Innlent

Vilja að Kristján greiði hálfan milljarð - tveir færðu skuldir í einkahlutafélag á síðustu stundu

Kristján Arason.
Kristján Arason.

Aðeins tveir starfsmenn Kaupþings fengu að færa eignir sínar og skuldir yfir í einkahlutafélag árið 2008, örfáum mánuðum fyrir hrun, en annar þeirra var Kristján Arason. Þetta er meðal þess sem kom fram í réttarhöldum í máli Kristjáns Í Héraðsdómi Reykjaness í dag.

Kristján fékk 1,7 milljarða lán frá Kaupþingi til að kaupa hlutabréf í bankanum misserin fyrir hrun, líkt og margir aðrir starfsmenn bankans.

Kristján tók lánin í eigin nafni en færði hins vegar skuldina yfir í einkahlutafélagið 7 hægri ehf. í febrúar 2008. Það félag var tekið til gjaldþrotaskipta í desember 2010 og stóð skuldin við Kaupþing þá í rúmum tveimur milljörðum króna. Engar eignir fundust í búinu.

Slitastjórn Kaupþings stefndi Kristjáni vegna málsins og vill rifta gjörningnum og krefst þess að hann greiði rúmlega 530 milljónir króna vegna lánasamninganna. Slitastjórnin gerir til vara skaðabótakröfu upp á 388 milljónir króna með dráttarvöxtum. Tapi hann málinu þarf hann að öllum líkindum að greiða rúmlega milljarð til baka séu dráttarvextir taldir með.

Fram kom fyrir rétti í dag að svo virtist sem Hreiðar Már Sigurðsson, þáverandi forstjóri bankans, hafi einn gefið Kristjáni leyfi fyrir gjörningnum, sem var ekki sérstaklega samþykktur í stjórn bankans. Hreiðar bar vitni í málinu.

Hann var meðal annars spurður hversvegna í ósköpunum hann hefði tekið þá ákvörðun að leyfa þennan gjörning, sem lögmaður slitastjórnar sagði að hefði augljóslega skaðað bankann, svaraði Hreiðar Már því til að tryggingarnar hefðu verið bréfin í Kaupþingi á þeim tíma - sem eins og allir vita - urðu verðlaus um hálfu ári síðar.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×