Vilborg svöng á pólnum - 220 kílómetrar til stefnu 5. janúar 2013 14:49 220 kílómetrar til stefnu!
Íslenski Suðurpólsfarinn Vilborg Arna Gissurardóttir leggur nú til atlögu við síðustu kílómetrana að lokatakmarki sínu. Hún er nú komin yfir á 88.breiddargráðu og á eftir að ganga um 220 km til að ná á pólinn. Og enn er á brattann að sækja því hækkunin sem eftir er nemur um 250 metrum. Nú eru 47 göngudagar að baki og miðað við yfirferð Vilborgar síðustu daga má ætla að hún komist á pólinn eftir rétta viku. Aðstæður til pólgöngu hafa verið slæmar síðustu daga, mikill kuldi og hvassviðri sem myndað hefur það háa rifskafla að vanir pólfara segjast vart þekkja annað eins. Vilborg, sem þarf að hylja allt andlit sitt með grímu, segir þessar aðstæður vera mikla áskorun fyrir sig og þrátt fyrir að hún sé lítillega kalin á lærum hefur henni aukist þróttur eftir því sem lokatakmarkið nálgast. Hún segist þó vera sísvöng enda er maturinn sem hún hefur haft meðferðis á þrotum. Líkur eru á að hún þurfi að láta senda sér meiri vistir þar sem göngudagarnir verða væntanlega fleiri en hún gerði ráð fyrir. Á meðan á göngunni stendur safnar Vilborg Arna áheitum til styrktar Líf styrktarfélags Kvennadeildar Landspítalans - og geta menn sett sig í spor Vilborgar með því að heita á hana í síma 908 1515 (1500 kr) eða með frjálsum framlögum á vefsíðunni www.lifsspor.is, en þar heldur hún einnig úti dagbók um ferð sína á pólinn
Mest lesið „Breskir hermenn geta séð um sig sjálfir“ Erlent Segist nauðbeygður til að gagnrýna Guðrúnu á Facebook fyrst hún svari ekki póstum Innlent Ráðherra ætlar að banna síma í skólum Innlent Lögreglan lýsir dauða Hackman og konu hans sem „grunsamlegum“ Erlent Taka tillit til „miklu, miklu meiri“ hækkana kennara Innlent Boris Spassky er látinn Erlent Fleiri strætóferðir næsta haust og hætt við fækkun bílastæða Innlent Keppa í dansi á heimsleikum Special Olympics Innlent Ógeðfelldar lýsingar í ákæru á hendur Kristjáni Markúsi Innlent María Heimisdóttir skipuð landlæknir Innlent Fleiri fréttir Taka tillit til „miklu, miklu meiri“ hækkana kennara Ráðherra ætlar að banna síma í skólum Segist nauðbeygður til að gagnrýna Guðrúnu á Facebook fyrst hún svari ekki póstum Keppa í dansi á heimsleikum Special Olympics Fleiri strætóferðir næsta haust og hætt við fækkun bílastæða Óttast launaskrið og aukna verðbólgu Uppsögnin komi SFV í opna skjöldu Verðbólguótti, snjallsímabann í haust og Trump-tollar Sætta sig ekki við rafræna undirritun á stefnu Fær þyngri dóm fyrir að spyrja „er þetta hann?“ og stinga svo mann María Heimisdóttir skipuð landlæknir Ekki valin en draumurinn lifir Segja upp samningum 2.300 félagsmanna sem vinna á hjúkrunarheimilum „Við skulum aðeins róa okkur, fókus“ Ógeðfelldar lýsingar í ákæru á hendur Kristjáni Markúsi Jakob nýr formaður Rafiðnaðarsambandsins Ríkisstjórnin fundar í Reykjanesbæ Vilja komast í bækur bankanna án dómsúrskurðar Flokki fólksins einum refsað „Höfum verulegar áhyggjur af þeirri hlið málsins“ Kennarasamningar koma ASÍ í opna skjöldu Nafn mannsins sem lést á Þingvallavegi Ákvarðanir um sviptingu teknar með flugöryggi í huga Konan er fundin Brýnustu verkefnin í borginni í Pallborði Þjónusta fólk sem reykir ópíóíða og vímuefni í ómerktum bíl Með tuttugu kíló af hassi og marijuana í farangrinum Ölvaður, réttindalaus og með barn í bílnum Ný þrjátíu milljarða króna álma bætist við Leifsstöð Spyr sig hvort eftirlitsnefnd hafi unnið hratt í „þágu tiltekinnar niðurstöðu“ Sjá meira