Veiðin jafnast á við tugmilljóna markaðsherferð 24. nóvember 2010 21:04 Breska ríkisútvarpið fjallaði um málið í gær. „
Ég myndi segja að hafa fengið þessa lúðu sé á við tugmilljóna markaðsherferð enda hafa viðbrögðin ekki látið á sér standa," segir Haukur Vagnsson, framkvæmdastjóri Víkurbáta á Bolungarvík. Gunther Hansel, sjötugur þýskur ferðamaður, veiddi í ágúst heimsins stærstu lúðu á sjóstöng fyrir utan Bolungarvík. Atburðurinn vakti mikla athygli og hafa fjölmargir fjölmiðlar greint frá málinu. Síðast í gær fjallaði breska ríkisútvarpið um veiðina. Fyrsta sætið mikið keppikefli Hansel var meira en tvær klukkustundir að ná ferlíkinu um borð enda lúðan risastór og um 220 kíló. Um heimsmet mun vera að ræða en fyrra metið var sett undan ströndum Noregs á síðasta ári. Haukur segir mikilvægt að heimsmetið hafi verið sett á Vestfjörðum. „Það var mikið keppikefla að ná fyrsta sætinu því Noregur hefur verið helsti áfangastaður sjóstangveiðimanna. Þannig að þetta skiptir gríðarlega miklu máli og hafa viðbrögðin ekki látið á sér standa því bókunum hefur rignt inn eftir þetta. Fyrir okkur, Bolungarvík og bara hreinlega Vestfirði og Ísland skiptir þetta miklum máli." Umfjöllun um málið muni ekki bara nýtast Víkurbátum heldur öðrum fyrirtækjum í sjóstangveiði og ferðaþjónustu í landshlutanum.Viðtal eftir viðtal Haukur segir veiði risalúðunnar hafa fengið gríðarlega mikla athygli. „Það má segja að ég sé búinn að vera meira og minna í viðtölum út um allan heim út af þessu síðan í ágúst. Það hefur verið hringt frá almennum fréttastofum en mest frá fagtímaritum."„Algjört monster" Ákveðnar reglur gilda svo hægt sé að tala um heimsmet í þessum fræðum. „Til að mynda má ekki vera nema einn maður sem dregur inn þannig að karlgreyið var algjörlega búinn á því," segir Haukur um Þjóðverjann Hansel sem var þó að vonum alsæll þegar í land var komið. „Lúðan var algjört monster og eina leiðinn var að hífa hana upp með krana." Haukur segir að næsta sjóstangavertíð hefjist um miðjan apríl og þá verði nóg um að vera hjá fyrirtækinu. Þá segir Haukur að báturinn sem fékk lúðuna sé afar eftirsóttur. Allir vilji fara á veiðar á honum.
Tengdar fréttir Veiddi stærstu lúðu sögunnar úti fyrir Bolungarvík Þýskur ferðamaður og frístundaveiðimaður, veidd nýverið heimsins stærstu lúðu á sjóstöng fyrir utan Bolungarvík. Gunther Hansel var tvo tíma að ná ferlíkinu um borð og þurfti hann hjálp fimm fílelfdra karlmanna við verkið. Lúðan er enda risastór, 2,5 metrar að lengd og 220 kíló. Um heimsmet mun vera að ræða og hafa aflabrögðin vakið mikla athygli um allan heim. 24. nóvember 2010 18:00 Mest lesið Opnar sig um gróf ummæli um hjónabandið Innlent Ólga í Samfylkingu: „Þessi ólög eru ekki í okkar nafni sett“ Innlent Veglegt veiðihús rís fyrir silungasvæðið Innlent Rússnesk gervitungl trufla GPS-merki í Evrópu Erlent Þjónusta þjarka og falskra aðganga gengur kaupum og sölu Innlent Eiginmaðurinn fékk krabbameinið sem hún hræddist mest Innlent Ari þiggur stöðu stjórnarformanns Innlent Sakar ráðherra um alræðistilburði í nafni mannréttinda Innlent Möguleiki á tuttugu stiga hita Veður Áframhald á árásum og Íranir segja sundið lokað allri umferð Erlent Fleiri fréttir Leggja til að mestu gljúfurkerfi landsgrunnsins verði vernduð „Ljóst að deilunni er ekki lokið“ Bein útsending: Funda um verðbólgu, verðlag og laun Ólga í Samfylkingu: „Þessi ólög eru ekki í okkar nafni sett“ Færa umferð af norður- á suðurakbraut á Breiðholtsbraut Mættu með stungusár á lögreglustöðina Veglegt veiðihús rís fyrir silungasvæðið Þjónusta þjarka og falskra aðganga gengur kaupum og sölu Opnar sig um gróf ummæli um hjónabandið Ari þiggur stöðu stjórnarformanns „Staðreynd að matarkarfan mun lækka í verði“ NASA mun fylgjast með íslenska himinhvolfinu Sakar ráðherra um alræðistilburði í nafni mannréttinda „Ríkisstjórnin getur ekki flúið eigin vandræði inn í Evrópusambandið“ Í beinni: Eldhúsdagsumræður á Alþingi Sturlaugur nýr bæjarstjóri Akranessbæjar Evrópumet í verðhækkunum og vígbúnaðarkapphlaup Mál Steinu fer fyrir Hæstarétt Sofandi á akbraut Heitavatnslaust í miðborg í kvöld Enn bólar ekkert á fleiri ákærum vegna netverslunar Framkvæmdir við Hvammsvirkjun í vari út árið Almenningur ekki talinn eiga rétt á upplýsingum um ETS-sérlausn Barn réðst með belti á önnur börn Hæstiréttur hafnar beiðni Elju um að taka fyrir meiðyrðamál Virkjunarleyfi vegna Hvammsvirkjunar fær grænt ljós Tóku ákvörðun um að skrá fólk úr flokknum Eiginmaðurinn fékk krabbameinið sem hún hræddist mest Ferðum Íslendinga til útlanda fækkar Hvetur almenning til að vera á varðbergi Sjá meira
Veiddi stærstu lúðu sögunnar úti fyrir Bolungarvík Þýskur ferðamaður og frístundaveiðimaður, veidd nýverið heimsins stærstu lúðu á sjóstöng fyrir utan Bolungarvík. Gunther Hansel var tvo tíma að ná ferlíkinu um borð og þurfti hann hjálp fimm fílelfdra karlmanna við verkið. Lúðan er enda risastór, 2,5 metrar að lengd og 220 kíló. Um heimsmet mun vera að ræða og hafa aflabrögðin vakið mikla athygli um allan heim. 24. nóvember 2010 18:00