Verðmætum skartgripum stolið í Cannes Þórunn Elísabet Bogadóttir skrifar 18. maí 2013 08:00 Blaðamenn hópuðust á Novotel-hótelið þegar fréttir bárust af þjófnaðinum. fréttablaðið/ap
Þjófar stálu skartgripum fyrir um eina milljón Bandaríkjadollara, eða rúmlega 123 milljónir íslenskra króna, af hóteli í Cannes í Frakklandi aðfaranótt föstudag. Þeir höfðu ekki fundist þegar Fréttablaðið fór í prentun í gærkvöldi. Öryggisskápur á hótelherbergi á Novotel-hótelinu var tekinn úr herberginu og segir lögregla að þjófnaðurinn hafi verið vel skipulagður. Fulltrúi Chopard, svissnesks úra- og skartgripaframleiðanda, gisti í herberginu. Chopard er styrktaraðili kvikmyndahátíðarinnar í Cannes sem nú stendur yfir og stóð fyrir galaviðburði á öðru hóteli þegar þjófnaðurinn átti sér stað. Fyrirtækið býr einnig til Gullpálmann sem afhentur er fulltrúum bestu myndar hverrar hátíðar. Aðstandendur hátíðarinnar þvertóku þó fyrir að pálmanum hefði verið stolið, og sögðu hann á öruggum stað. Að öðru leyti vildu þeir ekki tjá sig um málið. Lögreglan segir mjög líklegt að skartgripirnir hafi verið á hótelinu í tengslum við kvikmyndahátíðina, en fulltrúar hennar segjast ekki vita hverjum þeir voru ætlaðir. Nú þegar hafa leikkonan Julianne Moore og fyrirsætan Carla Delevingne sést með skartgripi fyrirtækisins á rauðum dreglum. Talið er líklegt að þjófarnir séu fleiri en einn og að þeir hafi hafi haft nákvæmar upplýsingar um málið. Talsmenn Chopard vildu ekki tjá sig um málið við blaðamenn í gær en höfðu skipulagt blaðamannafund í gærkvöldi þar sem þeir ætluðu að svara spurningum um málið.
Mest lesið Fær nýjar kröfur fimmtán mánuðum eftir andlát eiginkonunnar Innlent Gerir Repúblikönum á þingi enn lífið leitt Erlent Vegasjoppan sem byggði kamar fyrir Kristján tíunda Innlent „Vona að Uber fái aldrei leyfi til að starfa á Íslandi“ Innlent Bandaríkjamenn ráðast á Íran Erlent Samþykkt frumvarpsins framkalli ekki sigurtilfinningu Innlent Sósíalisti fékk boðsferð til Kína Innlent Hlekktist í lendingu á Egilsstaðaflugvelli Innlent Safnað fyrir foreldra Bergs Ottós Innlent „Þetta er hreinn uppspuni“ Innlent Fleiri fréttir Gerir Repúblikönum á þingi enn lífið leitt Bandaríkjamenn ráðast á Íran Segir Írani hafa skotið niður þyrlu Bandaríkjanna Stríðið gegn holdétandi flugunni fær nýtt líf Kristersson í kröppum dansi á kosningaári Virðist bjartsýnn á að gæfan sé að snúast Úkraínumönnum í hag Armenar horfa áfram til vesturs eftir kosningar Ekkert lát á árásum Ísraelsmanna í suðurhluta Líbanon Fallið frá þróun nýrrar samevrópskrar herþotu Marius látinn laus Xi í heimsókn hjá Kim: Í keppni við Pútín um áhrif í Pyongyang Báðir segjast hættir, í bili Strunsaði úr viðtali: „Þú ert annaðhvort spillt eða heimsk“ Bretar setja ofan í við Vance vegna undirróðurs Skutu niður dróna yfir Lettlandi í fyrsta sinn Öflugur jarðskjálfti úti fyrir Filippseyjum í nótt Ísraelar og Íranir skiptast á skotum en Trump segist við stjórnvölinn Íranir skjóta á Ísrael Stór rafmagnsflugvél reynd fyrir fyrsta flug Bregðast við skammarbréfi Þorgerðar og félaga Fær fangelsisfrí til að heimsækja móður sína Lungnaígræðsla ekki lækning heldur sjúkdómaskipti Sátu að sumbli þegar eldur blossaði skyndilega upp í bifreið Fengu yfir sig holskeflu haturs eftir að þau ákváðu að binda enda á meðgönguna Pútín hafnar fundi með Selenskí og ítrekar kröfur Rússa Vill fá Ísland inn og tólf í viðbót Nýr leki á rússneskum hluta geimstöðvarinnar Danska lögreglan komin með nóg af drukknum börnum Hafði leigutekjur af húsnæði krúnunnar Breyttu fósturvísum af meiri nákvæmni en áður Sjá meira