjórnarinnar að meirihluti Alþingis skuli s...  

Meira
Aðsendar greinar 12. maí. 2012 06:00

Ágæti læknir, þiggur þú mútur?

Mánudagskvöldið 30. apríl fjallaði fréttaskýringaþátturinn „Spegillinn“ á RÚV ...  

Meira
Aðsendar greinar 12. maí. 2012 06:00

Ábendingar vegna leiðara

Í leiðara Fréttablaðsins í gær eru settar fram staðhæfingar tengdar gjaldeyrisútboðum Seðl...  

Meira
Aðsendar greinar 12. maí. 2012 06:00

Álfar út um allt

Það er stundum talað um að í Hafnarfirði séu fleiri álfar en annars staðar á landinu. Ekki...  

Meira
Aðsendar greinar 12. maí. 2012 06:00

Hafið: Vagga lífsins og fjöregg Íslands

Hafið er gullkista Íslendinga. Gjöfulir fiskistofnar umhverfis landið eru þeir sjóðir sem ...  

Meira
Aðsendar greinar 11. maí. 2012 18:10

Óupplýstir spekingar í Silfrinu

Ekki er furða að umræðan um forsetaembættið sé á villigötum þegar ritstjóri stærsta prentm...  

Meira
Aðsendar greinar 11. maí. 2012 06:00

Týndur á Paddington

Á fyrsta áratug ævi minnar hvarf pabbi hægt og örugglega inn í myrkur sjúkdóms sem tætti h...  

Meira
Aðsendar greinar 11. maí. 2012 06:00

Kostnaður hagsmunaaðila í stjórnmálabaráttu

Eftir baráttu ýmissa vinstrimanna fyrir upplýsingaskyldu og hámörkum á fjárframlög til stj...  

Meira
Aðsendar greinar 10. maí. 2012 17:01

Hindra gjaldeyrishöft að næsta kynslóð sé étinn út á gaddinn?

Það er kannski tímabært að rifja upp hvers vegna gjaldeyrishöftin voru sett á Íslandi. Síð...  

Meira
Aðsendar greinar 10. maí. 2012 06:00

Brandarinn um Boot Camp

Forsvarsmanni líkamsræktarstöðvar Boot Camp sem ætlunin er að taki til starfa í Elliðaárda...  

Meira
Aðsendar greinar 10. maí. 2012 12:02

Dauðyflin í Samfylkingunni

,,Þú ert bara foringjahollt dauðyfli sem styður leiðtoga þinn í þeirri helreið sem vinstri...  

Meira
Aðsendar greinar 10. maí. 2012 06:00

Mér líður ógeðslega illa en fæ ekki tíma hjá geðlækni fyrr en eftir hálft ár

Ég er svo geðveikur þegar ég er í skólanum, ég er bara í skólanum og get ekki gert neitt a...  

Meira
Aðsendar greinar 10. maí. 2012 06:00

Lítill ávinningur af skimun fyrir ristilkrabbameini

Árangur af skimun fyrir ristilkrabbameini er lítill séð frá lýðheilsusjónarmiði. Nýjar ran...  

Meira
Aðsendar greinar 10. maí. 2012 06:00

Er ekki nóg atvinnuleysi?

Ef Ögmundur Jónasson innanríkisráðherra fær að ráða, þá fer störfum við íslenska bjórframl...  

Meira
Aðsendar greinar 10. maí. 2012 06:00

Best í heimi

Þegar ég reyndi að sigrast á nánast óyfirstíganlegu þvottafjalli heima hjá mér fór ég að h...  

Meira
Aðsendar greinar 10. maí. 2012 06:00

Brostnar vonir

Pyngjur landsmanna léttast og færri krónur eru eftir um hver mánaðamót. Norræn velferðarst...  

Meira
Aðsendar greinar 10. maí. 2012 06:00

Tveir og hálfur milljarður í sérstakar vaxtaniðurgreiðslur – það munar um minna

Tugþúsundir húseigenda um allt land fengu fjármuni frá ríkissjóði inn á bankareikninga sín...  

Meira
Aðsendar greinar 10. maí. 2012 06:00

Þungur kross brotaþola

Ung stúlka tilkynnir nauðgun í miðborg Reykjavíkur. Í umræðum um málið á netinu lætur ungu...  

Meira

Mest lesið: Umræðan

Nýjast á Vísi

Fréttablaðið

  • Forsíða Fréttablaðsins
  • Atvinna
  • Serblad
  • Allt

Stöð2

  • Ísland í dag
  • Kvöldfréttir
  • Veðurfréttir
Þú ert hér: Forsíða / Umræðan / Aðsendar greinar / Vantrú og HÍ